Fréttablaðið - 17.11.2012, Qupperneq 80
17. nóvember 2012 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 48
TEIKNAR ÞÚ
FLOTTAR
MYNDIR?
Sendu okkur myndina þína í pósti til
Fréttablaðsins, Skaft ahlíð 24, 105 Reykjavík
eða með tölvupósti á krakkar@frettabladid.is
Himinhvolfið
Heilabrot
Skáldin leynast víða
Börn eru skáld eins og ljóðasýning í Safnahúsi Borgarfj arðar ber með sér. Sýn-
ingin er sett upp í tengslum við dag íslenskrar tungu og þar eru ljóð 10 og 11 ára
barna í skólum á svæðinu. Hér birtast þrjú þeirra og smá kynning á höfundunum.
HRAFNHILDUR ELÍN HINRIKSDÓTTIR
JÓHANN HLÍÐAR HANNESSON
GUTTORMUR JÓN GÍSLASON
Teikningar og texti: Bragi Halldórsson
18
„Eins og ég hef oft áður sagt er ég snillingur í sudoku“ tilkynnti
Róbert rogginn. „Svo ég ætla að leyfa ykkur að glíma við þessa gátu
svo ég eyðileggi ekki fyrir ykkur ánægjuna með því að leysa hana á
mettíma,“ svo setti hann nefið upp í loft með miklum gáfumanna
svip. Það sauð á Kötu. Gorgeirinn í Róberti fór í hennar fínustu,
en hún ætlaði ekki að láta það hindra sig í að leysa gátuna, öðru
nær, einn daginn myndi hún vera orðin það klár í sudoku að hún
gæti skorað hann á hólm. „Upp með ermarnar,“ sagði hún ákveðin.
„Sýnum Róberti að við getum leyst þetta léttilega.“
7 2 5 6
1 8 2
2 3 9 8 5
2 1 3
3 9 6 5 8 4
5 6 3 4
8 4 6 2 7
5 4 2 6 3
6 1 7 9 4
Getur þú leyst þessa
gátu og hjálpað
Kötu að verða klár
í að leysa sudoku
þrautir?
Hvað heitir þú og hvar áttu heima?
„Guttormur Jón Gíslason, ég á heima á
Hvanneyri.“
Finnst þér gaman að yrkja ljóð? „Allt
í lagi.“
Yrkir þú mikið? „Nei, en ég skrifa
stundum sögur og er að búa til helgar-
blað með vinum mínum.“
Áttu þér uppáhaldsljóð eftir aðra?
„Veit ekki– kannski eitthvað eftir
Bubba eða MC Gauta.“
Hvernig fékkst þú hugmyndina að
ljóðinu sem er á sýningunni í Safna-
húsi Borgarfjarðar? „Við áttum að
gera ljóð um áhugamál. Ég æfi sund
og var bara hugsa hvað gerist þegar ég
er að synda.“
Hvar áttu heima? „Ég á heima í Borg-
arnesi.“
Finnst þér gaman að yrkja ljóð? „Já.“
Yrkir þú mikið? „Já, þegar liggur vel
á mér.“
Áttu þér uppáhaldsljóð eftir aðra?
„Blessuð sólin elskar allt.“
Hvernig fékkst þú hugmyndina að
ljóðinu sem er á sýningunni í Safna-
húsi Borgarfjarðar? „Bara gott að
vita af öryggi í lífinu.“
Hvar áttu heima? „Á Mýrum.“
Finnst þér gaman að yrkja ljóð? „Já.“
Yrkir þú mikið? „Já.“
Áttu þér uppáhaldsljóð eftir aðra?
„Já, Lóan er komin eftir Pál Ólafsson.“
Hvernig fékkst þú hugmyndina að
ljóðinu sem er á sýningunni í Safna-
húsi Borgarfjarðar? „Ég var að mála
vinkonu mína og það mistókst og ég
gerði svart í kringum augun, eins og
kom fram í ljóðinu. Maður getur ekki
breytt sjálfum sér að öllu leyti.“
1. Maður nokkur fellur frá borði og skolar á land á eyðieyju. Eyjan er
um 100 kílómetra frá næsta landi. Hann kann ekki að synda, vatn-
ið er um 50 metrar að dýpt og eyjan hefur ekkert sem hann getur
búið til bát eða fleka úr. Án hjálpar manna né dýra tekst honum
samt að komast af eyjunni. Hvernig fer hann að því?
2. Þegar vökvi lendir á mér, sogast ekki dropi inn í mig. En ef of mikið
er hreyft við mér, gef ég frá mér vökva. Ef ég er lamin skipti ég lit.
Og fyrir er ég til í alls konar litum. Það sem ég umlyk er ótrúlega
flókið, en sjálf er ég mjög eftirgefanleg. Hver er ég?
SVÖR
1. Hann bíður eftir að vatnið frjósi, og gengur yfir það. Það var enginn
búinn að segja að þetta væri hitabeltiseyja! 2. Húðin.
Haustinu fylgir dimma því suðurhvelið
hallar sér að sólinni á þeim árstíma en
tunglið og stjörnurnar lýsa upp í kring-
um okkur á kvöldin og nóttunni þegar
heiðskírt er.
Gaman er að virða fyrir sér himin-
hvolfið á stjörnubjörtum kvöldum og
ekki spillir ef við þekkjum eina og eina
stjörnu með nafni. Þá getum við alltaf
leitað þær uppi aftur og finnst eins og
við höfum hitt gamlar vinkonur þegar
við komum auga á þær.
Fáar stjörnur eru jafn auðþekktar
og Pólstjarnan sem er nánast beint
yfir Norðurpólnum. Hún er bjartasta
stjarnan í stjörnumerkinu Litla birni og
í gömlum íslenskum ritum er hún oft
kölluð leiðarstjarna enda er hún oftast
sýnileg á næturhimninum. Hún er í um
820 ljósára fjarlægð.
Heimild/Vísindin og www.visindavefurinn.is
ÖRYGGI
Öryggi er
máttur sem er
mikilvægur.
Umhyggja er
líka mikilvæg.
Mamma og pabbi
veita mér
öryggi og umhyggju.
ÉG ER BARA ÉG
Ég er bara ég og vil ekki vera
neinn annar. Ég segi ekki
það sem ég hugsa, því ég
er með saum fyrir munni
og svart í kringum augu og
nasir. Ég er bara ég og get
ekki verið neitt annað.
SUNDLJÓÐ
Hendurnar ýta vatninu frá.
Innan skamms ég bakkann sá.
Horfi á botninn, lít til himins.
Horfi á botninn, lít til himins.