Fréttablaðið - 17.11.2012, Síða 4
17. nóvember 2012 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 4
10.11.2012 ➜ 16.11.2012
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Hjúkrunarrýmum hér-
lendis hefur fækkað
um 103 á þremur
árum. Biðlistar styttast,
en þó bíða enn 244.
SÆNSKI
KNATTSPYRNUMAÐURINN
ZLATAN
IBRAHIMOVIC
skoraði öll mörk Svía
í sigri gegn Englendingum.
Hann er þriðji markahæsti
landsliðsmaður Svía frá
upphafi , með 39 mörk.
Á árunum 2009 til 2011
rannsökuðu vísindamenn 41
sinni hvort konum hefði verið
byrlað nauðgunarlyf á Íslandi.500
ÞÚSUND KRÓNUR
kostar að leggja gólfi ð
í Laugardalshöll
fyrir hvern landsleik í
handbolta.
1.277 tonn af sorpi féllu til við starfsemi Landspítalans í fyrra. 23% þeirra fóru í endurvinnslu.
FJÁR
drapst í óveðrinu á
Norðurlandi í október.
142 milljónir mun kosta
að bæta tjónið.
Norræna fl ugfélagið
SAS hyggst fækka
starfsfólki sínu um
40% á næstunni.
Tvær 18 ÁRA íslenskar stúlkur sitja í gæsluvarðhaldi í Prag
vegna smygls á um 3 KÍLÓUM af kókaíni.9.423
MENNTUN „Við myndum aldrei
læra ensku ef allt væri talsett,“
var meðal þess sem kom fram á
málræktarþingi tíundu bekkinga
úr Laugalækjarskóla, Langholts-
skóla og Réttarholtsskóla, sem
komu saman til þings í tilefni af
degi íslenskrar tungu í gærmorg-
un. Fæstum leist vel á þá hug-
mynd að allt sjónvarpsefni hér á
landi væri talsett.
Krakkarnir hafa undanfarið
unnið verkefni um gildi íslenskr-
ar tungu og héldu fundi í skólan-
um um ýmislegt sem við kemur
tungumálinu. Afraksturinn mátti
sjá á þinginu í gærmorgun. Allir
skólarnir sýndu myndband eða
myndbönd og nemendur í Lang-
holtsskóla sungu einnig tvö lög
til að sýna fram á gildi íslensk-
unnar.
Meðal þess sem var rætt var
hvort rétt væri að leggja niður
y til að einfalda málin. Þá komu
fram mjög misjafnar skoðanir á
störfum mannanafnanefndar og
því að útlendingar hefðu áður fyrr
þurft að taka upp íslensk nöfn til
að fá íslenskan ríkisborgararétt.
Sumir voru alfarið á móti því að
mannanafnanefnd væri starfandi
hér á landi en aðrir töldu mögu-
legt að börn yrðu lögð í einelti ef
þau hétu of skrítnum nöfnum.
Katrín Jakobsdóttir, mennta-
og menningarmálaráðherra,
minnti unglingana á að íslensk
tunga væri menningarverðmæti.
„Íslenskan stýrir því að ein-
hverju leyti hvernig við hugsum,
þannig að ef við hættum að tala
íslensku breytist líka hvernig
við hugsum og þá fer heimurinn
svo margs á mis,“ sagði Katrín.
Hún benti á velgengni íslenskra
tónlistarmanna, kvikmynda,
bóka og annarrar menningar og
sagði mikilvægt að kunna góða
íslensku til að starfa í skapandi
greinum.
„Stóra málið til að viðhalda
íslenskunni er að horfa ekki bara
á hana sem eitthvað sem á að varð-
veita heldur eitthvað sem á að
vinna með, þess vegna fannst mér
gaman að heyra ykkur tala um
hana.“ thorunn@frettabladid.is
Ætti að vera á hverju ári
Nemendur í þremur grunnskólum hafa undanfarið rætt saman um gildi íslenskrar tungu. Unglingarnir komu
saman í gær og báru saman bækur sínar. Þeir sem Fréttablaðið ræddi við voru ánægðir með uppátækið.
DAGUR ÍSLENSKRAR TUNGU Krakkarnir í Laugalækjar-, Langholts- og Réttarholtsskóla voru ánægðir með sameiginlegt tónlistaratriði frá unglingum úr öllum skólunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Grínistinn Ari Eldjárn og tónlistarmaðurinn Páll Óskar vöktu mikla lukku
hjá unglingunum og öðrum sem sóttu málræktarþingið. „Hvergi annars
staðar hefur nafn Bítlanna verið þýtt. Þeir heita bara The Beatles, nema
á íslensku– Bítlarnir,“ sagði Ari. Íslendingar væru öðrum duglegri við að
búa til ný orð í tungumálinu. Páll Óskar söng lagið vinsæla „Þú komst
við hjartað í mér“ og sagðist geta lofað því að lagið hefði ekki náð sömu
vinsældum með upprunalega enska textanum.
Vöktu mikla lukku
Inga Guðrún og Ragnheiður Silja
RÉTTARHOLTSSKÓLA
Við vorum að
vinna með
fornsögur og
heimsóttum
Árnastofnun.
Þetta er búið að
vera rosalega
skemmtilegt verk-
efni, sérstaklega
að koma hingað og hlusta á Ara Eldjárn og
Pál Óskar.
Linda Björg
RÉTTARHOLTS-
SKÓLA
Það er nauðsynlegt að
halda upp á tungumálið
okkar og varðveita það.
Mér finnst þetta sniðugt
og einstaklega gaman að
koma hingað.
Ánægð með daginn
Unglingarnir voru flestir sáttir við að eyða
föstudagsmorgni á málræktarþinginu.
Ómar
LAUGALÆKJARSKÓLA
Það skiptir sérstaklega máli
fyrir mig að kunna góða
íslensku út af því að ég á
útlenskan pabba, og það
er gott fyrir mig að læra að
skrifa og tala rétt.
Þórey
LANGHOLTSSKÓLA
Mér fannst þetta mjög
fræðandi og skemmtilegt.
Páll Óskar er náttúrulega
snillingur.
Kristján Atli
LANGHOLTSSKÓLA
Mér fannst þetta mjög
flott, það er virkilega
gaman hvernig þetta var
sett upp og það voru
mörg mjög flott verkefni
hjá skólunum. Mér finnst
mjög gaman að það sé
verið að viðhalda íslenskunni á þennan hátt.
4
Veðurspá
Mánudagur
Að 13 m/s V- og A-til annars hægari.
ÞAÐ SNJÓAR N-til um helgina en verður nokkuð bjart S-til. Strekkingur eða allhvass
vindur einnig N-til þar til annað kvöld þegar lægir og léttir til. Bjart um mest allt land á
mánudag, síst A-til. Kólnar á morgun, frost að 10 stigum á mánudag.
-3°
13
m/s
-1°
12
m/s
-2°
9
m/s
2°
12
m/s
Á morgun
8-15 m/s N- og A-til, annars hægari.
Gildistími korta er um hádegi
-4°
-3°
-5°
-4°
-2°
Alicante
Basel
Berlín
19°
11°
7°
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
6°
9°
11°
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
5°
5°
24°
London
Mallorca
New York
13°
20°
10°
Orlando
Ósló
París
22°
6°
12°
San Francisco
Stokkhólmur
16°
6°
-3°
5
m/s
2°
4
m/s
-1°
5
m/s
2°
9
m/s
0°
9
m/s
-2°
11
m/s
-6°
8
m/s
-3°
-4°
-5°
-4°
-2°
Snjólaug Ólafsdóttir
veðurfréttamaður