Fréttablaðið - 17.11.2012, Page 73
KYNNING − AUGLÝSING Spjaldtölvur17. NÓVEMBER 2012 LAUGARDAGUR 5
Helsti kostur spjaldtölva er að þær eru einfaldar og fljót-legar í notkun. Ekki er leng-
ur nauðsynlegt að opna fartölvuna
og bíða eftir langdreginni ræsingu
stýrikerfis til að fá aðgang að upp-
lýsingum og af-
þreyingu held-
ur er nóg að
grípa spjaldið
og smella á einn
takka.
Spjaldtölvur
hafa þróast mjög
mikið og hratt
á örfáum árum.
Tækin eru orðin
mjög öflug og ræður við flóknari
og þyngri hugbúnað en nokkur gat
ímyndað sér fyrir nokkrum árum.
Tækin eru mörg hver með rispufría
snertiskjái sem eru með fullkomna
háskerpuupplausn.
Mikið úrval
Raftækjasalinn ELKO hefur tekið
þátt í spjaldtölvuvæðingu Íslands
með því að bjóða upp á það helsta
sem hefur verið í gangi hverju sinni.
ELKO býður nú upp á margar gerð-
ir spjaldtölva í verslunum sínum í
ELKO Lindum, Skeifunni, Granda,
Fríhöfn og vefverslun ELKO.is. Úr-
valið er hægt að skoða á ELKO.is en
þar er hægt að bera saman eiginleika
spjaldtölva og verð.
Óttar Örn Sigurbergsson, inn-
kaupastjóri ELKO, segir að spjald-
tölvur séu búnar að vera í gríðarleg-
um vexti seinustu þrjú ár. Hann segir
að spjaldtölvur séu kærkomin viðbót
við raftæki heimilisins enda séu þær
mjög aðgengileg og einföld upplýs-
inga- og afþreyingarveita. Spjald-
tölvur eru mjög þægilegar í notkun
með einföldum stýrikerfum sem eru
hönnuð fyrir snertiskjái. Spjaldtölv-
urnar bjóða upp á allt það helsta fyrir
notandann, svo sem tónlist, bækur,
kvikmyndir, internetið, myndavél,
leiki, útvarp, upptökutæki, sam-
félagsmiðla, GPS-staðsetningu og
svo öll hin ótalmörgu „öpp“ sem eru
í boði.
Samsung Galaxy Note 10.1
Að sögn Óttars er skemmtilegasta
spjaldtölvan án efa Samsung Galaxy
Note 10.1. Samsung hefur komið eins
og stormsveipur inn á spjaldtölvu-
markaðinn og veitt öðrum vöru-
merkjum harða samkeppni. Sam-
sung Galaxy Note-spjaldtölvurnar
fóru fyrst í sölu á þessu ári og hafa
selst mjög vel.
Samsung Galaxy Note er búin
Android 4.0-stýrikerfinu sem er
orðið rótgróið stýrikerfi fyrir bæði
spjaldtölvur og síma. Innan skamms
mun Galaxy Note 10.1 fá uppfærslu
í Android 4.1 JellyBean sem er það
nýjasta á markaðinum. Aðalein-
kenni Note er stylus-penninn, „S
Pen“, sem fylgir með en með honum
er hægt að skrifa niður hugmyndir
eða hvaða texta sem er. Penninn veit-
ir einnig möguleika á að vinna með
myndir í Adobe PhotoShop Touch
en sá hugbúnaður fylgir með tæk-
inu. Ekki skemmir fyrir að þetta ein-
tak af Galaxy Note er með 10.1“ skjá
og 5 megapixla myndavél sem auð-
veldar alls kyns myndvinnslu. Óttar
segir að mögulega gæti þessi spjald-
tölva hentað vel þeim sem eru í fjar-
námi þar sem möguleiki er á að horfa
á myndband á annarri hlið skjásins á
meðan notandinn skrifar niður glós-
ur eða athugasemdir hinum megin.
Þá er einnig hægt að taka skjáskot í
hvaða „appi“ sem er og skrifa eða
teikna inn á það til að senda vinum.
Má þar nefna athugasemdir á kort í
Google Maps eða einfaldlega myndir
sem hægt er að senda vinum.
