Fréttablaðið - 17.11.2012, Qupperneq 52
FÓLK|HELGIN
Hótel Reykjavík Natura hét áður hótel Loftleiðir og hefur jólahlað-borðið þar notið mikilla vin-
sælda í gegnum árin. „Dyggur aðdá-
endahópur hefur komið til okkar í mörg
ár sem ekki verður svikinn á nýjum og
endurbættum stað sem hlotið hefur
nafnið Satt.“
Jólahlaðborðið er með hefðbundnum
hætti þar sem síldin og purusteikin
leika stórt hlutverk eins og svo oft áður.
Þá verður sérborð með gómsætum
grænmetisréttum, salötum og köldum
kalkúnabringum fyrir þá sem vilja hvíla
sig á kjötinu.“
Jólahlaðborð Satt eru í hádeginu frá
kl. 11.30 og á kvöldin frá kl. 19.00.
„Um helgar mun hátíðarstemningin
svo ná hámarki yfir jólamatnum með
undurfögrum tónum Guðrúnar Árnýjar
Karlsdóttur, Kristínar Stefánsdóttur og
Agnars Más Magnússonar, sem skiptast
á að spila og syngja ljúf lög fyrir gesti.“
Á sunnudögum í desember verður
fjölskyldan höfð í fyrirrúmi og jóla-
sveinar mæta á staðinn og kæta krakk-
ana, bæði í hádeginu og á kvöldin. Jóla-
hlaðborðin hefjast þann 15. nóvember.
Nánari upplýsingar er að finna á heima-
síðu Satt: www.sattrestaurant.is.
SATT Á REYKJAVÍK
NATURA
Hótel Reykjavík Natura Sígild hátíðastemning á nýjum og
glæsilegum veitingastað. Hefðbundið jólahlaðborð og sérstakt
grænmetisréttahlaðborð.
Hingað kemur tryggur hópur viðskiptavina ár eftir ár á jólahlaðborð. Það veit að það mun fá góða hangikjötið sitt, hamborgarhrygginn, purusteikina, hreindýrapatéið, reykta
og grafna laxinn ásamt öðru góðgæti.“
HÁDEGISJÓLAHLAÐBORÐIÐ
VOX er með hádegisjólahlaðborð og góðan hefðbundinn jólamat
í léttri útfærslu. „Bráðskemmtilegt jólaafbrigði af sushi verður
einnig á boðstólum svo allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Jólahlaðborðið hefst 19. nóvember og er alla daga fram til 21.
desember. Vinsæla brunchinn okkar færum við einnig í fallegan
jólabúning sem hefst laugardaginn 24. nóvember og stendur til 22.
desember.“
KVÖLDJÓLAHLAÐBORÐ
Á Hilton Reykjavík Nordica eru kvöldjólahlaðborð haldin í stóra
veislusal hótelsins öll föstudags- og laugardagskvöld frá 23.
nóvember fram til 15. desember. „Kvöldjólahlaðborðið er með afar
hátíðlegu yfirbragði, með á fjórða tug rétta, bæði hefðbundna og
girnilega grænmetisrétti. Fríður hópur tónlistarmanna mun tryggja
sannan jólaanda og leika fallega jólatónlist undir borðhaldinu.
Pálmi Sigurhjartarson, Magni Ásgeirsson, Erna Hrönn Ólafsdóttir
og Hreimur Örn Heimisson munu skipta helgunum á milli sín fram
til jóla.
Allar upplýsingar um jólahlaðborð VOX og Hilton Reykjavík Nor-
dica er að finna á www.vox.is.
VOX Á HILTON
Hilton Reykjavík Nordica Vinsælt jólahlað-
borð VOX á Hilton Reykjavík Nordica er orðið
fastur liður aðventunnar hjá mörgum.
Slippbarinn á Icelandair hótel Reykjavík Marina er nýjasti staður Icelandair og hefur slegið rækilega
í gegn, bæði sem kokteilbar og veitinga-
staður. Lykilorð jólahlaðborðsins eru ein-
föld. „Við elskum léttan mat sem bráðnar í
munni og lætur okkur líða vel, við elskum
ekki þungan og gamaldags mat, við elskum
kokteila og góða stemningu. Því ríðum við
á vaðið með mjög skemmtilegan og öðru-
vísi matseðil. Á boðstólum verða til dæmis
gómsætir kalkúnaborgarar í dökku brauði
með rauðkáli, trönuberjum og salvíu-
majónesi og eftirrétturinn frómasinn henn-
ar mömmu ásamt fjölda annarra nýstár-
legra rétta. Hanastélin okkar spila einnig
stórt hlutverk í fjörinu og eru margir réttir
byggðir í kringum þá, enda elskum að
skála við uppáhaldsfólkið okkar.“
Jólahlaðborð Slippbarsins verður í há-
deginu og á kvöldin 22., 23. og 24. nóvem-
ber og svo alla daga frá 29. nóvember
til jóla. Nánari upplýsingar er að finna á
heimasíðunni www.slippbarinn.is.
SLIPPBARINN Á
REYKJAVÍK MARINA
Hótel Reykjavík Marina Nýjasti staður Icelandair býður upp á
skemmtilegt og öðruvísi jólahlaðborð. „Við elskum öðruvísi.“
Stefán Viðarsson er yfirmatreiðslumeistari á veitingastöðum Icelandair hótelanna, Satt á Reykjavík Natura, Slippbarnum á Reykjavík Marina og VOX Restaurant á Hilton Reykjavík Nordica. „Þar sem við rekum þrjá mismunandi veitingastaði höfum við tækifæri til að bjóða upp á þrjú ólík jólahlað-
borð þessi jól. Þar með komum við til móts við mismunandi þarfir gesta okkar,“ segir Stefán.
JÓLIN KOMIN
HJÁ ICELANDAIR
HÓTELUNUM
ICELANDAIR KYNNIR Njótum aðventunnar saman með gleði og gómsætum
jólamat. Ótrúlega fjölbreyttan matseðil er að finna á jólahlaðborðum
veitingastaða Icelandair hótelanna.
GLÆSILEGUR SALUR
VOX er með hádegisjólahlað-
borð og góðan hefðbundinn
jólamat í léttri útfærslu.
VIÐ ELSKUM AÐ SKÁLA
Við elskum að skála við
uppáhaldsfólkið okkar í
góðri stemningu.
SATT OG HOLLT Sérborð með góm-
sætum grænmetisréttum, salötum og
köldum kalkúnabringum verður einnig í
boði fyrir þá sem vilja hvíla sig á kjötinu.
STEFÁN VIÐARSSON
yfirmatreiðslumeistari.