Fréttablaðið - 17.11.2012, Side 12
17. nóvember 2012 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 12
ÍSRAEL, AP „Aðgerðirnar munu
halda áfram þangað til markmiði
okkar er náð,“ sagði talsmað-
ur ísraelska hersins í viðtali við
breska útvarpið BBC.
Ísraelar segja markmið árás-
anna vera að tryggja öryggi Ísra-
ela sem búa í grennd við Gasa-
strönd og hafa árum saman búið
við flugskeytasendingar frá her-
skáum Palestínumönnum á Gasa-
strönd, sem stundum hafa valdið
tjóni og kostað mannslíf.
Árásir Ísraela höfðu seint í gær
kostað á þriðja tug manna lífið frá
því þær hófust á miðvikudag. Ell-
efu þeirra eru almennir borgar-
ar, að sögn heilbrigðisyfirvalda á
Gasaströnd.
Síðan árásir Ísraela hófust hafa
hins vegar Palestínumenn skot-
ið sprengjuflaugum bæði á Tel
Aviv og á Jerúsalem, og er þetta í
fyrsta sinn sem þeir ná að skjóta
sprengju á Jerúsalemborg. Hún
kom þó niður á auðu svæði og olli
engu tjóni.
Þrír Ísraelar hafa látið lífið af
völdum sprengjuflauga frá Gasa
síðan Ísraelar hófu árásir sínar.
Ísraelsher hafði kallað út 16
þúsund manna varalið og flutt
mikinn herafla að landamærum
Gasastrandar, í greinilegum und-
irbúningi undir innrás á landi.
Ísraelsher segist búinn undir
langvarandi hernað, ef þörf kref-
ur.
Annars héldu Ísraelar áfram
loftárásum sínum á Gasa í gær, og
Palestínumenn héldu sömuleiðis
áfram að skjóta flugskeytum yfir
landamærin til Ísraels.
Hvorki Palestínumenn né Ísra-
elar stóðu við áform um stutt
vopnahlé meðan Heshan Kandil,
forsætisráðherra Egyptalands,
væri í heimsókn á Gasaströnd.
Ísraelar segja að frá árinu 2000
hafi Palestínumenn á Gasaströnd
skotið meira en 12 þúsundum flug-
skeyta yfir landamærin til Ísra-
els. Sjaldnast hitta þau í mark,
enda frumstæð að gerð og yfir-
leitt ekki með neinn miðunarbún-
að heldur aðeins skotið í áttina að
Ísrael.
Þessar árásir hafa engu að
síður kostað tugi manna lífið og
nokkur hundruð manna hafa hlot-
ið misalvarleg meiðsli.
gudsteinn@frettabladid.is
Aðgerðirnar munu
halda áfram þangað til
markmiði okkar er náð
talsmaður ísraelska hersins
STJÓRNMÁL Kjörstjórn Samfylking-
arinnar í Reykjavík hefur ákveð-
ið að 150 nýir félagar í Jafnað-
armannafélaginu Rósinni skuli
teknir af kjörskrá. Ekki barst
staðfesting á skráningu þeirra í
félagið. Úrskurðarnefnd flokks-
ins hefur staðfest ákvörðun kjör-
stjórnar.
Kjörskráin var afhent fram-
bjóðendum á mánudag og skráð-
ir félagar fengu send kynningar-
gögn. Heimildir Fréttablaðsins
herma að fjölmargar athugasemd-
ir hafi hins vegar borist til kjör-
stjórnar frá fólki sem kannaðist
ekki við að vera skráð í félagið.
„Kjörstjórn sá sig tilknúna til
að taka þetta fólk af kjörskrá þar
sem aðild þeirra fékkst ekki stað-
fest,“ segir Stefán Benediktsson,
formaður kjörstjórnar.
Birgir Dýrfjörð, formaður Rós-
arinnar, segir þetta svívirðilega
framkomu. Hann hafi leitað eftir
því við Stefán á mánudag hvort
hann þyrfti að senda inn staðfest-
ingar á nýskráningunum en verið
sagt að þess gerðist ekki þörf. Búið
væri að samþykkja kjörskrá og
senda út eftir henni. Honum hafi
síðan verið gefinn nokkurra tíma
frestur til þess á fimmtudag.
„Ég geri engar athugasemdir
við að vera krafinn um staðfest-
ingar. Ég leitaði eftir upplýsingum
um það á mánudag, en var sagt að
þess þyrfti ekki. Það er svívirði-
leg framkoma og þannig getur
fólk ekki hagað sér. Það er verið
að leiða okkur í gildru, hverjir sem
hafa lagt á ráðin um það.“ - kóp
150 nýir félagar Rósarinnar teknir af kjörskrá fyrir prófkjör Samfylkingar:
„Verið að leiða okkur í gildru“
STEFÁN
BENEDIKTSSON
BIRGIR
DÝRFJÖRÐ
Ísraelar búnir undir
langvarandi hernað
Ísraelar héldu loftárásum sínum áfram á Gasaströnd í gær og landherinn var í
viðbragðsstöðu við landamærin. Herskáir Palestínumenn hafa í fyrsta sinn skotið
sprengjuflaug á Jerúsalem, en hún kom niður á auðu svæði og olli engu tjóni.