Samsung Galaxy Note 10.1 er með
1.9 megapixla myndavél að framan
sem gerir þér kleift að tala við vini
og vandamenn í gegnum Skype eða
Facebook. Tækið er með 16 GB inn-
byggt minni og minniskortarauf
fyrir allt að 64 GB í við-
bót. Örgjörvinn er ekki
af verri endanum, Quad-
Core 1.4Ghz sem dugar fyrir
krefjandi þarfir notandans. Skjár-
inn er með 10.1“ rispuvörðu gorilla-
gleri og 1280x800 punkta upplausn.
Tækið spilar því myndbönd í há-
skerpu 1080p upplausn.
Fyrir þá sem eru mikið á ferðinni
er tölvan bæði með þráðlausu neti
og 3G-gagnatengingu. Von bráðar
verður einnig til útgáfa fyrir sófa-
dýrin sem er eingöngu með WiFi. Til
viðbótar er einnig GPS-stuðningur
svo notendur viti nú alveg örugglega
hvar þeir eru á landinu. Spjaldtölv-
an er því mjög hentug í bílinn hvort
sem notandinn leyfir krökkunum að
horfa á teiknimyndir á hauspúðan-
um eða notar tölvuna sem GPS-tæki
í framrúðunni.
Margvíslegir tengimöguleikar
Samsung er með spjaldtölvur í stöð-
ugri vöruþróun og mun ELKO fylgj-
ast grannt með því næstu árin. Óttar
telur að í framtíðinni muni spjald-
tölvur tengjast mun meira öllum
tækjum heimilisins. Þar má nefna
þvottakerfið á þvottavélinni, hita-
stigið í ofninum, tóngæðin í hljóm-
tækjunum og lýsinguna í stofunni.
Nú þegar er Samsung með margvís-
lega tengimöguleika og getur not-
andi til dæmis tengt Samsung-sjón-
varpið sitt beint við spjaldtölvuna svo
hægt sé að horfa þráðlaust hvar sem
er í húsinu.
Fyrir tæknifælna og óvana not-
endur þá segir Óttar að þeir sem hafi
prófað spjaldtölvur séu sammála um
að það sé sáraeinfalt að læra á þær.
Samsung Galaxy Note 10.1 spjald-
tölvan henti því öllum enda er not-
endaviðmótið einkar vel uppbyggt
og á hvers manns færi að vinna
með það. Í spjaldtölvukapphlaup-
inu mælir ELKO með Samsung Ga-
laxy Note 10.1. Tölvan kostar 119.995
krónur í verslunum ELKO.
Spjaldtölvur í gríðarlegum vexti
Spjaldtölvur hafa á stuttum tíma orðið eitt vinsælasta raftækið í verslunum landsins. Með spjaldtölvu geta neytendur á einfaldan hátt gripið í margmiðlunartæki sem svalar þörfinni
fyrir internet, kvikmyndir, tónlist, bækur og margt fleira. ELKO býður mikið úrval spjaldtölva en að mati innkaupastjórans er Samsung Galaxy Note 10.1 sú allra skemmtilegasta.
Óttar Örn
Sigurbergsson
GRANDI–L INDIR–SKE IFAN–VEFVERSLUN
. 10,1” snertiskjár (800x1280)
með Corning Gorilla gleri sem rispast
minna. Multi touch input. 1,4 GHz Quad
Core örgjörvi. 2GB RAM. Android stýrikerfi
(4.0 Ice Cream Sandwich). WiFi, DLNA.
3G, Bluetooth. 5 Mpix myndavél með Geo
Tagging. GPS stuðningur. Video í Full HD
1080@30fps. 16GB minni. Penni fylgir.
NÁKVÆMIR ÞRÝSTISKYNJARAR
Í SKJÁNUM GERA ÞÉR KLEIFT AÐ
TEIKNA NÁKVÆMAR LÍNUR
ADOBE PHOTOSHOP TOUCH
FYLGIR UPPSETT MEÐ TÖLVUNNI
S-NOTE SNIÐSKJÖL AUÐVELDA ÞÉR
AÐ BÚA TIL PÓSTKORT, LÍNURIT
OG ÖNNUR FORM
Quad Core örgjörvi
2GB RAM
Hægt að vera með 2
glugga opna í einu eða 10.690 kr. á mánuði
miðað við 12 mánaða vaxtalaust lán, alls 128.275 kr.
119.995
SAMN8000GREY
Jelly Bean uppfærsla
væntanleg
BREYTTU MYNDUM, LITAÐU
OG SETTU INN MINNISBLÖÐ