Fréttablaðið - 17.11.2012, Síða 88
17. nóvember 2012 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 56
Ástkær sonur okkar, bróðir,
mágur og frændi,
VALDIMAR HILMARSSON
Langholtsvegi 8, Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum aðfaranótt
mánudags 12. nóvember 2012, verður
jarðsunginn frá Neskirkju, mánudaginn
19. nóvember, kl. 15.00.
Guðjóna Valdimarsdóttir Grétar Friðleifsson
Höskuldur Hilmarsson Oddfríður Ingvadóttir
Þór Ingi Hilmarsson Elzbeita Konkol
Kristjón Grétarsson Nína Þórarinsdóttir
Gréta Grétarsdóttir Davíð Jón Kristjánsson
og systkinabörn.
Ástkær systir mín og frænka okkar,
GUÐRÚN A. KRISTINSDÓTTIR
píanóleikari,
lést að hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð
Akureyri laugardaginn 10. nóvember. Útförin
fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn
20. nóvember kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hennar er
bent á minningarsjóð Þorgerðar Eiríksdóttur hjá Tónlistarskóla
Akureyrar.
Margrét H. Kristinsdóttir
Ásdís A. Gunnlaugsdóttir Bryngeir Kristinsson
Kristín G. Gunnlaugsdóttir
Bryndís Eriksdóttir Philibert
Kristinn Fr. Eriksson
og börn.
Þökkum öllum þeim, sem veittu okkur
aðstoð og stuðning vegna útfarar
ástkærrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
SJAFNAR B. GEIRDAL
26. október sl.
Bragi Skúlason Anna Þuríður Kristbjörnsdóttir
Hrafnhildur Skúladóttir Ólafur Jón Guðmundsson
Hafdís Skúladóttir Magnús Árnason
Sigríður Birna Bragadóttir Sigurjón Þorsteinsson
Steinar Bragi Sigurjónsson Anna Jóna Sigurjónsdóttir
Ámundi Steinar Ámundason Grímur Arnar Ámundason
Hafdís Anna Bragadóttir Björn Eyjólfsson
Sara Skúlína Jónsdóttir Arnar Már Símonarson
Aron Frosti Arnarsson Arnar Jón Ólafsson Geirdal
Skúli Bragi Magnússon Ásdís Elfa Einarsdóttir
Árni Þórður Magnússon
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÞORSTEINA SIGURBJÖRG
ÓLAFSDÓTTIR
Hraunbúðum, áður til heimilis að
Hólagötu 9, Vestmannaeyjum,
lést á Hraunbúðum fimmtudaginn
15. nóvember sl. Útförin verður gerð frá Landakirkju
24. nóvember nk. 14.00.
Gunnar Ólafsson Erla Sigurðardóttir
Sigurbjörg Ólafsdóttir Birgir Pálsson
Sigurður Ólafsson Birna Jóhannesdóttir
Guðbjörg Ólafsdóttir Eiríkur Bogason
Sesselja Ólafsdóttir Gunnar Berg Sigurjónsson
Ólöf Erla Ólafsdóttir Stig Gunnarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir minn, afi og bróðir,
FRIÐFINNUR ÁRNI KJÆRNESTED
STEINGRÍMSSON
er látinn. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Kristín Lillý Kjærnested
Ísak Smári Geirsson
Karen Anja Kjærnested Oddgeirsdóttir
Rafael Fannar Oddgeirsson
Svala Þyrí Steingrímsdóttir
Þórarinn Smári
Jónína Steiney Steingrímsdóttir
Annie Kjærnested Steingrímsdóttir
Margrét Lísa Steingrímsdóttir
Nikulás Ásgeir Steingrímsson
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
ERLA STEFÁNSDÓTTIR
Þverbrekku 4, Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
þann 12. nóvember. Útför hennar fer fram
frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 21.
nóvember kl. 13.00. Sérstakar þakkir til
Heimahlynningar Landspítalans.
