Fréttablaðið - 17.11.2012, Side 34
17. nóvember 2012 LAUGARDAGUR| HELGIN | 34
Íslenskt afreksfólk í íþróttum hefur verið í umræðunni á undanförnum miss-erum þar sem fjármál þeim tengdum hafa verið efst á baugi. Á meðan karp-að er um slíka hluti heldur íþróttafólk-ið áfram að stunda sínar æfingar og
gerir sitt allra besta í alþjóðlegri keppni.
Þegar aðstæður sem afrekskonur í handbolta
í Noregi og Íslandi búa við eru bornar saman
kemur í ljós að helsti munurinn felst í því að
landsliðskonur í Noregi geta fengið allt að 5
milljónir kr. í styrk á ári frá norska hand-
boltasambandinu. Þessi styrkur er í hlutfalli
við árangur liðsins og fá konurnar í Noregi
um helmingi hærri upphæð en leikmenn í
karlalandsliðinu. Engar slíkar greiðslur tíðk-
ast á Íslandi en HSÍ fær styrk úr afrekssjóði
ÍSÍ.
Frá árinu 2005 hafa leikmenn norska
kvennalandsliðsins gengið að því vísu að
fá bónusgreiðslur í takt við árangur liðsins.
Fyrir það eitt að komast á stórmót fá leik-
menn 560.000 ísl. kr. í bónusgreiðslu, og
fyrir gullverðlaun fá leikmenn 1,3 milljón-
ir ísl. kr.
Landsliðskonur í Noregi geta fengið mun
hærri greiðslur fyrir þátttöku sína en leik-
menn karlalandsliðsins. Og þar skiptir
árangur kvennaliðsins mestu máli en karla-
liðið hefur enn ekki náð að stimpla sig inn
á stórmóti.
Það er ekki sama uppi á teningnum hjá
íslenskum landsliðskonum, sem þurfa marg-
ar hverjar að taka sér launalaus leyfi til þess
að komast í æfinga- og keppnisferðir. Það
getur tekið allt að 90 daga á ári, og það er
kostnaður sem landsliðskonurnar taka sjálf-
ar á sig.
Þegar lykiltölur hjá Handboltasambandi
Íslands er bornar saman við það norska
kemur margt fróðlegt í ljós. Ef miðað er við
höfðatölu og hlutfall eru tölurnar mjög svip-
aðar á mörgum sviðum, eins og sjá má hér
fyrir ofan.
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta er
á leið á sitt þriðja stórmót í röð í byrjun des-
ember þar sem Evrópumeistaramótið fer
fram í Serbíu. Vösk sveit Íslands braut ísinn
þegar liðið komst í fyrsta sinn á stórmót árið
2010 þegar Evrópumeistaramótið fór fram í
Danmörku. Þar náði liðið ekki að landa sigri
en liðið bætti leik sinn jafnt og þétt í fram-
haldinu og náði góðum árangri á heims-
meistaramótinu sem fram fór í Brasilíu í
desember 2011. Þar lék Ísland í 16-liða
úrslitum gegn Rússum eftir að hafa
endað í fjórða sæti í riðlakeppninni.
Konur ráða ríkjum í Noregi þegar
kemur að áhuga almennings á hand-
bolta. Kvennalandslið Norðmanna
hefur náð frábærum árangri á
stórmótum á undanförnum tveim-
ur áratugum. Frá árinu 1986 hefur
norska kvennalandsliðið landað 21
verðlaunum á stórmótum, og þar
af 7 gullverðlaunum. Liðið er í dag
handhafi allra stóru titlanna sem í
boði eru. Íslendingurinn Þórir Her-
geirsson er þjálfari liðsins en frá því
hann tók við liðinu árið 2009 hefur
Noregur fengið gullverðlaun á þrem-
ur stórmótum og bronsverðlaun á einu.
KONURNAR RÁÐA RÍKJUM
ÍSLAND
Þórir Hergeirsson, aðalþjálfari norska kvennalands-
liðsins, hefur náð frábærum árangri með liðið frá því
hann tók við starfinu árið 2009. Liðið er í dag hand-
hafi allra þriggja stóru titlanna sem eru í
boði og hann hefur alltaf skilað liðinu í
verðlaunasæti. Þórir var aðstoðarþjálfari
á tímabilinu 2001-2009. Alls hefur Þórir
landað 11 verðlaunum á stórmótum, sjö
gull-, þremur silfur- og einum brons-
verðlaunum.
Frábær árangur hjá Þóri
ÍBÚAR: 320.000
HANDBOLTASAM-
BAND ÍSLANDS
VAR MEÐ
180
milljóna kr. ársveltu
rekstrarárið 2011.
Það gerir um 25.400
kr. á hvern iðkanda.
3,5
eða 2028 iðkendur á
hvern starfsmann.
Allt að 90 dagar á ári
í æfi nga- og keppnis-
ferðum.
ÍSLENSKIR LANDS-
LIÐSMENN FÁ UM
6.000
kr. í dagpeninga í
æfi nga- og keppnis-
ferðum.
115
eða 940 iðkend ur
á hvern starfs-
mann.
NORSKIR
LANDSLIÐSMENN FÁ
12.000
ísl. kr. í dagpeninga
í æfi nga- og
keppnisferðum.
BÓNUSGREIÐSLUR FYRIR
HVERN LEIKMANN Á STÓRMÓTI
Gull– 1,3 millj. ísl. kr.
Silfur– 900.000 ísl. kr.
Brons– 560.000 ísl. kr.
NORSKA HAND-
BOLTASAMBANDIÐ
VAR MEÐ
2,8
milljarða ísl. kr.
veltu rekstrarárið 2011.
Það gerir um 26.000 kr.
á hvern iðkanda.
NOREGUR
ÍBÚAR: 5 MILLJÓNIR
2,2%
þjóðarinnar æfa
handbolta. Samtals
7098 iðkendur.
38%
af þeim sem æfa eru
konur– alls 2.688.
2,15%
þjóðarinnar æfa
handbolta. Samtals
107.670 iðkendur.
66%
af þeim sem
æfa eru konur
– alls 72.000.
Íslenskar kvennalands-
liðskonur í handbolta
taka sér launalaust
leyfi til þess að taka
þátt á stórmótum. Í
Noregi fá leikmenn allt
að 5 milljónir króna á
ári fyrir landsliðsverk-
efni og fá þær mun
hærri greiðslur en leik-
menn karlalandsliðsins.
Engar slíkar greiðslur
tíðkast á Íslandi en
leikmenn eru í allt að
90 daga á ári í æfinga-
og keppnsferðum.
Sigurður Elvar
Þórólfsson
seth@frettabladid.is
90
DAGAR
á ári í æfi nga- og
keppnisferðum:
Hæsta upphæð sem
norsk landsliðskona
getur fengið í styrki
frá sambandinu á
ári eru 5 milljónir
ísl. kr.
➜ Aðstoðarþjálfari
HM 2001 Silfur
EM 2002 Silfur
HM 2003 6. sæti
EM 2004 Gull
HM 2005 9. sæti
EM 2006 Gull
HM 2007 Silfur
ÓL 2008 Gull
EM 2008 Gull
➜ Aðalþjálfari
HM 2009 Brons
EM 2010 Gull
HM 2011 Gull
ÓL 2012 Gull