Fréttablaðið - 17.11.2012, Síða 16
17. nóvember 2012 LAUGARDAGURSKOÐUN GUNNAR
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is
MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
S
veitarstjórnir um allt land liggja þessa dagana
yfir gerð fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár. Það er
klárlega ekki alltaf létt verk, enda bæði rekstrar- og
skuldastaða margra sveitarfélaga erfið. Það vekur þó
athygli að í það minnsta þrjú sveitarfélög, öll á suð-
vesturhorninu, stefna að því að lækka skatta á næsta ári.
Þannig hefur Seltjarnarnes samþykkt fjárhagsáætlun sem
kveður á um að útsvar íbúanna lækki úr 14,18% í 13,66%. Í
Grindavík á að lækka útsvarið úr 14,48%, sem er leyfilegt
hámarksútsvar, í 14,38%. Í Kópavogi hefur meirihluti bæjar-
stjórnar tilkynnt áform um að
lækka fasteignagjöld, vatns-
skatt og sorphirðugjald.
Í flestum tilvikum munar
skattgreiðendur ekki stórkost-
lega um þessar gjaldalækk-
anir, en þær eru samt mikil-
vægt fagnaðarefni, vegna þess
að þær eru til merkis um að
nú sjái hugsanlega fyrir endann á þeirri skattahækkanahrinu
ríkis og sveitarfélaga, sem hefur verið samfelld frá hruni.
Þannig lagði Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi,
áherzlu á það í samtali við Fréttablaðið fyrr í vikunni að
sleginn væri nýr tónn. Frekari skattalækkana væri að vænta
á næstu árum.
Seltjarnarnes og Grindavík standa vel miðað við mörg
önnur sveitarfélög og skulda ekki mikið. Kópavogur skuldar
á þessu ári nærri 2,5-faldar rekstrartekjurnar, en stefnir í að
koma skuldunum í rúmlega 200% af tekjunum á næsta ári.
Auðvelda leiðin í þeirri stöðu er að skrúfa skattana í botn og
láta íbúana súpa seyðið af röngum ákvörðunum fyrri ára. Það
er þess vegna virðingarvert að meirihluti bæjarstjórnarinnar
skuli fremur kjósa aðhald í rekstrinum.
Minnihlutinn í bæjarstjórn Kópavogs segir það „sýndar-
lækkun“ að lækka fasteignaskatta, af því að fasteignamat hafi
hækkað og því fórni bærinn í raun ekki tekjum. Það er rétt
eins langt og það nær, en þá ber líka að hafa í huga að mörg
sveitarfélög, þar sem fasteignamat hefur hækkað, breyta
ekki skattprósentunni og þiggja bara að fleiri krónur komi í
kassann.
Svo er það áhugaverð umræða hvort tekjur tapist með
skattalækkunum. Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri Grinda-
víkur, sagði í Viðskiptablaðinu fyrr í vikunni frá því að hann
nýtti skattalækkunaráformin til að reyna að fjölga íbúum
í bænum. Hann gengi til dæmis á milli báta í höfninni og
kynnti bæinn fyrir sjómönnum. Það hefði þegar borið þann
árangur að nokkrir hefðu flutt heimili sitt til Grindavíkur. Í
ljósi þess að sjómenn eru meira en meðalmenn í launum, er
það heilmikil búbót fyrir lítið sveitarfélag.
Heilbrigð skattasamkeppni á milli sveitarfélaga er af hinu
góða. Vonandi leiðir þessi viðleitni þriggja sveitarfélaga til
þess að önnur sjái sér líka hag í því að lækka skatta og vanda
sig við reksturinn.
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR
Áhugaleysi er það sem lesa má úr stöðunni eftir prófkjör Sjálfstæðis-flokksins og Samfylk-
ingarinnar í Suðvesturkjördæmi
um síðustu helgi. Það rímar við
þjóðaratkvæðagreiðsluna um
stjórnarskrármálið þar sem hvor-
ugum flokknum tókst að höfða til
meirihluta kjósenda. Ríkisstjórn-
in hefur brugðist vonum kjósenda
og stjórnarandstaðan hefur ekki
náð að vekja nýjar vonir.
Athyglisvert er að þátttakan í
prófkjöri Samfylkingarinnar er
til muna lakari en hjá Sjálfstæð-
isflokknum þrátt fyrir skarpari
hugmyndafræðileg átök sem þar
áttu sér stað og
lutu að fram-
tíðar forystu
hennar. Þau
átök stafa af því
að Samfylking-
in hefur breyst
býsna hratt í
vinstri sósíal-
istaflokk.
Jóhanna Sigurðardóttir hafði
afl til að víkja tveimur af þremur
frjálslyndum ráðherrum flokks-
ins úr ríkisstjórn og nýtti sér það.
Hitt er að óhyggilegt getur verið
að beita meirihlutavaldi með þess-
um hætti. Prófkjörið sýndi að oft
er það svo að skamma stund verð-
ur hönd höggi fegin.
Margt bendir til að ósveigjan-
leiki Jóhönnu Sigurðardóttur hafi
hjálpað frjálslyndari armi flokks-
ins, undir forystu Árna Páls Árna-
sonar, að ná vopnum sínum á ný.