Jóhann H. Jónsson
Svandís Eyfjörð Steingrímsdóttir Sigurður Hafsteinsson
Stefán Eyfjörð Steingrímsson Elsa Auður Sigfúsdóttir
Baldvin Stefánsson Justé Okaite
Erla Ruth, Birgitta Líf, Gunnar Bjarmi, Haukur Ingi, Davíð Kári.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
vinarhug vegna fráfalls föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
ERLINGS DAGSSONAR
fv. aðalbókara.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á
Hrafnistu í Reykjavík.
Þór Ingi Erlingsson Margrét Sigurðardóttir
Vigdís Erlingsdóttir Steinar Geirdal
Kristrún Erlingsdóttir
Jón Sverrir Erlingsson Kristín Stefánsdóttir
Kjartan Erlingsson
Grétar Örn Erlingsson Bryndís Anna Bjarnadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem auðsýndu okkur
samúð og hlýhug vegna andláts ástkærs
eiginmanns, föður, tengdaföður og afa,
SVEINBJÖRNS JÓHANNESSONAR
Heiðarbæ í Þingvallasveit.
Steinunn E. Guðmundsdóttir
Margrét Sveinbjörnsdóttir Auðunn Arnórsson
Jóhannes Sveinbjörnsson Ólöf Björg Einarsdóttir
Helga Sveinbjörnsdóttir Guðmundur Helgi Vigfússon
Kolbeinn Sveinbjörnsson Borghildur Guðmundsdóttir
og barnabörn.
Elskulega móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐRÚN PÁLÍNA KARLSDÓTTIR
frá Látrum í Aðalvík,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Eir laugar-
daginn 10. nóvember, verður jarðsungin
frá Árbæjarkirkju mánudaginn 19. nóvember
klukkan 13.00. Þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Auðlind náttúrusjóð. Bankareikningur Auðlindar
er 0325-13-301930, kt. 580408-0440.
Óli Örn Andreassen Annette T. Andreassen
Inga Lovísa Andreassen Matthías Viktorsson
Karl Andreassen Elma Vagnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Við þökkum auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar okkar ástkæru
móður, tengdamóður, ömmu, langömmu,
systur og mágkonu,
KRISTÍNAR GUÐMUNDSDÓTTUR
Lækjasmára 4, Kópavogi,
sem lést þann 8. september sl.
Sigríður Rafnsdóttir Guðmundur Þór Björnsson
Margrét Júlía Rafnsdóttir Sigurður Haukur Gíslason
barnabörn og langömmubörn
María V. Guðmundsdóttir Viðar S. Guðjónsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
GEIRFRÍÐUR SIGURGEIRSDÓTTIR
frá Ásgerðarstaðaseli í Hörgárdal,
Gránufélagsgötu 39, Akureyri,
lést á dvalarheimilinu Hlíð 7. nóvember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu. Innilegar þakkir til starfsfólks
á Einihlíð fyrir góða og hlýja umönnun.
Halldór Sigmundur Eyfjörð Jónsson
Heiðdís Björk Baldursdóttir Einar Hjaltason
ömmu- og langömmubörn.
Það verður líf og fjör í Grensáskirkju á
milli 13 og 17 í dag þegar Hollvinasam-
tök Grensásdeildar halda sinn árlega
jólabasar. „Þetta er basar til styrkt-
ar Grensásdeild sem er náttúrulega
miðstöð endurhæfingar á landinu og
vinnur kraftaverk á hverjum degi að
mínu áliti,“ segir Guðrún Pétursdóttir
formaður Hollvinasamtakanna. „Þarna
verða til sölu rosalega fallegir munir af
ýmsu tagi, á góðu verði auðvitað. Eitt
af því sem gestum gefst kostur á að
kaupa eru handgerðir kransar til þess
að setja á útihurðir sem eru alveg ein-
stakir og fallegir.“
Edda Heiðrún Backman verður á
staðnum og selur nýja bók þeirra Þór-
arins Eldjárns en í henni eru myndir
sem Edda hefur málað með munnin-
um og Þórarinn ljóðskreytt. „Og það
sem meira er,“ segir Guðrún, „Edda
gaf Hollvinunum, og Grensásdeild þar
með, leyfi til að gera eftirprentanir
af myndunum í bókinni og þær verða
einnig til sölu á basarnum. Þetta eru
dásamlegar myndir sem minna mann
helst á Dimmalimm eftir Mugg.“ - fsb
Myndir Eddu
Heiðrúnar seldar
á jólabasar
MINNA Á DIMMALIMM Edda Heiðrún
selur nýju bókina á basarnum.
