Fréttablaðið - 17.11.2012, Qupperneq 6
17. nóvember 2012 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6
VG í SV-kjördæmi
1 Árni Múli Jónas son
sem látið hefur af
störfum bæjarstjóra
á Akranesi fær
bæjarstjóralaun í sjö
mánuði til viðbótar.
Fram að áramótum
á Árni að ljúka
verkefnum sem hann hafði unnið að.
Í fi mm mánuði eft ir áramót fær hann
hins vegar laun án þess að þurfa að
vinna.
Hættur og fær
sjö mánaða laun
2 Eignanefnd Fjarða-byggðar hefur
áhyggjur af því að
framkvæmdir við nýtt
hjúkrunar heimili á Eski-
fi rði eru átta vikum á
eft ir áætlun þrátt fyrir að
bætt hafi verið við mönn-
um. Gera á verktakanum
að fj ölga enn mannskap og vinna upp tapaðan tíma.
Kappkostað er að ljúka allri steypuvinnu á meðan veður
gefur og byrja að loka húsunum fyrir veðri og vindum svo
vinna geti hafi st innandyra.
Reka á eftir
hjúkrunarheimili
3 „Full ástæða er til að gleðjast þegar svo góður
árangur næst,“ segir bæjarráð
Hveragerðis sem óskar nemend-
um, kennurum og öðrum sem
tengjast grunnskólanum í bænum
til hamingju með „afb urða
árangur“ á samræmdum prófum
í grunnskólum í haust. Sem dæmi
má nefna að meðaleinkunn
fj órðu bekkinga í Hveragerði í
íslensku var 8,05 en landsmeðal-
talið var 6,9.
Grunnskólabörn
fá mikið hrós
LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER
Ráðhúsgangur kl. 13:00
Litfríður – Heklað, prjónað og endurskapað
Sigríður Ásta Árnadóttir kynnir bók sína.
Stóra prjónabókin
Herborg Sigtryggsdóttir kynnir.
Ráðhúsgangur kl. 14:00 – 15:00
Súpur allt árið
Sigurveig Káradóttir kynnir bók sína og
kitlar bragðlauka gesta með smakki.
Setustofa, 2. hæð 14:00 – 15:00
Fjölskyldustund fyrir unga sem aldna með
barna- og unglingabókahöfundum.
Frá Sölku:
Anna Heiða Pálsdóttir:
Mitt eigið Harmagedón
Iðunn Steinsdóttir:
Varið ykkur á Valahelli
Ráðhúsgangur kl. 16:00 – 18:00
Hárið
Theodóra Mjöll, höfundur bókarinnar sýnir gestum
og gangandi snjallar greiðslur.
Höfundaspjall á Kaffihúsi Ráðhússins kl. 13:30
Heimili fröken Peregrine fyrir sérkennileg börn
Sjón ræðir við bandaríska höfundinn Ransom Riggs
um bók hans sem setið hefur á metsölulistum.
Í þessari óvenjulegu bók gerast óvæntir og
óhugnanlegir atburðir sem halda lesandanum í
spennu frá fyrstu síðu til hinnar síðustu.
Kaffihús kl. 17:00
Ljóðin í bænum
Rúsínan í pylsuendanum á Bókamessu
er ljóðadagskrá með nokkrum ljóðskáldum.
Frá Sölku:
Guðrún Hannesdóttir: Teikn
SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER
STJÓRNMÁL Mikið hefur verið um
nýskráningar í Vinstrihreyfing-
unni – grænu framboði í Suðvest-
urkjördæmi. Forval fer fram í kjör-
dæminu 24. nóvember, en kjörskrá
var lokað á miðnætti á miðvikudag.
Til að kjósa í forvalinu þarf að vera
skráður félagi í flokknum.
Fréttablaðið hefur heimildir
fyrir því að stuðningsmenn Ólafs
Þórs Gunnarssonar, bæjarfulltrúa
í Kópavogi og varaþingmanns, hafi
verið duglegir að fá fólk til að skrá
sig í flokkinn. Ólafur sækist eftir
því að leiða listann, en hann skipaði
þriðja sæti hans árið 2009.
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra vill einnig leiða listann,
en hann skipaði annað sætið síðast.
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, sem
var í efsta sæti 2009, gefur ekki
kost á sér.
Samkvæmt upplýsingum frá
flokksskrifstofunni voru tæplega
900 á kjörskrá í Kraganum áður en
ákvörðun um forval var tekin. Síðan
hafa um 300 bæst við og félögum
því fjölgað um þriðjung.
