Fréttablaðið - 17.11.2012, Page 51
| FÓLK | 3HELGIN
Umhverfislistaverk sem nemendur Fjölbrautaskólans í Breiðholti, ásamt sex breskum gestanem-
endum, hönnuðu og unnu saman verður
vígt á sunnudaginn á Markúsartorgi við
Gerðuberg í Breiðholti. Um er að ræða
verkefni á vegum Menntaáætlunar Evr-
ópusambandsins en Fjölbrautaskólinn
í Breiðholti hefur tekið þátt í slíku sam-
starfi undanfarin tvö ár. Elín Rafnsdóttir
er listnámskennari við skólann og hefur
leitt verkefnið. Hún segir skólann vera í
samstarfi við fimm aðra skóla í Evrópu
og hafa krakkarnir meðal annars ferðast
til Hollands, Englands og Rúmeníu í
tengslum við verkefnin. „Við fengum
sex breska nemendur í heimsókn sem
dvöldu hér í þrjá daga. Hugmyndin að
listaverkinu sjálfu er komin frá íslensku
krökkunum sem töluðu við þá bresku.
Þaðan fengu þeir góð viðbrögð og úr
varð þetta samvinnuverkefni um um-
hverfislistaverk sem heitir Regnbogabrú.
Þar er verið að vísa í brúna Bifröst í
norrænni goðafræði sem var brú á milli
tveggja heima.“ Verkefnið er einnig
samstarfsverkefni ólíkra deilda innan
skólans. Regnbogabrúin er unnin úr
gostappaflöskum en eitt skilyrða verk-
efnisins er að verkin séu úr endurunnum
vörum. Elín segir krakkana hafa setið
mörg kvöld í röð í Endurvinnslunni, tínt
tappa af gosflöskum og skemmt sér vel.
Munstur Regnbogabrúarinnar eru
bæði hefðbundin gömul íslensk og bresk
munstur. Íslensku krakkarnir sóttu
munstrin sín í Sjónabókina sem Heimilis-
iðnaðarfélag Íslands gaf út fyrir nokkrum
árum.
Vígsla brúarinnar er jafnframt hluti af
verkefninu „Torg í biðstöðu“ og hverfis-
hátíðinni Unga Breiðholt. „Reykjavíkur-
borg hafði samband við okkur þegar þau
fréttu af verkefninu og erlenda samstarf-
inu og spurðu hvort við vildum koma
inn í verkefnið. Þar er einmitt verið að
reyna að blása lífi í líflaus torg borgar-
innar.“ Breiðhyltingar halda hverfishá-
tíðina Unga Breiðholt í tíunda sinn þessa
dagana og er vígsla Regnbogabrúarinnar
hluti af dagskrá hátíðarinnar. „Krakk-
arnir verða með smá gjörning í tengslum
við vígsluna. Það eru ljós inni í verkinu
sem mynda tvo regnboga. Hópurinn
mun standa báðum megin við regnbog-
ann og úða vatni yfir verkið þannig að
alvöru regnbogi mun myndast.“ Vígslan
fer fram kl. 14 á sunnudaginn á Markús-
artorgi við Gerðuberg.
GOSTAPPAR BREYTAST Í
REGNBOGABRÚ
ELÍN RAFNSDÓTTIR,
listnámskennari við FB.
MYND/ELÍN RAFNSDÓTTIR
Á TORGINU Listaverkið
stendur á Markúsartorgi
við Gerðuberg.
MYND/ELÍN RAFNSDÓTTIR
Vertu vinur
á Facebook
Skoðið laxdal.is-kjólar
Skeifan 3j | Sími 553 8282 | www.heilsudrekinn.is
Gjafamarkaður
ALLA
SUNNUDAGA
FRÁ KL. 11-17
HANDUNNIN
LIST FRÁ KÍNA
MIKIÐ ÚRVAL AF:
• H e i l s u v ö r u m
• H a n d g e r ð r i l i s t
• P o s t u l í n i
• B o r ð d ú k u m
• K í n a f ö t u m
• G ó l f t e p p u m
• L ö m p u m
• B l ó m a p o t t u m
• T e o g t e s e t t u m
o f l . o f l .
Kringlan 553-5111
Smáralind 554-7980
Erum á Facebook Oasis Ísland
KRINGLAN & SMÁRALIND