BJUGGU SIG UNDIR INNRÁS Ísraelski landherinn var kominn með stóran herafla
að landamærum Gasastrandar í gær. Sextán þúsund varaliðar voru kallaðir út.
NORDICPHOTOS/AFP
„Það er sérlega óhugnanlegt að í svona grimmdarstríði skuli ein helsta
ástæða þessara árása núna vera kosningahagsmunir Netanjahús og
félaga,“ segir Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og formaður samtakanna
Ísland-Palestína, og minnir á að kosningar verða haldnar í Ísrael eftir rúma
tvo mánuði.
„Svo virðist þetta líka snúast um að Palestína er þessar vikurnar að
berjast fyrir fullveldi sínu og leita öðru sinni til Sameinuðu þjóðanna. Það
eru ekki nema tvær vikur í atkvæðagreiðsluna í allsherjarþinginu. Þeir eru
að vonast til að geta leikið sama leikinn og hér á landi í fyrra þegar við
lýstum yfir stuðningi við sjálfstæði Palestínu þann 29. nóvember, alþjóð-
legum samstöðudegi með Palestínu, sem er sögulegur dagur.“
Kosningahagsmunir Netanjahús í húfi
VATNSENDI Deilan um eignarhald Vatnsendalandsins hefur staðið í 46 ár.
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykjaness hefur úrskurðað að eignarhald
jarðarinnar Vatnsenda skuli ganga inn í dánarbú Sigurðar Hjaltested
sem lést fyrir 46 árum.
Ekkja og afkomendur Sigurðar Hjaltested hafa deilt um Vatnsenda
allar götur frá því hann lést. Vatnsendi er ein verðmætasta jörð lands-
ins, ekki síst vegna eignarnáms Kópavogsbæjar sem á þar mikla hags-
muni með byggingarlóðir.
Í úrskurði Héraðsdóms Reykjaness segir að þrátt fyrir að út frá því
sé gengið í áður gengnum dómum Hæstaréttar að Vatnsendi hafi fylgt
ábúðar- og afnotaréttinum þá hafi það ekki verið stutt rökum.
Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri segir of snemmt að segja til um
áhrif úrskurðarins í gær á stöðu bæjarins. - gar
Ný staða eftir úrskurð héraðsdóms í deilu á Vatnsenda:
Milljarðaeign gangi í dánarbú
MATVÆLI
Ginger innkallar allt
Veitingasalan Ginger ehf. hefur, í sam-
ráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur,
ákveðið að innkalla af markaði allar
vörur sínar. Ástæða innköllunarinnar
er sú að maturinn gæti innihaldið
ómerkta ofnæmis- og óþolsvalda.
JAPAN
Þingið sent heim
Yoshiko Noda, forsætisráðherra Japans,
rauf þing í gær og boðaði til kosninga
16. desember. Skoðanakannanir benda
til þess að stjórnarflokkur hans eigi litla
möguleika á sigri. Mestar líkur virðast á
veikri samsteypustjórn hægri flokka.
MENNING Hannes Pétursson, ljóð-
skáld og rithöfundur, var sæmdur
verðlaunum Jónasar Hallgríms-
sonar í gær, á degi íslenskr-
ar tungu. Katrín Jakobsdóttir,
mennta- og menningarmálaráð-
herra, afhenti Hannesi verðlaun-
in við athöfn í Álftanesskóla.
Hannes fæddist á Sauðárkróki
árið 1931. Hann gaf út sína fyrstu
bók, Kvæðabók, árið 1955 og
hefur verið talinn í hópi fremstu
skálda þjóðarinnar.
Verðlaun Jónasar Hallgríms-
sonar eru veitt á degi íslenskr-
ar tungu, 16. nóvember, ár hvert.
Þau skal, reglum samkvæmt,
veita „einstaklingum er hafa með
sérstökum hætti unnið íslenskri
tungu gagn í ræðu eða riti, með
skáldskap, fræðistörfum eða
kennslu og stuðlað að eflingu
hennar, framgangi eða miðlun til
nýrrar kynslóðar“.
Hannes fær í verðlaun 700 þús-
und krónur, ritið Íslenska fugla
eftir Benedikt Gröndal og skraut-
ritað verðlaunaskjal. Íslands-
banki veitir verðlaunaféð.
- þj
Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar veitt á Degi íslenskrar tungu:
Hannes fékk Jónasarverðlaunin
VERÐLAUNAÐUR Hannes Pétursson
skáld tók á móti Verðlaunum Jónasar
Hallgrímssonar úr höndum Mennta- og
menningarmálaráðherra í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI