Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.12.2012, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 03.12.2012, Qupperneq 20
ÓÐINSGÖTU 4 SÍMI 570 4500, OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9-17. Netfang: fastmark@fastmark.is - www.fastmark.is Jón Guðmundsson, sölustj. og lögg. fast.sali. Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fast.sali. Leiðhamrar Fallegt 170,0 fm. parhús á tveimur hæðum með innbyggðum/áföstum 28,6 fm. bílskúr í Grafarvogi. Eignin er vel staðsett við opið svæði á friðsælum stað í botnlangagötu. Samliggjandi borð- og setustofa, sólstofa, sjónvarpshol með útgangi á svalir og fjögur herbergi auk fata- og vinnuherbergis. Háaloft er yfir allri efri hæðinni og stórkostlegs útsýnis nýtur þaðan. Ræktuð lóð með um 40 fm. timburverönd. Hellulögð heimkeyrsla að bílskúr og göngustígar með hitalögnum. Verð 49,9 millj. Árakur – Garðabæ. Endaraðhús Glæsilegt 248,9 fm. endaraðhús með innbyggðum 29,4 fm. bílskúr í Akralandinu. Húsið sem er fullfrágengið er innréttað á afar vandaðan og smekklegan hátt. Rúmgóðar stofur með gólf- síðumgluggum. Sjónvarpsstofa. Fataherbergi innaf hjónaherbergi.Gólfhiti er í hluta hússins.t.d. baðherbergjum og þvottaherbergi. Svalir til vesturs og stór afgirt verönd til austurs og suðurs útaf stofum.Hellulögð innkeyrsla og stéttar. Tilboð óskast.. Starhagi. 307,2 gm. Glæsilegt einbýishús á þremur hæðum með aukaíbúð á þessum glæsilega útsýnisstað auk 35,1 fm. bílskúrs. Á aðalhæð eru m.a. samliggjandi stofur með föstum innréttingum, borð- stofa,sjónvarpsstofa og eldhús með fallegum upprunalegum innréttingum. Á efri hæð eru 5 her- bergi og baðherbergi. Íbúð í kjallara er 3ja herbergja, samþykkt og með fullri lofthæð. Glæsilegt útsýni úr stofum út á sjóinn. Falleg lóð. Frábær staðsetning. Holtagerði -Kópavogi. 221,0 fm. steiniklætt einbýlishús á tveimur hæðum að meðtöldum 60,0 fm. sambyggðum bílskúr. Stofa á tveimur pöllum, sólstofa/borðstofa, eldhús, fjögur herbergi og tvö baðherbergi. Húsið hefur fengið gott viðhald. Fallegur skjólsæll garður í góðri rækt til suðurs með um 70 fm. verönd og tengi fyrir heitan pott. Hellulögð aðkoma. Verð 45,9 millj. Haukanes – Garðabæ. Glæsilegt og afar vel staðsett 356,4 fm. einbýlishús á tveimur hæðum á Arnarnesi. Eignin er byggð árið 1985 og tekin í notkun í kringum 1990. Allar innréttingar eru vandaðar, sérsmíðaðar og mas- sívar eikarinnréttingar. Harðviður er í öllum gluggum og útihurðum. Lóðin er 1.130 fm. eignarlóð, ræktuð og frágengin með fallegri hleðslu úr holtagrjóti. Hluti neðri hæðar er upphaflega teiknaður sem sér 3ja herbergja íbúð, en er í dag nýttur sem hluti af heildareigninni. Tvöfaldur bílskúr. Hús nýlega málað að utan. Verð 126,0 millj. Jakasel. Vandað og vel skipulagt 331,4 fm. einbýlishús á fallegum og grónum útsýnisstað. 