Fréttablaðið - 17.11.2012, Side 18
17. nóvember 2012 LAUGARDAGUR| SKOÐUN | 18
Samtök atvinnulífsins hafa
sent frá sér rit um skatta-
mál sem ber heitið „Ræktun
eða rányrkja?“ Eins og tit-
illinn gefur til kynna þá eru
áhyggjur SA af skattastefnu
stjórnvalda þó nokkrar.
Samt er það svo að skattar
á fyrirtæki og fjármagn eru
hér með lægra móti miðað
við önnur lönd í Evrópu
þannig að ritið og barlóm-
urinn henta illa til útflutn-
ings. Í ritinu er enginn
skortur á hugmyndum um
hvernig draga skuli úr skattlagn-
ingu fyrirtækja og efnafólks. Þetta
vekur spurningar um hvort Samtök
atvinnulífsins geri sér takmark-
aða eða alls enga grein fyrir þeim
veruleika sem menn standa frammi
og hafa staðið frammi fyrir í ríkis-
fjármálum. Ég tel ekki vanþörf á að
ræða nú áður en kosningabarátta
fer í hönd fyrir alþingiskosningar
hvort það sé Samtökum atvinnulífs-
ins fyllilega sæmandi að fjalla um
ríkisfjármál af slíkri léttúð. Ættu
ekki slíkir aðilar að tala af ábyrgð,
horfast í augu við að skuldir dags-
ins í dag verða að sköttum morgun-
dagsins?
Hallinn að hverfa
Fyrst nokkur orð um afkomu ríkis-
sjóðs og verkefnið sem núverandi
ríkisstjórn, og ekki síst undirrit-
aður sem fjármálaráðherra áranna
2009-2011, stóð frammi fyrir. Eins
og sést á myndinni hefur halli rík-
issjóðs minnkað hröðum skrefum
undanfarin ár og verður að mestu
horfinn 2013. Til að ná þessum
árangri hefur verið beitt blandaðri
aðferð tekjuöflunar og niðurskurð-
ar í umfangsmiklum aðgerðum.
Ekki er allur munur á vægi
tekjuöflunar og niðurskurð-
ar í aðgerðunum enda vant-
ar nú ekki að mörgum hafi
þótt nóg um umfang niður-
skurðarins. Erfitt er að ráða
annað af hugmyndum SA en
að niðurskurðurinn hefði
átt að vera miklu meiri eða
þá að honum eigi að halda
áfram af fullum krafti
næstu ár þannig að hægt sé
að lækka aftur skatta.
En ef litið er til þess
árangurs sem náðst hefur í
ríkisfjármálum er ljóst að aðgerð-
irnar eru að ná tilgangi sínum sem
er að gera ríkisfjármálin sjálfbær.
Frumvarp til fjárlaga fyrir 2013
gerir ráð fyrir aðeins 0,3% halla
miðað við verga landsframleiðslu
(VLF). Hrakspár um að skatttekjur
muni ekki skila sér vegna ofskatt-
lagningar hafa afsannast eins og
best sést á því að tekjur ríkissjóðs
eru að aukast umtalsvert á árinu
frá því sem fjárlög gerðu ráð fyrir.
Þessi blandaða leið hefur heldur
ekki kæft hagvöxt eins og margir
spáðu að myndi gerast. Eins og ekki
verður um deilt er hagvöxtur meiri
hér á Íslandi tvö ár í röð en í vel-
flestum Evrópu- eða OECD-löndum
þrátt fyrir efnahagshrun hér árið
2008 sem á sér vart fordæmi.
Ábyrg ríkisfjármál
Í ljósi tillagna SA er ekki úr vegi að
spyrja:
● Eru SA ekki sammála því að það
sé lífsspursmál fyrir Ísland að ná
jöfnuði í ríkisfjármálum og helst
fara að reka ríkissjóð með nokkr-
um og vaxandi afgangi eftir 2014
til að grynnka á skuldum?
● Eru SA ekki sammála því
að þetta sé ein af forsendum
afnáms gjaldeyrishafta?
● Eru SA ekki sammála því að
þetta sé nauðsynlegt til að láns-
hæfismat landsins fari batnandi
og aðgangur fleiri aðila en ríkis-
sjóðs að erlendum lánamörkuð-
um komist í eðlilegt horf?
● Óttast SA ekki eins og undirrit-
aður hættuna á óábyrgum yfir-
boðum í kosningabaráttunni?
● Eru SA ekki sammála því að
sjálfbær ríkisfjármál séu ein af
mikilvægum forsendum batn-
andi lífskjara og betri framtíðar
fyrir landsmenn?
Mitt svar er já við öllum spurn-
ingunum. Það væri hreint óráð
að setja þann árangur sem náðst
hefur í ríkisfjármálum í hættu og
því verður ekki trúað að það verði
gert. Nægar fórnir hefur það kost-
að að komast þangað sem við erum
komin þó það bætist ekki við að þær
verði til einskis á altari þröngra sér-
hagsmuna eða pólitísks lýðskrums.
➜ Hrakspár um að skatt-
tekjur muni ekki skila sér
vegna ofskattlagningar hafa
afsannast …
Ábyrgð eða óráð!
SKATTAR
Steingrímur J.
Sigfússon
atvinnuvega- og
nýsköpunar-
ráðherra
Hernámsveldið hefur
opnað gáttir eigin vítis.“
Essedine el Kassam-herdeild Hamas-sam-
takanna í Palestínu hótaði grimmilegum
hefndum eft ir að Ísraelsher gerði tugi
loft árása á Gasa á miðvikudag.
„Ég veit ekki hvort við
semjum við þessi þrotabú,
ég held við munum bara
segja þeim hvernig þetta
á að vera.“
Már Guðmundsson seðlabankastjóri
ætlar ekki að láta slitastjórnir föllnu
bankanna komast upp með neitt múður
við nauðasamninga.
„Ég gerði þetta af minni
eigin sannfæringu um að
þetta yrði skemmtilegt.“
Grínistinn Pétur Jóhann Sigfússon
hefur legið undir ámæli í vikunni
fyrir rasisma vegna Tongs Monitor,
asísks hugarfósturs síns.
Halli ríkissjóðs
í milljörðum króna
2008
2009
2010
2011
2012E
216,0
139,3
123,3
89,4
26,0
Heimild: Ríkisreikningur, Fjárlög 2012
UMMÆLI VIKUNNAR
ORÐ VIKUNNAR
10.11.2012 ➜ 16.11.2012
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar
Einar Mathiesen, framkvæmdastjóri orkusviðs
Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri
Fundarstjóri er Magnús Þór Gylfason,
yfirmaður samskiptasviðs.
Hilton Reykjavík Nordica 21.11. kl. 14-16
Arður í orku
framtíðar
Hlutverk Landsvirkjunar er að hámarka afrakstur af þeim
orkulindum sem fyrirtækinu er trúað fyrir með sjálfbæra
nýtingu, verðmætasköpun og hagkvæmni að leiðarljósi.
Á haustfundinum ræðum við framtíðarhorfur, tækifæri
og samfélagslegt hlutverk Landsvirkjunar.
Skráning á www.landsvirkjun.is