Frambjóðendur hans urðu einnig
hlutskarpari í Norðausturkjör-
dæmi. Það gæti þýtt að Samfylk-
ingin sveigðist aftur inn á braut
nútímalegrar jafnaðarstefnu.
Fari svo er ekki útilokað að ná
megi betra jafnvægi í pólitíkina á
nýju kjörtímabili. Hugmyndabar-
áttunni innan Samfylkingarinnar
er þó ekki lokið og eftir á að koma
í ljós hversu víðsýna afstöðu Sjálf-
stæðisflokkurinn tekur.
Skamma stund verður hönd höggi fegin
Í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins var ekki með sama hætti tek-ist á um hugmyndafræði. Eigi
að síður má lesa ákveðin skilaboð
úr niðurstöðum þess. Sérstaklega
á það við átökin um annað sætið
þar sem Ragnheiður Ríkharðs-
dóttir fór með sigur af hólmi.
Það er ekki rétt að eigna Evr-
ópusinnum þann árangur. En
hitt er athyglisvert að afstaða
hennar í þeim efnum skemmdi
ekki fyrir. Það sem máli skiptir í
þessu samhengi er að Ragnheið-
ur Ríkharðsdóttir hefur tekið við
merki Þorgerðar Katrínar Gunn-
arsdóttur sem fulltrúi þeirra sem
standa næst miðjunni. Eðlilegt er
því að túlka það traust sem hún
fékk sem ósk stuðningsmanna
flokksins um breidd og víðsýni.
Því má segja að í Sjálfstæðis-
flokknum eins og Samfylking-
unni hafi þau sjónarmið verið
sterkust sem kalla á breiðara
pólitískt samstarf.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, sagðist hafa
orðið fyrir vonbrigðum með eigin
árangur. Enginn formaður hefur
tekið við jafn erfiðu verkefni.
Örlög hans voru að axla þungann
af uppgjöri kjósenda við arfleifð
langrar stjórnarsetu.
Pólitískar rætur vonbrigð-
anna virðast þó einkum liggja í
tveimur atvikum. Annað er að
landsfundur ákvað með hlátra-
sköllum að henda út í hafsauga
endurreisnarskýrslunni sem
Geir Haarde lét vinna. Hún var
alvöru tilraun til að gera upp
við fortíðina og leggja grunn
að framtíðarsýn. Það hefur háð
nýjum formanni að hafa ekki þá
málefnaundirstöðu.
Hitt er að ýmsir samherjar for-
mannsins brugðu fyrir hann fæti
þegar hann beitti sér fyrir lausn
Icesave-málsins. Niðurstaða
þess er enn í uppnámi. Einmitt
það sýnir að sú varfærnisleið
sem formaðurinn vildi var skyn-
samleg og ábyrg út frá íslensk-
um hagsmunum. Um leið bar hún
vott um raunverulega sáttahæfi-
leika.
Krafa um meiri breidd
Í Silfri Egils var á það bent að í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi hafi þeir
náð bestum árangri sem mest lögðu
af mörkum í málefnalegri hug-
myndasmíð með greinaskrifum og
jafnvel bókaútgáfu. Vissulega má
segja að pólitísk rökræða hafi þar
verið virt að verðleikum.
Í prófkjörsbaráttu Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík má einnig
greina átakalínur af þessu tagi þótt
með öðrum hætti sé. Þetta er eink-
um áberandi í einvíginu um fyrsta
sætið.
Illugi Gunnarsson, sem er í
fyrsta sæti í Reykjavík norður,
hefur gert meir en aðrir þing-
menn flokksins í því að brjóta mál
til mergjar á hugmyndafræðileg-
um grundvelli í greinum og fyr-
irlestrum, hvort heldur er á sviði
menntunar eða efnahagsstjórn-
unar. Hanna Birna Kristjánsdótt-
ir, fyrrum borgarstjóri, er algjör
andstæða. Hún stendur fyrir ein-
föld skilaboð fremur en djúpar
rökræður.
Eigi að síður var það mat manna
í Silfri Egils að hún stæði best að
vígi. Hún á til að mynda enga aðra
erfiða fortíð í pólitík en að hafa skil-
ið skuldavanda Orkuveitunnar eftir
til úrlausnar fyrir Besta flokkinn.
Stefna Sjálfstæðisflokksins og
Samfylkingarinnar er að sönnu
ólík. En fróðlegt verður að sjá hvort
flokkarnir lúta einnig að þessu leyti
mismunandi lögmálum.
Hvaða gildi hefur pólitísk rökræða?
Sjálfstæðismenn!
Verið velkomnir á opnun kosninga-
skrifstofu Sigríðar Á. Andersen, laugar-
daginn 17. nóv. kl. 15 við Síðumúla 28.
PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Í REYKJAVÍK 24. NÓVEMBER 2012
Sigríður Á. Andersen
3.–4. sæti
www.sigridur.is
Þrjú sveitarfélög ætla að lækka skatta:
Sér fyrir enda
skattahækkana?