6 svefnher- bergi. Eldhús með stórri eyju. Stórar stofur með arni. Tvöfaldur bílskúr. Tvennar svalir. Glæsileg verðlaunalóð með stórum viðarveröndum og skjólveggjum. Verð 72,9 millj. Hvammsgerði 6. OPIÐ HÚS Á MORGUN, ÞRIÐJUDAG FRÁ KL. 17.00-17.30 163 fm. einbýlishús á þremur hæðum ásamt 35,6 fm. bílskúr á þessum eftirsótta stað í Smáíbúðahverfinu. Hið innra er eignin mikið upprunaleg að frátöldu eldhúsi sem er nýlega innréttað. Fimm herbergi.Bílskúr hefur að hluta verið innréttaður sem stúdíóíbúð með snyrtingu og eldhúskrók. Aðkoma hellulögð og garður með hellulagðri verönd. Verð 39,5 millj. Eignin verður til sýnis á morgun. Verið velkomin. Steinás – Garðabæ. Fallegt, vel skipulagt og vel staðsett 144,5 fm. einbýlishús á einni hæð auk 50,0 fm. sérstæðs bíl- skúrs með mikilli lofthæð. Húsið stendur á fallegum stað neðst í Ásahverfinu við opið svæði með frábæru útsýni yfir hraunið. Mjög mikil lofthæð er í stofu og eldhúsi og innfelld lýsing í loftum. Rúmgóð stofa, stórt eldhús og fjögur svefnherbergi. Risloft er yfir hluta hússins, vel manngengt og nýtist sem vinnuaðstaða. Verð 63,0 millj. Fagrakinn - Hafnarfirði. Gott 115,8 fm. einbýlishús á einni hæð auk 31,5 fm. bílskúrs. Húsið hefur verið mikið endurnýjað síðustu fjögur árin s.s. ytra byrði, lagnir, aðkoma og garður. Eignin skiptist m.a. í eldhús með nýlegri innréttingu og góðum borðkrók, stofu og borðstofu, hol/sjónvarpsherbergi með útgengi á verönd og þrjú herbergi. Afgirtur garður með tvennum veröndum til suðurs og austurs og hellulagðri aðkomu. Verð 35,8 millj. Ólafsgeisli Stórglæsilegt og afar vandað 240,1 fm. einbýlishús á tveimur hæðum á stórri og viðhaldslítilli hornlóð á frábærum útsýnisstað í Grafarholtinu. Allar innréttingar eru sérsmíðaðar. Mjög mikil lofthæð er á efri hæð hússins og innfelld lýsing í öllum loftum. Stórar samliggjandi stofur. Hjónasvíta með fataherbergi og baðherbergi innaf. Húsið er klætt með íslensku líbaríti. Falleg lýsing á lóð og húsinu að utan. Arkitekt hússins er Kristinn Ragnarsson og innanhússarkitekt er Ellen Tyler. Fallegt útsýni úr stofum yfir golfvöllinn og borgina.Verð 93,0 millj. Hegranes- einbýlishús á sjávarlóð á sunnanverðu Arnarnesi Glæsilegt 260 fermetra einbýlishús með 41,5 fm. innbyggðum bílskúr. Húsið er vel staðsett á sunnan verðu Arnarnesi með miklu útsýni til sjávar. Húsið hefur verið mikið endurnýjað og er í góðu ásigkomulagi. 