Fréttablaðið - 17.11.2012, Síða 104
17. nóvember 2012 LAUGARDAGUR| MENNING | 72
Ofurfyrirsætan Lara Stone og breski
grínistinn David Walliams eiga von
á sínu fyrsta barni. Gleðifregnirnar
tilkynnti Walliams, sem er þekktur úr
þáttaröðinni Little Britain, á Twitter
í vikunni. „Frábærar fréttir. Fallega
kona mín Lara er ólétt. Við eigum
von á barni og gætum ekki verið
hamingjusamari.“ Hjónin hafa beðið
fjölmiðla um að virða sitt einkalíf
en barnið er væntanlegt í heiminn á
næsta ári.
Stone er fræg fyrir að vera meðal
annars andlit Calvin Klein. Stone og
Walliams hafa verið saman síðan árið
2009 og gengu í það heilaga í maí á
þessu ári.
Stone móðir í
fyrsta sinn
BARNSHAFANDI Ofurfyrirsætan Lara
Stone á von á sínu fyrsta barni með
eiginmanni sínum, grínistanum David
Walliams. NORDICPHOTOS/GETTY Listakonur heiðraðar
Þar var margt um manninn á Kjarvalsstöðum er Baileys heiðraði þrjár íslenskar listakonur. Viðburðurinn er
árlegur en að þessu sinni voru það Andrea Maack listakona, Jóhanna Methúsalemsdóttir skartgripahönn-
uður og Sara Riel myndlistarkona sem voru heiðraðar fyrir störf sín.
SKÁLUÐU Þórey Björk Halldórsdóttir, Ásgrímur Már
og Anna Kristín Sigurðardóttir.
LISTAKONUR Andrea Maack og Jóhanna Methúsalemsdóttir brostu til ljósmyndara. GAMAN Sóley Kristjánsdóttir og Andrea Brabin.
ALSÆLAR Hrafnhildur Hólmgeirs og Sigga Boston
mættu.
BROSMILDAR Ásdís Spanó og Ingibjörg Ragnars-
dóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
TuneIn Radio
Þetta app er frábært fyrir þá sem vilja hlusta á
útvarpið í snjallsímanum. Útvarpsmóttakari er ekki
innbyggður í alla snjallsíma og þá getur þetta app
gert gæfumuninn. Hægt er að streyma útvarpsút-
sendingum beint yfir Internetið á bæði WiFi og 3G.
TuneIn Radio-appið er einnig útvarpsvekjaraklukka
og upptökutæki. Appið býður upp á rúmlega 70
þúsund útvarpsstöðvar um heim allan, þar á meðal
íslensku útvarpsstöðvarnar.
ÖPPIN
Letterpress
Letterpress er app fyrir þá sem elska orðaleiki, í
leiknum skiptistu á við vin þinn eða andstæðing
af handahófi um að búa til orð úr þeim 25 stöfum
sem eru í boði á leikborðinu, með því að búa til
orð eignarðu þér stafi eða stelur frá andstæðingn-
um. Sá sigrar sem stendur uppi með fleiri stafi,
einfalt en hrikalega ávanabindandi.
112 Iceland
112 er app sem ferðalangar geta notað til að skilja
eftir sig GPS slóð og til að kalla eftir aðstoð. Nóg er
að ýta á græna hnappinn, Skráning/Check in, til að
skilja eftir sig staðsetningu sem notuð er ef maður
lendir í vanda og rauða hnappinn, Neyðarboð/Emer-
gency til að kalla eftir hjálp. Ekki er þörf á gagna-
sambandi til að nýta forritið, GSM samband nægir.
Skýringar: App fyrir Apple-tæki App fyrir Android-tæki App fyrir Windows
*Hægt er að kaupa útgáfur af appinu til að aflæsa ýmsum gæðum.
frítt* frítt*
frítt* frítt*
frítt*