Fréttablaðið - 17.11.2012, Page 30
17. nóvember 2012 LAUGARDAGUR| HELGIN | 30
Vogunarsjóðir í umsjón banda-ríska sjóðstýringarfyrirtækis-ins Davidson Kempner Capital Management LLC hafa gríðar-leg ítök í íslensku viðskiptalífi. Þeir eru stærsti einstaki kröfu-
hafi Glitnis, á meðal allra stærstu kröfu-
hafa Kaupþings, eiga stórar kröfur á Lands-
bankann, á meðal stærstu eigenda Straums
og Klakka og hafa verið að kaupa upp hluti
í Bakkavör Group af miklum móð.
Gangi nauðasamningar Glitnis og Kaup-
þings í gegn líkt og stefnt er að á næstu
mánuðum, og kröfum verður í kjölfarið
breytt í hlutafé, mun Davidson Kempner og
sjóðir þess vera beinn eða óbeinn eigandi að
gríðarlega stórum hluta íslensks fjármála-
og viðskiptalífs.
Þrettándi stærsti sjóðurinn
Davidson Kempner var stofnað í New York
árið 1987 og er þrettándi stærsti vogunar-
sjóður Bandaríkjanna. Sjóðurinn sérhæfir
sig meðal annars í að hagnast á viðskiptum
með kröfur í gjaldþrota fyrirtækjum. Þess
vegna var Ísland kjörinn markaður fyrir
hann, enda gjaldþrot íslensku bankanna
þriggja á meðal þeirra stærstu sem átt hafa
sér stað í heiminum. Alls eru í stýringu hjá
Davidson Kempner um 20 milljarðar dala,
eða um 2.500 milljarðar íslenskra króna. Til
að setja þá upphæð í samhengi má benda á
að öll landsframleiðsla Íslendinga var 1.626
milljarðar króna í fyrra, eða 65 prósent af
því fjármagni sem sjóðurinn stýrir. Fyrir-
tækið tekur síðan gjald fyrir stýringu á fénu
og hlut í öllum ágóða sem fjárfestingar þess
skila.
Davidson Kempner vill þó ekki láta mikið
á sér bera. Til marks um það þá þarf not-
andanafn og lykilorð til að komast inn á
heimasíðu sjóðsins, sem birtir annars engar
upplýsingar utan heimilisfangs. Fréttablað-
ið komst í samband við forsvarsmenn hans
í gegnum þriðja aðila sem starfað hefur
óbeint fyrir sjóðinn hérlendis og óskaði eftir
að ræða við þá um umsvif hans hérlendis.
Þeirri ósk var hafnað, enda væri það stefna
Davidson Kempner að tjá sig ekki opinber-
lega um starfsemi sína.
Skírteini fyrir 250 milljarða
Hagsmunir Davidson Kempner á Íslandi
eru flestir í gegnum írskt skúffufyrirtæki,
Burlington Loan Management Ltd., sem
stofnað var 24. apríl 2009. Írski sjóðurinn
er í raun í eigu góðgerðarsamtaka en hann
er fjármagnaður og honum stýrt af David-
son Kempner. Eignarhaldið er því til mála-
mynda.
Nafnið, Burlington, hefur líkast til verið
valið á sjóðinn vegna þess að skrifstofur
evrópsks dótturfélags Davidson Kempner
eru staðsettar á Old Burlington Street í
London.
Burlington-sjóðurinn virkar þannig að
Davidson Kempner gefur út hlutdeildar-
Skuggaeigandi
Íslands
Vogunarsjóðir Davidson Kempner eru á meðal stærstu
kröfuhafa allra föllnu bankanna. Þræðir þeirra liggja til
margra mikilvægra íslenskra fyrirtækja. Nauðasamningar
bankanna munu tryggja þeim áður óþekkt eignarhald yfir
íslensku atvinnulífi.
Stofnendur Davidson Kempner, þeir Robert
Davidson og Thomas Lenox Kempner Jr., eru
enn æðstu stjórnendur fyrirtækisins. Sá sem
hefur þó verið fyrirferðarmestur hérlendis, að
sögn viðmælenda Fréttablaðsins, er hinn 38
ára gamli Jeremy Clement Lowe. Hann starfar
hjá Davidson Kempner European Partners
í London, sem er dótturfélag Davidson
Kempner. Viðmælendur Fréttablaðsins,
sem sumir hverjir kölluðu hann JLo eða
„Herra Ísland“, sögðu Lowe hafa verið
„mjög umsvifamikinn hérlendis undan-
farin misseri“. Einn þeirra sagði: „þessi
Jeremy er að kaupa allt á Íslandi“.
Fréttablaðið óskaði eftir því við
tengilið skuldabréfaeigenda
á Íslandi að fá að ræða við
Lowe og var þeim óskum
komið á framfæri. Hann
vildi hins vegar ekki ræða
við blaðið.
Ljóst er að áhrif Lowe
innan kröfuhafahóps stóru
bankanna eru umtalsverð.
