Fréttablaðið - 17.11.2012, Síða 92
17. nóvember 2012 LAUGARDAGUR| MENNING | 60
BAKÞANKAR
Bergsteins
Sigurðssonar
Hvað er húmor? Um aldir alda hafa spakir menn spurt þessarar spurn-
ingar og sýnist sitt hverjum. Í mínum huga
er húmor það sem gerir lífið þess virði að
lifa, aromatið í tilverunni ef svo má að orði
komast. Ég þyki gamansamur maður og
hef í gegnum tíðina farið með gamanmál á
mannamótum. Án þess að ég sé að hreykja
mér hefur þetta mælst svo vel fyrir að ég
hef smám saman verið að færa mig upp á
skaftið og taka að mér stærri „gigg“ eins
og þeir kalla þetta í „bransanum“.
GRÍN mitt gengur gjarnan út á að finna
það sem er óvenjulegt og draga góðlátlegt
dár að því, búa til dálítið klikkaðar pers-
ónur sem ég mála sterkum litum, allt vel
meint auðvitað. Tökum sem dæmi karakt-
erinn Sarúnas: lesblindan offitusjúkling
frá Litháen sem er hornreka í þjófageng-
inu sem hann er í af því að öryggisverð-
irnir í Kringlunni hlaupa hann alltaf
uppi og hann ruglast oft á merkjavör-
unni sem hann á að hnupla. Eins og
þið heyrið tæpi ég á samfélagslegum
málum, fjölmenningu og einelti.
VIÐBRÖGÐIN voru blendin í fyrstu.
Í mig hringdi fólk sem sakaði mig um
fordóma og að ala á andúð á tiltekn-
um hópum. Ég reyndi að benda
á að þvert á móti væri ég
að reyna að fá fólk til að
hlæja að þessum hópum
en allt kom fyrir ekki.
ÉG held að það standi gríni mínu fyrir
þrifum að ég er hvítur karlmaður að skríða
á miðjan aldur, sem er sá minnihlutahóp-
ur sem á hvað erfiðast uppdráttar nú um
mundir og auðvelt er að væna um fordóma.
Það sem verra er á ég enga nána vini úr
minnihlutahópum sem eru í tísku. Þegar
Árni Johnsen var til dæmis vændur um
hommaandúð benti hann á að margir af
hans bestu vinum væru hommar. Hann
getur því ekki haft óbeit á hommum. Árni
Johnsen á svo marga samkynhneigða vini
að hann er hér um bil hommi sjálfur.
NÚ voru góð ráð dýr. Mér var um það bil
að falla allur ketill í eld þegar lausnin blasti
skyndilega við mér. Ég bý nefnilega svo vel
að eiga tvær tengdamömmur. Þið lásuð rétt.
Ég er í mægðum við tvær lesbískar konur á
sjötugsaldri. Fyrir grínista á tímum félags-
legs rétttrúnaðar er þetta það sem kallað
er „jackpot“. Enda hefur þetta reynst mér
afar dýrmætt. Um leið og ég verð var við
að grínið mitt þykir fara yfir strikið bæti
ég við: „Þetta er allt í lagi, tengdamömmur
mínar eru lesbíur“. Þá eru allir sáttir.
EF eitthvað er hefur þetta gert mér fært
að ganga nokkuð lengra í að gera grín að
þeim sem eru öðruvísi. Það er lykilatriði
þegar maður er að herma eftir öðrum að
mála sérkenni þeirra nógu sterkum litum.
En lengra verður þetta ekki í bili. Ég hef
öðrum hnöppum að hneppa. Þessi einleikur
um Freyju Haralds skrifar sig ekki sjálfur.
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
KROSSGÁTA
Myndasögur
PONDUS Eftir Frode Øverli
GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes
BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Við lesbíurnarLÁRÉTT2. létu, 6. pfn., 8. krá, 9. gogg, 11. tveir eins, 12. umstang, 14. smámjaka,
16. skóli, 17. kopar, 18. umfram, 20.
grískur bókstafur, 21. tútta.
LÓÐRÉTT
1. stjórnarumdæmis, 3. í röð, 4.
flutningaskip, 5. dýrahljóð, 7. gáta, 10.
rotnun, 13. gerast, 15. einsöngur, 16.
skraf, 19. kvað.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. gáfu, 6. ég, 8. bar, 9. nef,
11. rr, 12. stúss, 14. rikka, 16. ma, 17.
eir, 18. auk, 20. pí, 21. snuð.
LÓÐRÉTT: 1. léns, 3. áb, 4. farskip, 5.
urr, 7. getraun, 10. fúi, 13. ske, 15. aría,
16. mas, 19. ku.
Allt í lagi, leyfðu mér
að kasta einu fram
sem gæti hljómað
undarlega en...
Haltu
þér
fast...
Ég hef aldrei hitt
stuðningsmann Man. United
sem er 100% heill í hausnum!
Flestir eru uppfullir af
göllum; haltra, skjálfa, slefa,
eru alltof þungir og
hirða illa um sig!
Og allt þetta
dregur þá
í átt að
Manchester
United?
Eða öfugt sko!
Ég er að greina
eitthvað munstur!
Það er það
sem ég meina!
Þetta er
rétt hjá þér!
Þetta er alveg
merkilegt!
Ég keypti
nýja skyrtu
handa þér,
Palli.
Í alvöru?
Takk, mamma.
Hún er flott! Geturðu gert hana
gamla og rifna
snöggvast?
Ég gleymdi
gleraugunum mínum,
stendur hér
að þú hafir verið náðaður?
Það sama með
áhangendur Chelsea
með þétt á milli
augnanna...
SKJALDBAKA!?
Hvað varstu að hugsa?
Þú veist að við erum
óheppin með gæludýr!
Það er
ekki rétt.
Og...? Meinarðu að þú
sjáir eitthvert
mynstur?
Hvað kom fyrir
halakörturnar?
Fiðrildið?
Kakkalakkann?
Hamsturinn?
Þær
dóu.
Það dó.
Hann dó.
Hann dó.
Skemmtilegustu
skopmyndateiknarar landsins
leggja til teikningarnar
– og þú semur brandarann
Inniheldur 150 frábærar teikningar eftir
HUGLEIK DAGSSON, HALLDÓR BALDURSSON,
LÓU HLÍN HJÁLMTÝSDÓTTUR OG SIGMÚND
Hlæðu af þér
hausinn um jólin
Einfalt og hrikalega fyndið nýtt
íslenskt spil sem öll fjölskyldan
mun liggja í hláturskasti yfir
SKRÍPÓ