4 svefnherbergi. Mjög auðvelt er að stækka húsið ef vill þar sem lóðin er 1.517 fm. að stærð. Verð 99,0 millj. Asparteigur- Mosfellsbæ Vandað 223,5 fm. parhús á tveimur hæðum að meðtöldum 21,5 fm. bílskúr. Rúmgóð stofa. Borð- stofa opin við eldhús. Eldhús með vönduðum innréttingum og tækjum. Sjónvarpshol. Þrjú svefn- herbergi. Fataherbergi innarf hjónaherbergi. Baðherbergi, flísalagt í gólf og veggi. Timburverönd til suðvesturs með skjólveggjum. Lóð ófrágengin að framanverðu.Verð 49,9 millj. Barmahlíð- efri hæð Falleg 119,0 fm. íbúð á efri hæð í fjórbýlishúsi í Hlíðunum. Hæðin sem er mjög opin skiptist í rúmgott hol/gang, opið eldhús með eikarinnréttingu, samliggjandi skiptanlegar stofur, tvö til þrjú herbergi og flísalagt baðherbergi. Svalir til suðvesturs út af stofum og sameiginlegar svalir út af stigapalli í vestur. Þvottaaðstaða á baðherbergi auk sameiginlegs þvottaherbergis í kjallara. Bílskúrsréttur fylgir eigninni. Verð 32,5 millj. Straumsalir -Kópavogi. Glæsileg efri sérhæð á útsýnisstað. Glæsileg 137,0 fm. efri sérhæð auk 21,3 fm. bílskúrs á frábærum útsýnisstað. Íbúðin er mjög björt og vel skipulögð. Allar innréttingar og gólfefni eru í ljósum viði. Rúmgóðar stofur með frábæru útsýni og útgengi á flísalagðar svalir til suðurs. Borðstofa. Eldhús með ljósum viðarinnréttingum. Fjögur rúmgóð herbergi. Flísalagt baðherbergi bæði með baðkari og sturtuklefa. Sér þvottaher- bergi innan íbúðar. Hitalagnir í innkeyrslu og stéttum fyrir framan hús. Verð 37,9 millj. Sogavegur- efri sérhæð Glæsileg 122,9 fm. 3ja - 4ra herbergja efri sérhæð í nýlegu húsi auk 24,5 fm. bílskúrs. Íbúðin er afar vönduð í alla staði. Sérsmíðaðar innréttingar. Eikarparket og flísar á gólfum. Extra háar innihurðir úr eik. Rúmgóðar stofur með gólfsíðum gluggum. Tvö baðherbergi. Útgangur úr hjónaherbergi á þaksvalir ofan á bílskúr. Gólfhiti. Hús að utan fullfrágengið og lóð frágengin að langmestu leyti. Verð 49,0 millj. Stigahlíð- neðri sérhæð ásamt bílskúr Vel skipulögð 149,4 fm. neðri sérhæð í nýviðgerðu þríbýlishúsi í Hlíðunum auk 28,5 fm. bílskúrs. Hæðin skiptist í forstofuherbergi gestasnyrtingu, eldhús, rúmgóða stofu/borðstofu með arni, þrjú herbergi á svefngangi og flísalagt baðherbergi. Suðursvalir út af hjónaherbergi. Húsið er klætt að utan. Tröppur nýlega múraðar.Verð 39,9 millj. Straumsalir-Kópavogi. 5 herbergja með 4 svefnherbergjum. Mjög falleg 129,8 fm. 5 herbergja íbúð á 3. hæð í 5 íbúða húsi. Fjögur svefnherbergi. Björt stofa og borðstofa með útgangi á um 12 fm. svalir til suðvesturs. Opið eldhús með fallegum innrétt- ingum úr mahony. Frá íbúðinni nýtur stórkostlegs útsýnis að Reykjanesi, til Snæfellsjökuls og víðar. Stutt í skóla, sundlaug og íþróttasvæði. Hús nýlega málað að utan. Verð 36,9 millj. Espigerði- íbúð á tveimur hæðum Glæsileg 166,1 fm. íbúð á tveimur hæðum að meðtalinni sér geymslu í kjallara. Þrennar svalir eru á íbúðinni og nýtur útsýnis yfir borgina og víðar frá þeim og úr íbúðinni. Stórar samliggjandi stofur, sjónvarpshol, tvö rúmgóð herbergi (möguleiki á þremur). Íbúðinni fylgir sér stæði í bíla- geymslu. Útsýnis nýtur Verð 39,5 millj. SÉRBÝLI SÉRBÝLI 4RA – 6 HERBERGJA OP IÐ HÚ S

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.