Til marks um það var Lowe
skipaður í sex manna
nefnd sem á að velja nýja
stjórn fyrir Glitni gangi
nauðasamningsáætlanir
búsins eftir og kröfuhafar
taka það yfir. Vera hans
í stjórninni er einnig
merkileg fyrir þær sakir
að þar situr líka Barry
Russell, lögmaður hjá
Bingham McCutchen
lögmannsstofunni, sem
hefur verið aðalráðgjafi
og komið fram fyrir hönd
skuldabréfaeigenda í heild.
Þykir þetta merki um hversu
sterk staða Davidson Kempner
er innan kröfuhafaráðsins, að þeir
hafi sinn eigin fulltrúa í þessari
nefnd til hliðar við fulltrúa annarra
skuldabréfaeigenda.
Herra Ísland:
Jeremy Clement LoweÁ síðasta ári upphófst mikil umræða
um að vogunarsjóðir, sem oft eru
kallaðir hrægammasjóðir í íslenskri
umræðu, hafi keypt á bilinu 60 til 80
prósent allra almennra krafna í föllnu
íslensku bönkunum. Kröfurnar áttu
þeir að hafa keypt á hrakvirði og virði
þeirra síðan margfaldast.
Vegna þessarar umræðu gaf slita-
stjórn Glitnis út yfirlýsingu í nóvember
2011 þar sem hún tiltók að um 70
prósent af lýstum kröfum í bú bankans
væru enn í eigu þeirra kröfuhafa sem
lýstu kröfum í búið. Um 30 prósent
hefðu síðan skipt um hendur eftir að
kröfulýsingarfresti lauk.
Þar sem Burlington Loan Manage-
ment, og aðrir sjóðir í eigu Davidson
Kempner, lýstu miklum kröfum í búin
teljast þeir að einhverju leyti „upp-
haflegir“ kröfuhafar og þar af leiðandi
hluti þeirra 70 prósenta sem slita-
stjórnin vísar til. Ljóst er að sjóðir fyrir-
tækisins hafa líka bætt vel við sig síðan
kröfulýsingarfresti lauk í lok árs 2009.
Fréttablaðið óskaði eftir því við
slitastjórnir allra bankanna þriggja,
Seðlabankann og Fjármálaeftirlitið
(FME) að fá uppfærðan kröfuhafalista
hjá þeim. Allir þessir aðilar höfnuðu
fyrirspurninni.
➜ Hvað mun gerast?
Nauðasamningar sem slitastjórnir
Glitnis og Kaupþings ætluðu að klára
fyrir áramót, og hefðu fært kröfuhöfum
stjórnarþræðina í þessum risastóru
þrotabúum, hafa verið mikið í um-
ræðunni að undanförnu.
Þau áform eru nú í uppnámi eftir
mikinn þrýsting, jafnt úr viðskiptalífinu
og stjórnmálunum, um fara afar varlega
í þessa aðgerð. Már Guðmundsson
seðlabankastjóri hefur síðan stigið fast
á bremsuna á undanförnum vikum
með því að gefa skýrt til kynna að sú
undanþága frá gjaldeyrishöftum sem
þarf til að klára samningana, og einung-
is Seðlabankinn getur veitt, fáist ekki
nema gulltryggt sé að fjármálastöðug-
leika sé ekki ógnað.
Nauðasamningsáformin ganga í
grófum dráttum út á að þrotabúum
Glitnis og Kaupþings verði breytt í ís-
lensk eignarhaldsfélög sem verða í eigu
og undir stjórn almennra kröfuhafa
bankans. Til þess að að samningarnir
verði samþykktir þarf samþykki 70
prósenta allra kröfuhafa og þeirra
sem halda á 60 prósentum af heildar-
kröfum.
➜ Stórir verða ráðandi
Ef samningarnir yrðu samþykktir myndi
um helmingur allra kröfuhafa verði
borgaður út, þ.e. gert yrði upp
við þá með erlendu reiðufé
og afskiptum þeirra af Glitni
og Kaupþingi yrði þar með
lokið. Um 80 prósent þeirra
eru erlendir aðilar og um
20 prósent innlendir. Vert
er þó að taka fram að hluti
þeirra aðila sem flokkast sem
innlendir eru í reynd í eigu
erlendra fjárfesta.
Eftir þessa útgreiðslu munu
stórir kröfuhafar, sem myndað
hafa kjarnann í óformlegu
kröfuhafaráði bankanna, eiga
þá. Hlutdeild þeirra í Glitni og
Kaupþingi verður því allt að tvisvar
sinnum meiri en kröfuhlutfall þeirra
segir til um.
Verða ráðandi í Glitni og Kaupþingi
DAVIDSON
KEMPNER
Þórður Snær
Júlíusson
thordur@frettabladid.is
Lowe er
dálítill
huldu-
maður. Ekki
tókst að
fi nna mynd
af honum
þrátt fyrir
mikla leit.
ALMC
SKRIFAÐ UNDIR Kröfuhafar munu eiga Arion banka og Íslandsbanka að mestu. Hér
sést Steingrímur J. Sigfússon skrifa undir samkomulag þess efnis haustið 2009.