Alls tóku 738 þátt í forvali flokks-
ins árið 2009. Nýskráðir nú eru um
40% af þeim sem tóku þátt í því for-
vali. Athygli vekur að mun meira er
um nýskráningar í Kraganum en í
Reykjavík, þar sem um 200 nýir
hafa skráð sig í flokkinn. - kóp
Flokksfélögum Vinstri grænna í Suðvesturkjördæmi fjölgar um þriðjung:
Hart sótt að Ögmundi í Kraganum
ÓLAFUR ÞÓR
GUNNARSSON
ÖGMUNDUR
JÓNASSON
2009 2012
738
900
1.200 alls
300
Fjöldi
sem
greiddi
atkvæði
árið 2009
Nýir
Á
kjörskrá
STJÓRNMÁL Máta þarf við drög
að nýrri stjórnarskrá hver yrðu
afdrif mála í nýju umhverfi henn-
ar. Á málþingi sem deildir laga,
stjórnsýslu og stjórnmála í öllum
háskólum landsins stóðu fyrir í
gær kom fram að framkvæma
þyrfti „álagspróf“ á stjórnar-
skrárdrögunum sem leiddu í ljós
afleiðingar einstakra ákvæða og
verkferla sem drögin gera ráð
fyrir, auk þess sem Alþingi þyrfti
að taka á pólitískum álitamálum.
Á fundinum, sem fór fram í
Háskólanum í Reykjavík, var
rakin vinna, niðurstöður og
ábendingar sérfræðingahópsins,
sem skilaði niðurstöðum sínum í
byrjun vikunnar, og rædd næstu
skref.
Fram kom í máli Kristrúnar
Heimisdóttur, lektors við Háskól-
ann á Akureyri, að hún teldi til-
lögurnar vega að þingræðinu.
„Verið er að blanda saman sviss-
nesku beinu lýðræði við einhvers
konar bandarískt forsetaræði, að
viðbættu einhverju þingræði að
þýskri eða sænskri fyrirmynd,
sem ég tel ekki vera þingræði,“
sagði hún og lýsti því hvernig hún
hefði í vikunni lagt fyrir nemend-
ur að finna út hvað gerðist ef fram
kæmi frumvarp frá 10 prósentum
kosningabærra manna um upp-
töku Kanadadollars sem lögeyris
hér, líkt og drögin heimiluðu.
Sagði hún vanta allar ráðlegg-
ingar um hvernig haga ætti þing-
legri meðferð málsins og gagnrýni
um leið á ákvæði um að Alþingi
skyldi leggja fram frumvarp til
málamiðlunar, yrði hinu hafnað.
„Alþingi er þverskurður þjóðar-
innar og gæti aldrei komið fram
sem heild um átakamál.“
Niðurstaðan hafi verið að engin
af stærri álitamálum almennrar
þjóðmálaumræðu síðustu miss-
era gætu á grunni stjórnarskrár-
draganna ratað í gegnum íslenskt
stjórnkerfi. „Þetta yrðu endaleys-
ur og óskiljanlegir völundarhúsa-
gangar sem tækju við ef þetta
nýja kerfi yrði að veruleika.“
Álagsprófa þyrfti kerfið líkt og
stjórnlaganefnd hefði raunar farið
fram á við Alþingi, án þess að því
hefði verið komið í verk.
Undir þetta tók Bryndís Hlöð-
versdóttir, rektor Háskólans á
Bifröst, sem um leið kvað nauð-
synlegt að alþingismenn tækju á
pólitískum álitamálum í drögun-
um. „Við hljótum öll að vilja átta
okkur á hvað þessar breyting-
ar hafa í för með sér áður en við
keyrum þær í gegn,“ sagði hún
og fagnaði því um leið að ákveð-
ið hefði verið að leita umsagnar
Feneyjanefndarinnar svokölluðu á
frumvarpsdrögunum. Frumvarp-
ið var afgreitt úr nefnd á fimmtu-
dag og verður tekið til umræðu á
Alþingi næsta þriðjudag.
olikr@frettabladid.is
Álagsprófa þarf nýju
stjórnarskrárdrögin
Enn er langt í land við að sníða vankanta af drögum að nýrri stjórnarskrá að því
er fram kom á málþingi sem háskólarnir stóðu fyrir í gær. Kanna þyrfti hvernig
málum myndi reiða af í umhverfi nýrrar stjórnarskrár og ljúka pólitískri umræðu.
HÚSFYLLIR Páll Þórhallsson, talsmaður sérfræðingahóps sem fór yfir drög að
stjórnarskrá, var málshefjandi á þingi um næstu skref í HR í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
1
2
3
LANDIÐ
Alþingi er þverskurður
þjóðarinnar og gæti aldrei
komið fram sem heild um
átakamál.
Kristrún Heimisdóttir, lektor við Háskólann
á Akureyri