Fréttablaðið - 17.11.2012, Qupperneq 78
17. nóvember 2012 LAUGARDAGUR| HELGIN | 46
„Goodfellas er uppáhaldsmyndin mín. Hún er svo
mikið stórvirki, hröð, ofbeldisfull og svo er
hún líka fyndin. Svo er frábært að sjá
períóduna í gegnum myndina, Robert
de Niro er ungur og flottur í upphafi
myndarinnar á sjötta áratugnum og
lúinn og hallærislegur í lok hennar
sem gerist á þeim níunda. Tónlistin í
myndinni er líka ótrúlega góð. Ég veit ekki
hvort myndin er hápunkturinn á ferli Scorsese en
mér finnst hún óaðfinnanlega gerð, þvílík leik-
stjórn. Ég hef séð hana nokkrum sinnum og mér
finnst hún besta mynd hans,“ segir Ari Eldjárn
grínisti.
➜ Goodfellas
„Taxi Driver er flottasta mynd Scorsese
að mínu mati, aðrar myndir
sem hann hefur gert komast
ekki með tærnar þar sem
hún og Raging Bull hafa
hælana. Taxi Driver tekst
á áhugaverðan hátt á við
ofbeldishyggju og félagsleg
vandmál í Bandaríkjunum á 8.
áratugnum. Robert De Niro er töfrum
líkastur í myndinni og stíltilraunir
eru dæmi um þá grósku sem ríkti í
bandarískri kvikmyndagerð á þessum
tíma. Af þeim myndum sem Scorsese
hefur gert nýlega er reyndar ein sem
er í algjöru uppáhaldi hjá mér– það er
No Direction Home, heimildarmynd
um persónuleika, tónlist og feril Bobs
Dylan. Leiðarþráðurinn í myndinni er
ríkulegt viðtal við Dylan sjálfan þar sem
hann rifjar upp feril sinn og talar meðal
annars um áhrifavalda, sem Scorsese
setur síðan í víðtækara samhengi svo
úr verður mósaíkmynd af einum helsta
snillingi 20. aldar tónlistarsögu og
því menningarumhverfi sem mótaði
hann,“ segir Heiða Jóhannsdóttir
kvikmyndafræðingur.
➜ Taxi Driver (og No Direction Home)
„Ég held svo mikið upp á Robert De Niro. Hann
er fáránlega góður í myndum Scorsese
og sérstaklega í Raging Bull. Hann
gengur mjög langt sem leikari og
bætti á sig 30 kílóum fyrir hlut-
verkið, byrjaði á því að massa sig
mikið upp til að geta verið boxari
í góðu formi. Í sömu mynd kemur
hann einnig fram akfeitur þegar ferillinn
hans og lífið eru komin í vaskinn. Annars finnst
mér mjög erfitt að velja á milli þriggja mynda,
Raging Bull, Taxi Driver og Mean Streets, þær
eru allar frábærar,“ segir Vera Sölvadóttir
þáttagerðarmaður.
➜ Raging Bull
GÓÐIR
GÆJAR
OG NAUT
Í FLAGI
Bestu myndir Scorsese skarta Robert de Niro í aðalhlutverki
Bandaríski kvikmyndaleikstjórinn Martin
Scorsese fagnar sjötugsafmæli í dag. Ferill
Scorsese, sem er einn áhrifamesti leikstjóri
kvikmyndasögunnar, hófst í heimaborginni
New York árið 1967. Síðan þá hefur hann
leikstýrt meistaraverkum á borð við Raging
Bull, Taxi Driver, Goodfellas og The Departed
auk þess að gera nokkrar heimildarmyndir.
Hér er stiklað á stóru yfir feril Scorsese.
72 ÓSKARSTILNEFNINGAR
Myndir Scorsese hafa fengið 72 Óskarstilnefningar og hlotið 24 Ósk-
ara. Scorsese hefur sjö sinnum verið tilnefndur fyrir bestu leikstjórn
en aðeins unnið einu sinni fyrir myndina The Departed. Myndirnar
sem hann var tilnefndur fyrir eru Hugo, The Aviator, Gangs of New
York, Goodfellas, The Last Temptation of Christ og Raging Bull.
133 MÍNÚTUR
Meðallengd kvikmynda Scorsese
er 133 mínútur. Stysta myndin er
Boxcar Bertha sem er 88 mínútur
en sú lengsta er George Harrison:
Living in the Material World sem
er 208 mínútur að lengd. Lengsta
leikna myndin er Casino sem er 178
mínútur.