Fyrrverandi nemendur Húsmæðraskól-
ans Óskar á Ísafirði hittast í Edinborg á
morgun og minnast þess að 100 ár eru
liðin frá stofnun skólans. Ein þeirra er
Rannveig Hjaltadóttir sem var þar vet-
urinn 1960-1961 og síðar handavinnu-
kennari í fjórtán ár. Hún staðfestir að
mikið standi til. „Við ætlum að hafa
kaffihóf í tilefni þessara tímamóta og
kokkarnir í Edinborg ætla að bera fram
kökur með kaffinu sem oft voru bakaðar
í skólanum. Við nemendurnir ætlum svo
að syngja saman, lesa upp og rifja upp
gamlar minningar.“
Rannveig kann sögu húsmæðraskól-
ans Óskar upp á sína tíu fingur. „Skól-
inn var fyrst settur í október 1912 að
tilstuðlan kvenfélagsins Óskar. Aðal-
hvatamaðurinn var Camilla Torfason
sem áður hafði kennt við húsmæðra-
skóla í Danmörku. Skólinn var til húsa
á ýmsum stöðum í bænum framan af en
árið 1948 var búið að byggja yfir hann
glæsilegt hús, teiknað af Guðjóni Samú-
elssyni. Fyrsta árið í nýja húsinu voru
nemendur 40 en skólinn var byggður
fyrir 32. Þannig var hann yfirfullur
fyrstu árin. Þorbjörg Bjarnadóttir frá
Vigur var skólastjóri í áratugi en á 8.
áratugnum fór að halla undan fæti hús-
mæðraskóla vegna breyttra þjóðfélags-
hátta og árið 1990 var okkar skóli sam-
einaður Menntaskólanum. Síðan fékk
tónlistarskólinn húsið og nýtir það enn.“
Rannveig segir húsmæðraskólann
hafa haft mikil áhrif á bæjarlífið, enda
hafi mikill spenningur verið hjá karl-
kyninu fyrir námsmeyjunum. „Þegar
ég var í skólanum voru tíu sem trúlof-
uðu sig eftir veturinn af 32. Sumar voru
reyndar búnar að leggja drög að því áður
en skólinn byrjaði. Öll þessi hjónabönd
ríghalda enn. Þannig að skólinn stuðl-
aði að mikilli fjölgun í bænum, þrátt
fyrir að þar væri mikill agi og það eru
ábyggilega um 50 konur búsettar hér
sem upphaflega komu í skólann.“ Rann-
veig kveðst þó ekki hafa náð í sinn mann
meðan á náminu stóð heldur þegar hún
kom aftur til kennslu. „Ég reyndi aftur
og þá tókst það!“ segir hún hlæjandi.
gun@frettabladid.is
Skólinn stuðlaði að
mikilli fj ölgun í bænum
RANNVEIG
HJALTADÓTTIR
„Kokkarnir í
Edinborg ætla að
bera fram kökur
með kaffinu sem
oft voru bakaðar
í skólanum,“
segir Rannveig
sem var bæði
námsmeyja og
kennari í Ósk
MYND BB/HALLDÓR
SVEINBJÖRNSSON
AFMÆLISHÁTÍÐ Bókaverslunin Úlfarsfell við Hagamel fagnar 40
ára rekstri í dag milli klukkan 13.30 og 16. Heitt er á könnunni og
kökur á borðum auk þess sem Vesturbæjarskáld lesa upp úr nýjum
bókum. 20% afmælis afsláttur er á öllum vörum.
Alltaf á sama stað