Fréttablaðið - 17.11.2012, Page 88

Fréttablaðið - 17.11.2012, Page 88
17. nóvember 2012 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 56 Ástkær sonur okkar, bróðir, mágur og frændi, VALDIMAR HILMARSSON Langholtsvegi 8, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum aðfaranótt mánudags 12. nóvember 2012, verður jarðsunginn frá Neskirkju, mánudaginn 19. nóvember, kl. 15.00. Guðjóna Valdimarsdóttir Grétar Friðleifsson Höskuldur Hilmarsson Oddfríður Ingvadóttir Þór Ingi Hilmarsson Elzbeita Konkol Kristjón Grétarsson Nína Þórarinsdóttir Gréta Grétarsdóttir Davíð Jón Kristjánsson og systkinabörn. Ástkær systir mín og frænka okkar, GUÐRÚN A. KRISTINSDÓTTIR píanóleikari, lést að hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð Akureyri laugardaginn 10. nóvember. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 20. nóvember kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á minningarsjóð Þorgerðar Eiríksdóttur hjá Tónlistarskóla Akureyrar. Margrét H. Kristinsdóttir Ásdís A. Gunnlaugsdóttir Bryngeir Kristinsson Kristín G. Gunnlaugsdóttir Bryndís Eriksdóttir Philibert Kristinn Fr. Eriksson og börn. Þökkum öllum þeim, sem veittu okkur aðstoð og stuðning vegna útfarar ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SJAFNAR B. GEIRDAL 26. október sl. Bragi Skúlason Anna Þuríður Kristbjörnsdóttir Hrafnhildur Skúladóttir Ólafur Jón Guðmundsson Hafdís Skúladóttir Magnús Árnason Sigríður Birna Bragadóttir Sigurjón Þorsteinsson Steinar Bragi Sigurjónsson Anna Jóna Sigurjónsdóttir Ámundi Steinar Ámundason Grímur Arnar Ámundason Hafdís Anna Bragadóttir Björn Eyjólfsson Sara Skúlína Jónsdóttir Arnar Már Símonarson Aron Frosti Arnarsson Arnar Jón Ólafsson Geirdal Skúli Bragi Magnússon Ásdís Elfa Einarsdóttir Árni Þórður Magnússon Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞORSTEINA SIGURBJÖRG ÓLAFSDÓTTIR Hraunbúðum, áður til heimilis að Hólagötu 9, Vestmannaeyjum, lést á Hraunbúðum fimmtudaginn 15. nóvember sl. Útförin verður gerð frá Landakirkju 24. nóvember nk. 14.00. Gunnar Ólafsson Erla Sigurðardóttir Sigurbjörg Ólafsdóttir Birgir Pálsson Sigurður Ólafsson Birna Jóhannesdóttir Guðbjörg Ólafsdóttir Eiríkur Bogason Sesselja Ólafsdóttir Gunnar Berg Sigurjónsson Ólöf Erla Ólafsdóttir Stig Gunnarsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir minn, afi og bróðir, FRIÐFINNUR ÁRNI KJÆRNESTED STEINGRÍMSSON er látinn. Jarðarförin verður auglýst síðar. Kristín Lillý Kjærnested Ísak Smári Geirsson Karen Anja Kjærnested Oddgeirsdóttir Rafael Fannar Oddgeirsson Svala Þyrí Steingrímsdóttir Þórarinn Smári Jónína Steiney Steingrímsdóttir Annie Kjærnested Steingrímsdóttir Margrét Lísa Steingrímsdóttir Nikulás Ásgeir Steingrímsson Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ERLA STEFÁNSDÓTTIR Þverbrekku 4, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi þann 12. nóvember. Útför hennar fer fram frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 21. nóvember kl. 13.00. Sérstakar þakkir til Heimahlynningar Landspítalans. Jóhann H. Jónsson Svandís Eyfjörð Steingrímsdóttir Sigurður Hafsteinsson Stefán Eyfjörð Steingrímsson Elsa Auður Sigfúsdóttir Baldvin Stefánsson Justé Okaite Erla Ruth, Birgitta Líf, Gunnar Bjarmi, Haukur Ingi, Davíð Kári. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug vegna fráfalls föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ERLINGS DAGSSONAR fv. aðalbókara. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Hrafnistu í Reykjavík. Þór Ingi Erlingsson Margrét Sigurðardóttir Vigdís Erlingsdóttir Steinar Geirdal Kristrún Erlingsdóttir Jón Sverrir Erlingsson Kristín Stefánsdóttir Kjartan Erlingsson Grétar Örn Erlingsson Bryndís Anna Bjarnadóttir barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, SVEINBJÖRNS JÓHANNESSONAR Heiðarbæ í Þingvallasveit. Steinunn E. Guðmundsdóttir Margrét Sveinbjörnsdóttir Auðunn Arnórsson Jóhannes Sveinbjörnsson Ólöf Björg Einarsdóttir Helga Sveinbjörnsdóttir Guðmundur Helgi Vigfússon Kolbeinn Sveinbjörnsson Borghildur Guðmundsdóttir og barnabörn. Elskulega móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN PÁLÍNA KARLSDÓTTIR frá Látrum í Aðalvík, sem lést á hjúkrunarheimilinu Eir laugar- daginn 10. nóvember, verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju mánudaginn 19. nóvember klukkan 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Auðlind náttúrusjóð. Bankareikningur Auðlindar er 0325-13-301930, kt. 580408-0440. Óli Örn Andreassen Annette T. Andreassen Inga Lovísa Andreassen Matthías Viktorsson Karl Andreassen Elma Vagnsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Við þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæru móður, tengdamóður, ömmu, langömmu, systur og mágkonu, KRISTÍNAR GUÐMUNDSDÓTTUR Lækjasmára 4, Kópavogi, sem lést þann 8. september sl. Sigríður Rafnsdóttir Guðmundur Þór Björnsson Margrét Júlía Rafnsdóttir Sigurður Haukur Gíslason barnabörn og langömmubörn María V. Guðmundsdóttir Viðar S. Guðjónsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GEIRFRÍÐUR SIGURGEIRSDÓTTIR frá Ásgerðarstaðaseli í Hörgárdal, Gránufélagsgötu 39, Akureyri, lést á dvalarheimilinu Hlíð 7. