Fréttablaðið - 17.11.2012, Blaðsíða 24
17. nóvember 2012 LAUGARDAGUR
Sigurður Ragnar Eyjólfs-
son landsliðsþjálfari
Þjálfar markmenn
„Ég verð með markmanns-
þjálfaranámskeið alla helgina
sem er byrjunin á átta
mánaða námskeiði til að efla
markmannsþjálfun á Íslandi.“
HELGIN
Andrea Gylfadóttir
söngkona
Hvíld alla helgina
„Það var rosaleg törn að
undirbúa tónleika Todmobile
í Hörpu í gær. Nú þegar þeir
eru búnir ætla ég að hvíla
mig alla helgina.“
Ásgeir Kolbeinsson fjöl-
miðla- og veitingamaður
Fer á Fitness-keppni
„Ég verð í Háskólabíói í dag
að hvetja systur mína og
frænku til dáða í Fitness-
keppninni. Á morgun ætla ég
svo jafnvel í Bláa lónið.“
Hafdís Huld Þrastardóttir tónlistarkona
Spilar til styrktar Sunnu Valdísi
„Ég er að fara að spila á styrktarmarkaði á Hótel Reykjavík
Natura í dag klukkan eitt. Þar er verið að safna fyrir litla stelpu
sem heitir Sunna Valdís og er með sjaldgæfan sjúkdóm. Á
morgun er ég að spila og kynna Vögguvísna-plötuna mína á
bókamessu í Ráðhúsinu. Þess á milli ætla ég að njóta lífsins og
snjósins með manninum mínum og fimm mánaða dóttur.“
Fleiri karlar en konur senda frá sér skáldverk (skáldsögur, smásögur
og nóvellur) í ár samkvæmt nýútkomnum Bókatíðindum. Karlar eru
höfundar 63 prósenta skáldverka en konur 37 prósenta.
Þegar litið er til frumortra ljóðabóka er munurinn enn meiri körlun-
um í hag. Þar munar ekki síst um hversu drjúgur karlpeningurinn er í
sjálfsútgáfu.
Konur eru í meirihluta þeirra sem senda frá sér frumsamdar barna-
og unglingabækur en munurinn er þó ekki yfirgnæfandi. Þar munar
einnig mikið um sjálfsútgáfu og eru dæmi um fleiri en einn karlkyns
höfund sem senda frá sér allt að þrjár frumsamdar barnasögur á árinu.
Samanlagður munur milli kynja í þessum þremur flokkum eru 78
bækur eftir karla á móti 55 bókum kvenna. Það þýðir að á móti hverjum
þremur karlkyns höfundum senda tvær konur frá sér bók í ár.
Alls eru 842 titlar skráðir í Bókatíðindi í ár sem er metfjöldi, titlarnir
voru 757 í fyrra. Munar þar mest um það að margar bækur er nú gefnar
út á fleiri en einu formi. - bs
Tveir kvenhöfundar á móti hverjum þremur körlum
Rýnt í kynjahlutföll höfunda skáldverka í nýútkomnum Bókatíðindum. Mest hallar á konur í útgefnum ljóðabókum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Frumútgefi n skáldverk
(skáldsögur, smásögur, nóvellur) á árinu:
Frumsamin ljóð Barna og unglingabækur
Frumsamdar íslenskar
Alls karlar 76 (58%) konur: 55 (42%)
➜ Karlar og konur í Bókatíðindum
Bókatíðindi eru ekki tæmandi skráning fyrir útgáfu ársins.
KARLAR KARLAR KARLAR KONUR KONUR KONUR
21
(37%)
5
(20%)
29
(56%)
22
(44%)
20
(80%)
36
(63%)
Í fyrsta lagi Greta, er Eurovision-lagið á
plötunni?
Já, það er á plötunni. Okkur á alltaf eftir
að þykja vænt um Never forget og frábært
að fá svona stökkpall. Við nýttum okkur
hann svo til að gera enn þá stærri, nýrri og
ferskari hluti á þessari plötu.
Þú talar um okkur?
Já, okkur Þorvald Bjarna. Við unnum plöt-
una alla saman en ég samdi öll lög og texta.
Er platan öll í anda Never Forget?
