Fréttablaðið - 17.11.2012, Síða 46
KYNNING − AUGLÝSINGSpjaldtölvur LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 20122
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Benedikt Freyr Jónsson, benediktj@365.is, s. 512-5411
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Nýr iPad Mini
Snilld í hendi
iJól í Kringlunni
Góð þjónusta
og góð verð
istore.is
566 8000
iPad
Fjórða kynslóðin.
Tvöfalt hraðari
og ótrúlega skarpur
Apple TV
Snilldin í stofunni
iPod
Í öllum regnbogans litum
Nýr iMac
Þynnri, öflugri og fallegri.
Væntanleg
iPhone 5
Þynnri, léttari og öflugri
Foreldrar lítillar stúlku með taugahrörnunarsjúkdóm-inn SMA1 sendu mér tölvu-
póst, í nóvember 2010 og spurðu
mig hvort spjaldtölva gæti nýst
lamaðri dóttur þeirra og hvort ég
vissi um eitthvert forrit sem gæti
hentað henni. Ég fór að leita mér
upplýsinga á netinu og fann sögu
af dreng í Bandaríkjunum sem
stríddi við sömu fötlun og stúlk-
an. Hann hafði fengið spjaldtölvu
í hendurnar fyrir rælni og hafði
strax farið að nota skjáinn,“ út-
skýrir Sigurður Helgason, eigandi
iStore í Kringlunni en kynni hans
af litlu stúlkunni urðu til þess að
hann hefur gefið fötluðum börn-
um spjaldtölvur undanfarin tvö ár.
„Ég hafði séð viðtöl við foreldra
stúlkunnar en þekkti ekkert til
þeirra annars. Ég fann forritið sem
hafði hjálpað bandaríska drengn-
um, keypti það og fann einnig
fleiri forrit og bækur fyrir spjald-
tölvur sem hentaði aldri stúlkunn-
ar. Ég fór svo til fjölskyldunnar og
leyfði litlu stúlkunni að prófa. Eftir
fimm mínútur var hún farin að
nota skjáinn og fletta bók í spjald-
tölvunni en það var í fyrsta skipti á
sem hún gat haft einhverja stjórn á
umhverfinu. Sex mánuðum síðar
var hún farin að keyra hjólastól.“
Sigurður segir upplifunina hafa
verið ljúfa að fylgjast með stúlk-
unni nota spjaldtölvuna í fyrsta
sinnið.
„Það var ótrúlegt að upp-
lifa þetta með þeim. Foreldrarn-
ir felldu hreinlega tár þegar þeir-
sáu hvað dóttir þeirra gat gert. Þá
ákvað ég að gefa henni spjaldtölv-
una. Þar með kviknaði einhver
neisti þegar ég sá að hægt var að
hafa áhrif á líf þessara barna.“
Alls hafa nú fimmtán börn feng-
ið spjaldtölvu að gjöf frá Istore síð-
astliðin tvö ár og verður ekkert lát
þar á að sögn Sigurðar.
„Við ætlum að reyna að gera
þetta í hverjum mánuði. Þetta
hefur gert kraftaverk. Foreldrar,
vinir og vandamenn fatlaðra barna
senda okkur ábendingar um börn
sem gætu haft not fyrir spjaldtölvu
á iborn@istore.is. Ég skoða ábend-
ingarnar með fagfólki hvar þörfin
er og hvar spjaldtölva gæti hjálpað.
Börnin sem hafa fengið spjald-
tölvur frá okkur eiga við mismun-
andi fötlun að stríða, sum eru
mikið fötluð og önnur eru á ein-
hverfu rófi. Ég man eftir einum
dreng sem vildi ekki sjá spjald-
tölvuna til að byrja með en eftir
nokkra mánuði var hann farinn að
nota hana til að tjá sig og leika sér
en foreldrarnir höfðu aldrei gert
ráð fyrir þeirri getu hjá honum.“
Sigurður fær gjarnan lýsing-
ar frá foreldrum barnanna á því
hvernig spjaldtölvan hefur nýst
þeim í daglegu lífi. Hann segir
spjaldtölvurnar í mörgum tilvik-
um hafa gerbreytt lífi fjölskyld-
unnar. „Ég hef fengið sögur af
börnum sem hafa ekkert getað tjáð
sig fyrr en með spjaldtölvunni og
foreldrarnir hafa þá í raun verið
að kynnast þeim upp á nýtt. Þetta
er orðin ástríða hjá mér, það er svo
gaman og gott að láta gott af sér
leiða,“ segir Sigurður.
Í hóp sem heitir iBörn á Face-
book skiptast foreldrar á upp-
lýsingum um heppileg forrit og
hugbúnað og deila reynslu sinni.
Þannig hefur verkefnið undið upp
á sig og Sigurður stefnir á að það
stækki enn frekar.
„Ég fékk Krumma Björgvins og
Legend til að semja fyrir mig lag og
útsetja það algerlega á spjaldtölvu.
Það verður gefið út til styrktar mál-
efni tengdu fötluðum börnum. Svo
er einnig á prjónunum að setja upp
styrktartónleika á næstunni, en
ekki komin dagsetning á þá enn
þá.“ segir Sigurður.
Spjaldtölvurnar geta gert kraftaverk
Sigurður Helgason opnaði nýja iStore verslun í Kringlunni í síðasta mánuði en hann stofnaði verslunina upphaflega í Tryggvagötu 17
fyrir tveimur árum undir nafninu iphone.is. Sigurður hefur gefið fötluðum börnum spjaldtölvu að gjöf allt frá stofnun
verslunarinnar en hann segir ákveðna upplifun hafa kveikt með honum þá hugmynd að verkefninu iBörn.
Hjá Istore tölvuverslun fást allar vörur Apple en verslunin var opnuð í Kringlunni í síðasta
mánuði. Sigurður Helgason, eigandi Istore, hefur gefið spjaldtölvur til fatlaðra barna.
MYND7GVA
VINSÆLASTA TASKAN HJÁ ISTORE
Mest selda taskan er ZooGue-taskan en hún býður upp á frábæra
notkunarmöguleika.
Hægt er að festa töskuna á höfuðpúðana í bílnum og bjóða þannig
farþegunum upp á afþreyingu á langferðum.
Taskan er einnig gott statíf á borði og einnig hægt að sitja með hana í
fanginu. Stamt efni er undir töskunni svo hún er mjög stöðug á borði
og hefur einnig viðnám við
fatnaði svo hún rennur
ekki úr fangi notandans.
Hægt er að stilla hallann
á spjaldtölvunni í
töskunni eftir því
hvaða aðstöðu er
þörf.
Taskan er úr ekta
leðri og fæst í
þremur litum,
svörtum, gráum
og bleikum.
Verð 8.990 krónur.