Fréttablaðið - 07.11.2012, Síða 25
| FÓLK | 5FERÐIR
Viðurstyggileg kynni af hrikalegum skepnum freista margra. Lonely Planet tók saman lista yfir fimm goðsagnakenndar ófreskjur í Evrópu.
■ Á Íslandi er auðvelt að halda á fund álfa sem búa undir hverjum steini.
Ætíð skal umgangast álfa af virðingu. Þeir eru auðreittir til reiði og
valda hiklaust slysum og ólukku ef móðgaðir eða særðir. Af sömu
ástæðu er tillit til þeirra í framkvæmdum.
■ Varúlfar eru hálfir menn og hálf dýr. Í Lozère í Frakklandi hefur enginn
gleymt grimmri og úlfslegri ófreskju sem kölluð var Skepnan frá
Gévaudan og hrelldi íbúa Massif Central í Langue-
doc-Roussillon-héraði um 1760.
Þá sendi Lúðvík XV
veiðimann til að
fella skepnuna
og færa sér til
Versala en
sendiförin
mistókst
þegar skyttan
gleymdi
silfurkúlunum. En ku
afkomendur Skepnunnar
frá Gévaudan traðka um
jarðir í Massif Central.
■ Allir þekkja nornir með beyglað nef en litháíska nornin er sérlega
ótuktarleg, stelur hvítvoðungum og leggur banvæna bölvun á fólk.
Nornin leynist á Nornahæð (Raganu Kalnas) nærri bænum Juodkrante
í Litháen. Í afskekktum skógi er undraland tréútskurðar heiðingja og
heyra má gaggandi hlátursrokur norna.
■ Elstu heimildir um blóðsugur eiga sér uppruna í Grikklandi. Þar fer
um óheilög hjörð blóðsvolgrandi anda og afturgangna sem bráðnar
ekki við sólarupprás heldur hressist allur við. Finna má hættulegan
skrílinn í grafreit blóðsuga á Santorini á Grikklandi.
■ Eldspúandi drekar eru nú fáheyrðir í Evrópu en þó býr þar agnarsmár
dreki, kallaður Olm. Hans er fyrst getið í feneyskum steinristum sem
sýna snáka með vængi, langan búk og fjaðurleg tálkn. Vegna föls litar-
hafts er Olm kallaður stundum kallaður mannfiskurinn. Olm-dreka má
auðveldlega sjá friðaða í Postojna-hellum Slóveníu.
SKRÍMSLA-
VEIÐAR
ÓGNVEKJANDI Viltu hitta álf, norn, blóðsugu eða
dreka? Í Evrópu er enginn hörgull á yfirnáttúru-
legum skepnum, svo lengi sem þú veist hvar á að
leita. Í fimmtíu ár hefur þessi tilbúni njósnari, gerður eftir bókum Sir Ians Fleming, ferðast um allan
heim, meira að segja tvisvar til Ís-
lands í kvikmyndunum A View to a
Kill og Die Another Day. Sagt er að
hann hafi heimsótt fimmtíu lönd og
komið nokkrum sinnum til margra
þeirra.
Í fyrstu myndinni, Dr. No, fer Bond
til Jamaíku en höfundurinn, Fleming,
dvaldist þar mikið. Bond fer síðan til
S-Afríku í Diamonds Are Forever og
til Svalbarða í Die Another Day. Hann
hefur því ferðast frá suðri til norðurs
í þessum frægu myndum.
Sagt er að miðað við þau fimmtíu
lönd sem Bond hefur heimsótt, sum
oftar en önnur, sé vegalengdin komin
hálfa leið til tunglsins og nokkrar
ferðir umhverfis jörðina. Samkvæmt
þessu ætti hann því að vera öflugur
vildarpunktasafnari.
Mjög skemmtileg landakort hefur
verið gert um ferðalög njósnarans
um allan heim en það má skoða á
vefsíðunni Huffingtonpost.ca. Þar má
einnig sjá verðmæti þeirra bíla sem
James Bond ekur og hversu marga
Martini-drykki hann hefur sett ofan
í sig.
Í nýjustu myndinni, Skyfall,
fer Bond til Istanbúl, Sjanghæ og
Glencoe í Skotlandi. Hann kemur að
sjálfsögðu líka við í London, enda í
þjónustu drottningar. Margir þeirra
staða sem Bond hefur komið til í
myndunum hafa orðið frægir ferða-
mannastaðir.
■ elin@365.is
FERÐAGARPURINN
JAMES BOND
UM ALLAN HEIM James Bond er án efa frægasti njósnari í heimi. Hann er
jafnframt einhver mesti ferðagarpur sem sögur fara af.
VÍÐREIST James Bond
(Daniel Craig) við upp-
tökur á Skyfall í Istanbul
með leik konunum
Naomie Harris og Bere-
nice Marlohe.
Hours: Monday, Tuesday, Wednesday,
Friday, 17:30 – 21:50
Registration@ : rektorinn@gmail.com
Please send your full name, ID-no and
mobile number
Course in English
for Icelandic Commercial driving licence
Duration 24 Oktober 2012
Steinunn Sigurðardóttir rithöf-
undur og Júlía Björnsdóttir
stjórnmálafræðingur standa
fyrir gönguferð um Kreuzberg-
hverfið í Berlín miðvikudaginn
14. nóvember. Þar eru söguslóðir
skáldsagnanna Jójó og Fyrir Lísu
eftir Steinunni.
Jójó kom út fyrir síðustu jól og
hlaut tilnefningu til Íslensku bók-
menntaverðlaunanna. Bókin Fyrir
Lísu er nýkomin út og er sjálfstætt
framhald hinnar en á Facebook-
síðu viðburðarins segir að ekki
þurfi að hafa lesið fyrri bókina til
að hafa gaman af göngunni. Fyrir
Lísu fjallar um Martin Montag.
Hann kynntist ungri stúlku, Lísu,
þegar hann var læknanemi á geð-
deild og hefur aldrei getað gleymt
sögu hennar síðan. Dag einn
ákveður hann að taka af skarið og
hafa uppi á henni en það hrindir
af stað atburðarás sem hann
missir alla stjórn á. Úr verður
reyfari, farsi og harmleikur.
Nánar má kynna sér göngu-
ferðina og dagskrá hennar á
Facebook-síðunni Gönguferð um
söguslóðir skáldsagnanna Jójó og
Fyrir Lísu eftir Steinunni Sigurðar-
dóttur og á www.turisti.is.
SÖGUSLÓÐIR Í BERLÍN
Skáldsögurnar Jójó og Fyrir Lísu gerast í Berlín.
Höfundurinn leiðir gönguhóp um sögusvið bókanna
á miðvikudaginn kemur.
SÖGUR Í BERLÍN Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur leiðir gönguferð um söguslóðir
tveggja skáldsagna sinna. MYND/HARI