Nei, síður en svo. Við ákváðum að fara í allt
aðra átt og ég lokaði mig af í lok sumars og
í haust til að sökkva mér ofan í það. Það er
rosalega mikil tónlist á henni ef hægt er að
segja það. Hún spannar í raun allt litrófið í
tónlist. Við vildum láta þetta hljóma mjúkt
en á sama tíma hart. Það er smá Florence
and the Machine-fílingur í henni á köflum
og svo alveg yfir í minimalíska og angur-
væra tónlist þar sem er jafnvel bara píanó
og rödd.
Færðu aðstoð við flutninginn á plötunni?
Jónsi syngur auðvitað í Never Forget.
Svo erum við með stúlknakór úr kórnum
Hljómeyki og bakraddakór sem saman-
stendur af rosalega öflugum einstakling-
um, Eyþóri Inga, Pétri Erni, Ernu Hrönn
og Ölmu Rut. Svo syng ég líka bakraddir.
Áttu þér eitthvað uppáhaldslag á plötunni?
Já, þau eru í rauninni tvö. Annars vegar er
það titillagið In the Silence sem er stórt og
mikið og svo lagið A Thousand more Good-
byes sem er rólegt og einfalt. Þau eru rosa-
lega ólík sem lýsir kannski bara andstæðun-
um í mér og á plötunni.
Árið hefur verið mjög ævintýralegt hjá þér og
þú endar það á að syngja í Frostrósum. Bjóstu
við þessu í upphafi árs?
Nei, alls ekki. Þetta er er búið að vera alveg
æðislegt ár og fullkomið að fá að enda það
svona.
Er öll Evrópa að bíða?
Ég veit nú ekki með alla Evrópu en það er
alveg fullt af fólki úti um allt sem fylgist
með keppendunum eftir að keppninni lýkur.
Það eru því einhverjir sem eru að bíða og það
er alveg frábært. Platan er að mestu á ensku
svo hún höfðar vissulega til fólks víðar en
bara hér á landi.
Og hvað er svo fram undan 2013?
Það má Guð vita. Ég ætla að halda áfram
að fylgja plötunni eftir og stefni á að halda
útgáfutónleika eftir áramót. Svo verð ég á
fullu að syngja og spila úti um allt. Lífið mitt
snýst bara um tónlistina og auðvitað Cross-
fit. Ég var einmitt að ljúka við æfingu rétt í
þessu og er á leiðinni heim að hljómborðinu.
NÆLDI MÉR Í
EINN HÁVAXINN
Greta Salóme Stefánsdóttir gaf út plötuna In the Silence í gær.
Hún samdi sjálf öll lög og alla texta á plötunni sem hún segir spanna
allt litrófið í tónlist. 2012 hefur verið viðburðaríkt ár.
Greta Salóme er 26 ára gömul. Hún út-
skrifaðist með mastersgráðu í tónlist frá
Listaháskóla Íslands í vor og fékk 9 í einkunn
fyrir lokaverkefnið sitt. Hún er í sambúð með
Elvari Þór Karlssyni og eru þau búin að vera
saman í tæp tvö ár. „Hann var að þjálfa mig
í Boot Camp þar sem hann er meðeigandi og
rekur Crossfit-stöðina svo við æfum saman
á hverjum degi. Hann er rosalega duglegur
að hvetja mig áfram á sama tíma og hann
heldur mér á jörðinni,“ segir Greta.
Greta Salóme er aðeins 1,56 metrar á
hæð og segist vera af lágvöxnu fólki komin.
„Systir mín er meira að segja minni en ég,“
segir hún en hún á eina yngri systur, Sunnu
Rán. „Þetta er samt allt í lagi. Ég nældi mér
í einn hávaxinn svo ætli þetta jafnist ekki
út og börnin okkar verði í meðalhæð,“ segir
hún og hlær. Hún segir smæðina þó aldrei
hafa hamlað sér í lífinu. „Ég er svo risastór
að innan. Ég man samt eftir einu atviki sem
þetta snart mig illa. Það var þegar ég fór á
fyrsta skóladaginn minn og kom grátandi
heim því ég átti minnstu skóna,“ rifjar hún
upp og hlær. Hún notar skó númer 35 og
segist oft eiga í vandræðum með að finna
sér skó sem passa. „Ég hef aldrei keypt mér
jafn mikið af skóm og þegar ég fór til Kína.
Þá komst ég í algjört skó-himnaríki,“ segir
hún kát. - trs
1,56 METRAR Á HÆÐ OG NOTAR SKÓ NÚMER 35