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Innilegar þakkir til starfsfólks á Einihlíð fyrir góða og hlýja umönnun. Halldór Sigmundur Eyfjörð Jónsson Heiðdís Björk Baldursdóttir Einar Hjaltason ömmu- og langömmubörn. Það verður líf og fjör í Grensáskirkju á milli 13 og 17 í dag þegar Hollvinasam- tök Grensásdeildar halda sinn árlega jólabasar. „Þetta er basar til styrkt- ar Grensásdeild sem er náttúrulega miðstöð endurhæfingar á landinu og vinnur kraftaverk á hverjum degi að mínu áliti,“ segir Guðrún Pétursdóttir formaður Hollvinasamtakanna. „Þarna verða til sölu rosalega fallegir munir af ýmsu tagi, á góðu verði auðvitað. Eitt af því sem gestum gefst kostur á að kaupa eru handgerðir kransar til þess að setja á útihurðir sem eru alveg ein- stakir og fallegir.“ Edda Heiðrún Backman verður á staðnum og selur nýja bók þeirra Þór- arins Eldjárns en í henni eru myndir sem Edda hefur málað með munnin- um og Þórarinn ljóðskreytt. „Og það sem meira er,“ segir Guðrún, „Edda gaf Hollvinunum, og Grensásdeild þar með, leyfi til að gera eftirprentanir af myndunum í bókinni og þær verða einnig til sölu á basarnum. Þetta eru dásamlegar myndir sem minna mann helst á Dimmalimm eftir Mugg.“ - fsb Myndir Eddu Heiðrúnar seldar á jólabasar MINNA Á DIMMALIMM Edda Heiðrún selur nýju bókina á basarnum. Fyrrverandi nemendur Húsmæðraskól- ans Óskar á Ísafirði hittast í Edinborg á morgun og minnast þess að 100 ár eru liðin frá stofnun skólans. Ein þeirra er Rannveig Hjaltadóttir sem var þar vet- urinn 1960-1961 og síðar handavinnu- kennari í fjórtán ár. Hún staðfestir að mikið standi til. „Við ætlum að hafa kaffihóf í tilefni þessara tímamóta og kokkarnir í Edinborg ætla að bera fram kökur með kaffinu sem oft voru bakaðar í skólanum. Við nemendurnir ætlum svo að syngja saman, lesa upp og rifja upp gamlar minningar.“ Rannveig kann sögu húsmæðraskól- ans Óskar upp á sína tíu fingur. „Skól- inn var fyrst settur í október 1912 að tilstuðlan kvenfélagsins Óskar. Aðal- hvatamaðurinn var Camilla Torfason sem áður hafði kennt við húsmæðra- skóla í Danmörku. Skólinn var til húsa á ýmsum stöðum í bænum framan af en árið 1948 var búið að byggja yfir hann glæsilegt hús, teiknað af Guðjóni Samú- elssyni. Fyrsta árið í nýja húsinu voru nemendur 40 en skólinn var byggður fyrir 32. Þannig var hann yfirfullur fyrstu árin. Þorbjörg Bjarnadóttir frá Vigur var skólastjóri í áratugi en á 8. áratugnum fór að halla undan fæti hús- mæðraskóla vegna breyttra þjóðfélags- hátta og árið 1990 var okkar skóli sam- einaður Menntaskólanum. Síðan fékk tónlistarskólinn húsið og nýtir það enn.“ Rannveig segir húsmæðraskólann hafa haft mikil áhrif á bæjarlífið, enda hafi mikill spenningur verið hjá karl- kyninu fyrir námsmeyjunum. „Þegar ég var í skólanum voru tíu sem trúlof- uðu sig eftir veturinn af 32. Sumar voru reyndar búnar að leggja drög að því áður en skólinn byrjaði. Öll þessi hjónabönd ríghalda enn. Þannig að skólinn stuðl- aði að mikilli fjölgun í bænum, þrátt fyrir að þar væri mikill agi og það eru ábyggilega um 50 konur búsettar hér sem upphaflega komu í skólann.“ Rann- veig kveðst þó ekki hafa náð í sinn mann meðan á náminu stóð heldur þegar hún kom aftur til kennslu. „Ég reyndi aftur og þá tókst það!“ segir hún hlæjandi. gun@frettabladid.is Skólinn stuðlaði að mikilli fj ölgun í bænum RANNVEIG HJALTADÓTTIR „Kokkarnir í Edinborg ætla að bera fram kökur með kaffinu sem oft voru bakaðar í skólanum,“ segir Rannveig sem var bæði námsmeyja og kennari í Ósk MYND BB/HALLDÓR SVEINBJÖRNSSON AFMÆLISHÁTÍÐ Bókaverslunin Úlfarsfell við Hagamel fagnar 40 ára rekstri í dag milli klukkan 13.30 og 16. Heitt er á könnunni og kökur á borðum auk þess sem Vesturbæjarskáld lesa upp úr nýjum bókum. 20% afmælis afsláttur er á öllum vörum. Alltaf á sama stað
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.