Fréttablaðið - 17.11.2012, Side 42
17. nóvember 2012 LAUGARDAGUR| HELGIN | 42
Vínbúðirnar á Íslandi hófu sölu á jólabjór á fimmtudaginn. Sala á jólabjór á síðustu vikun-um ár hvert hefur auk-ist jafnt og þétt undan-
farin ár og náði hámarki í fyrra.
Þá seldi ÁTVR rúmlega 500 þús-
und einingar af jólabjór. Tuborg
jólabjórinn frá Ölgerðinni var vin-
sælastur meðal íslenskra neytenda
eins og hann hefur verið undanfar-
in ár. Árið 2010 seldist jólabjór-
inn hreinlega upp í vínbúðunum
nokkrum vikum fyrir jól.
Svo virðist sem dómarar Frétta-
blaðsins séu ekki sammála hinum
almenna neytanda um hvaða jóla-
bjór sé bestur. Giljagaur frá Borg
brugghúsi er besti jólabjórinn að
mati dómnefndarinnar. Það kom
nokkuð á óvart fyrir þær sakir að
Giljagaur inniheldur mest áfeng-
ismagn af öllum þeim tegundum
sem smakkaðar voru, heil tíu pró-
sent.
„Ég er alveg dolfallinn fyrir
þessum,“ sagði Úlfar Eysteinsson
matreiðslumaður við hina dómar-
ana eftir að hafa rannsakað Gilja-
gaursglasið vel með flestum skiln-
ingarvitum sínum. „Sjáið hvað
þetta eru góð vinnubrögð og sjáið
froðuna!“ Giljagaur fékk þrisvar
sinnum hæstu einkunn og þrjá
í einkunn frá Arnrúnu Magnús-
dóttur sem gaf þó froðunni stór-
an plús.
Hinn vinsæli Tuborg jólabjór
fær aðeins 2,1 í einkunn frá dóm-
nefndinni en verstur þótti Doppel-
bock frá Vífilfelli.
„Nú mega
jólin koma“
Giljagaur frá Borg brugghúsi er besti íslenski
jólabjórinn í ár. Fréttablaðið fékk fjóra vel valda
einstaklinga til að meta íslenska jólabruggið.
4,5 3,8
4,0
3,5 3,0 2,1
1. SÆTI
GILJAGAUR (10%)
Borg brugghús /
Ölgerðin
3. SÆTI
JÓLA GULL (5,2%)
Ölgerðin
2. SÆTI
JÓLABJÓR (5%)
Ölvisholt
3,5
4-6. SÆTI
JÓLABJÓR (5%)
Gæðingur
4-6. SÆTI
VÍKING JÓLABJÓR (5%)
Vífilfell
3,5
4-6. SÆTI
MALT JÓLABJÓR (5,6%)
Ölgerðin
7. SÆTI
JÓLA BOCK (6,2%)
Vífilfell
2,5
8. SÆTI
JÓLA KALDI (5,4%)
Bruggsmiðjan
9. SÆTI
TUBORG JÓLABJÓR (5,6%)
Ölgerðin
1,8
10. SÆTI
DOPPELBOCK (6,7%)
Vífilfell
„Þar kemur rauður! Þessi er bragð-
mikill. Finniði orange-bragðið? Þetta
er sko jólabjórinn. ÚLFAR
„Nú mega jólin koma.“ HILDUR
„Það er allt of mikið alkóhól fyrir
minn smekk.“ ARNRÚN
„Þetta er ekki partíbjór. Þetta er
veislubjór.“ SÓLMUNDUR
„Þessi hefur falleg-
ustu froðuna sem
ég hef séð hingað
til.“ ARNRÚN
„Mér finnst hann mýkri, það er
góð fylling í honum og það er
langt og gott eftirbragð.“ ARNRÚN
„Maður er náttúrulega alltaf að
hugsa um að para með mat. Þessi
gæti gengið með ostum og fiski.“
ARNRÚN
„Hann krefst ekki mikils af manni
þessi en gefur manni þó talsvert.
Draumasamband segi ég.“
SÓLMUNDUR
„Þetta er svolítill fylleríisbjór. Ég
tæki kippu af þessum.“
SÓLMUNDUR
„Hann er fínn, hann truflar mann
ekki, hann er ekkert eftirminni-
legur, hvorki á góðan né slæman
hátt.“ HILDUR
„Það er enginn þröskuldur.“ ÚLFAR
„Ég þykist þekkja hann; Þetta er
Tuborg jólabjór.“ SÓLMUNDUR
„Mér finnst þessi
voða klassískur.“
ARNRÚN
„Þarna kemur þessi remma
aftur.“ ARNRÚN
„Ég gæti drukkið nokkra svona.“
SÓLMUNDUR
„Hann svona sleppur. Ég veit
að hann yrði betri ef hann
væri kaldari. Hann yrði aðeins
frískari.“ ÚLFAR
„Það er eins og hann sé að reyna
aðeins meira heldur en hann er.