BESTU MYNDIRNAR
Scorsese hefur leikstýrt fjölmörgum frábærum myndum, meðaltalsein-
kunn mynda hans á kvikmyndavefjunum IMDb og Rotten Tomatoes
(RT) endurspeglar það. Myndir Scorsese fá 7,5 að meðaltali á IMDb
og 84% á RT. Ef mark er takandi á meðaltali einkunna mynda hans
á vefjunum tveimur þá eru myndirnar hér fyrir neðan bestu myndir
leikstjórans.
TÓNLISTIN
Notkun Scorsese á tónlist hefur í gegnum tíðina
verið einstaklega vel heppnuð. Hljómsveitin Rolling
Stones hefur verið sérstaklega áberandi í lagavali
leikstjórans allt frá því að hann notaði uppáhalds
Rolling Stones lagið sitt, Jumpin‘ Jack Flash, í
myndinni Mean Streets árið 1973. Árið 2008 kom
út heimildarmynd Scorsese, Shine a Light, sem
fjallar um hljómsveitina.
VERÐLAUNALEIKUR
Sautján leikarar hafa verið tilnefndir til óskars-
verðlauna fyrir besta leik í aðal- eða aukahlutverki
fyrir leik sinn í Scorsese-mynd. Fimm þeirra unnu
óskarsverðlaun, þau Ellen Burstyn, Robert De Niro,
Paul Newman, Joe Pesci og Cate Blanchett.
Scorsese hefur leikstýrt tuttugu og fimm
myndum í fullri lengd. Fyrsta myndin var
frumsýnd árið 1967, hún hét upprunalega I
Call First en nafni hennar var síðar breytt í
Who‘s That Knocking at My Door. Myndin er
90 mínútur og fær 6,8 á IMDb.
Mynd Frumsýnd Meðaltal einkunna IMDb og RT
Goodfellas 1990 92,5%
Taxi Driver 1976 91,5%
Raging Bull 1980 91%
The Last Waltz 1978 89%
The Departed 2006 89%
Mean Streets 1973 86,5%
Hugo 2011 85,5%
The King of Comedy 1983 85% 19
67
Fastagestir í myndum Scorsese
Robert De Niro
hefur leikið í
átta af myndum
Scorsese.
Leonardo DiCaprio
hefur leikið í fjórum
af síðustu fimm leiknu
myndum Scorsese.8 4
Mean Streets
Taxi Driver
New York, New York
Raging Bull
The King of Comedy
Goodfellas
Cape Fear
Casino
Gangs of New York
The Aviator
The Departed
Shutter Island
Scorsese hefur ítrekað notað sömu leikara í aðalhlutverk mynda sinna. Tvo hef-
ur hann notað í ríkari mæli en aðra, þá Robert De Niro og Leonardo DiCaprio.
$129.730.175
Meðaltalsinnkoma
miðasölu De Niro mynda
Scorsese í Bandaríkjunum. *
Meðaltalsinnkoma miðasölu
DiCaprio mynda Scorsese í
Bandaríkjunum. *
$78.918.314
Nánari upplýsingar og skráning
í síma 483 0300 og á www.hnlfi.is
Kyrrðardagar verða haldnir 15.-22. desember á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði.
Á dagskrá er meðal annars: Samverustund - Hugleiðing - Bæn og íhugun í þögn
- Yoga - Qigong - Hlustunarhópar - Messa - Leikfimi - Slökunartímar - Útivist og
fræðslufundir. Innifalið er ljúffengur og hollur matur, aðgangur að sundlaugum,
baðhúsi og líkamsrækt.
Haraldur Erlendsson yfirlæknir og Pétur Pétursson guðfræði-
prófessor auk sérhæfðra leiðbeinenda og ráðgjafa á hinum
ýmsu sviðum sjá um Kyrrðardaga. Verð frá 9.900 kr. pr. dag.
Kyrrðardagar eru fyrir þá sem vilja sinna andlegri og líkam-
legri heilsu og fá skjól til að rækta sinn innri mann.
Berum ábyrgð á eigin heilsu
Kyrrðardagar í Hveragerði
Brynjar Guðnason
brynjarg@frettabladid.is
Sigríður Björg Tómasdóttir
sigridur@frettabladid.is
* LEIÐRÉTT FYRIR VERÐBÓLGU MIÐAVERÐS.