Það vantar herslumuninn.“ HILDUR
„Þetta þykir mér bara svo
óskaplega lélegt. Það er ekkert
við þetta.“ HILDUR
„Hann er eiginlega eins og
skúringavatn.“ ARNRÚN.
„Þetta er bara ómerkilegur bjór,
ég ætla bara að segja það.“
SÓLMUNDUR
„Ég finn bragð af smákökum og það er
jólalegt.“ HILDUR
„Þetta finnst mér vera jólabjór.“ ARNRÚN
„Ég er alveg sammála þeim um að það
sé köku- og kryddkeimur. Mér finnst
það bara passa vel. Ég sé ýmislegt af
jólunum í þessum.“ ÚLFAR
„Ég er í smá klemmu. Hann minnir
mig á jólin en mér finnst hann ekkert
rosalega góður.“ SÓLMUNDUR
„Góðan daginn.“ ÚLFAR
„Það er einhver svona skemmti-
leg rist, svona kandís.“ ARNRÚN
„Mér finnst ég vera aðeins
merkilegri maður þegar ég drekk
þennan bjór. Það eru kannski
bara almenn áhrif áfengis.“
SÓLMUNDUR
„Það væri mjög gott að fá sér
einn svona eftir vinnu í róleg-
heitum.“ HILDUR
„Þetta lítur út fyrir að vera allt of
dökkt fyrir minn smekk.“ HILDUR
„Hann skilur ekkert eftir.
Fyrst kemur eitthvað og svo
kemur ekkert. Hvernig er hægt að
brugga svona bjór?“ ÚLFAR
„Hann er rosalega kröftugur og
svo er hann búinn. Ekkert eftir-
bragð.“ ARNRÚN
„Hann bara hverfur úr bragðlauk-
unum.“ SÓLMUNDUR
„Það er rosalega góð lykt af
honum.“ HILDUR
„Fallegur á litinn líka.“ SÓLMUNDUR
„Já, ég gæti alveg gleymt þessum
bjór. Ég er ekki viss um að ég
myndi kaupa hann en ég myndi
taka við honum.“ SÓLMUNDUR
„Ég mundi ekki klára hann.“
ARNRÚN
„Þennan bjór mundi ég ekki drekka
aftur og mig langar að hitta þann
mann sem finnst þessi bjór góður.“
SÓLMUNDUR
„Það er svo vond lykt af þessu.
Þetta er eins og blaut ull eða eitt-
hvað. Ég kvíði fyrir því að smakka
þennan.“ HILDUR
„Mér finnst þessi bara leiðinlegur.
Bragðið er alveg í lagi.“ ARNRÚN
„Nefið var sett fyrir ofan munninn
svo maður setji ekki hvað sem er
ofan í sig.“ ÚLFAR
GILJAGAUR ÞYKIR BESTUR AF ÍSLENSKU JÓLABJÓRTEGUNDUNUM FYRIR JÓLIN 2012
DÓMARARNIR FJÓRIR
Sólmundur Hólm Sólmundarson, eftirherma og skemmtikraftur.
Sólmundur er mögulega einn vinsælasti afleysingaútvarpsmaður landsins.
Hildur Lilliendahl Viggósdóttir, femínisti og starfsmaður Reykjavíkur-
borgar.
Arnrún Magnúsdóttir, veitingakona á veitingastaðnum Friðriki V við
Laugaveg og leikskólakennari.
Úlfar Eysteinsson, matreiðslumeistari á Þremur Frökkum við Baldursgötu.
AÐFERÐIN
Smökkunin var svokallað blind-
smakk; Dómar arnir vissu ekki
hvaða tegund þeir voru beðnir um
að dæma fyrr en allar tegundir
höfðu verið smakkaðar. Röð
tegundanna ofan í dómendur var
handa hófskennd. Hver dómari gaf
hverri tegund einkunn frá 1 upp í
5. Meðaltal einkunnanna var svo
reiknað til komast að niðurstöðu.
SKÁL Dómararnir skáluðu fyrir ljósmyndara Fréttablaðsins þegar þeir smökkuðu
Giljagaur, besta íslenska jólabjórinn í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI