Fréttablaðið - 03.12.2012, Síða 44

Fréttablaðið - 03.12.2012, Síða 44
3. desember 2012 MÁNUDAGUR| MENNING | 20 BAKÞANKAR Jóns Sigurðar Eyjólfssonar 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 KROSSGÁTA PONDUS Eftir Frode Øverli GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman MYNDASÖGUR LÁRÉTT 2. tveggja hæða rúm, 6. íþróttafélag, 8. þvottur, 9. farvegur, 11. tveir eins, 12. kappsemi, 14. teygjudýr, 16. pípa, 17. gljúfur, 18. fálm, 20. kvað, 21. handa. LÓÐRÉTT 1. listi, 3. pot, 4. asfalt, 5. eyrir, 7. röndóttur, 10. er, 13. starfsgrein, 15. bor, 16. þjálfa, 19. tvö þúsund. LAUSN LÁRÉTT: 2. koja, 6. kr, 8. tau, 9. rás, 11. rr, 12. ákefð, 14. amaba, 16. æð, 17. gil, 18. fum, 20. ku, 21. arma. LÓÐRÉTT: 1. skrá, 3. ot, 4. jarðbik, 5. aur, 7. rákaður, 10. sem, 13. fag, 15. alur, 16. æfa, 19. mm. Verð að elta þau uppi... meiða þau... Leyfa þeim að finna fyrir því... Mín reiði... er eins og kaldur sviti... á pungnum... Á hverjum? Útvarpsauglýs- ingaröddunum... fólkinu... Maggi! Viltu vera svo vænn og slökkva á útvarpi Sögu!de yj j j j aaa a Þau verða að... Þarftu að læra nokkuð heima í kvöld?GÆTU FORELDRAR MÍNIR VERIÐ VITLAUSARI? Fékkstu tölvupóstinn frá mér um það hve ég á erfitt með að aðlagast því að vera sestur í helgan stein? Flýttu þér, við verðum að fara. Hvernig veistu alltaf hvað klukkan er þegar þú gengur ekki með úr? Sko, stundum lít ég á sólar- ganginn, stundum með því að sjá hvaða þáttur er í sjónvarpinu... DRÍFIÐ YKKUR! VIÐ VERÐUM OF SEIN!! En áreiðanlegasta mælingaraðferðin er tónninn í röddinni hennar mömmu. DRÍFA SIG!! Íslendingar fá flestir mikinn heimaln-ingshroll þegar útlendingar spyrja þá um álfa, tröll og drauga. Það eru kannski ekki svo undarleg viðbrögð. Menn vilja ekki líta út fyrir að vera svo skyni skroppnir að hafa ekki séð í gegnum blöffið sem notað var á börnin svo þau væru ekki að þvælast úti að næturþeli og héldu sig frá hættulegum klettum og gilj- um. Nútímamaðurinn vill líka vera frjáls í stað þess að leggja lund sína og líf undir vætti sem láta ekki að stjórn. MEIRA að segja hið máttuga tungl sem hífir upp heilu höfin telst ekki trúanlegur áhrifavald- ur á lund manna lengur. Hins vegar var það alkunna á mínum bernskuárum að vart væri orði við suma komandi þegar máni var fullur og svo uppi á Ægi typpið að hann virtist ætla að æða yfir bryggjuna. NÚTÍMAMAÐURINN er búinn að afneita þessu öllu saman. En það væri synd að segja að hann væri orðinn svo þroskaður að ekki væri hægt að stjórna lund hans og hegðun með nýrri og endurbættri hjátrú. NÝJU vættirnar eru bæði staðbundnar og alþjóðlegar. Hér á Spáni hefur hin svo- kallaða áhættufrænka, prima de riesgo, lundarfar manna í hendi sér. Til að gefa henni vísindalegan blæ er hún kölluð áhættuálag. Hún virkar eins og mán- inn og Ægir, það er að segja ef hún er með hýrri há lyppast Spánverjar niður og verða svo nískir að þeir tíma varla að kasta kveðju hver á annan. Í stað fregna um flóð og fjöru hefjast fréttatímar hér syðra með nýjustu fréttum af geðsveiflum áhættufrænkunnar. HÚN er ekki allsráðandi því hin ítalsk- ættaða vá Draghi getur haft áhrif á þessar nýju vættir ef hún er úrill. Æðsti strumpurinn í þessu ævintýri er hins vegar Lundarfari sjálfur, eða Moody´s eins og hann er kallaður á frummálinu. Þeir sem lækka í áliti hjá honum bera ekki barr sitt lengi á eftir. Hann er svo máttug- ur að hann hefur Draghi, áhættufrænku og ömmu dreka í vasanum. EN hver er tilgangurinn með þessum draugagangi? Skýringuna má til dæmis sjá í ljósi viðburða hér á Spáni. Nú er verið að henda fólki á götuna sem ekkert hefur aflögu lengur fyrir bankann, skera niður í öllum geirum en dæla fé fólksins í ónýta banka svo Lundarfari verði ekki reiður. Þetta væri náttúrulega ekki hægt án þessarar nýju hjátrúar sem nútíma- maðurinn gengst við alveg kinnroðalaust. Djákninn í Moody´s Rekstrarvörur - vinna með þér www.saft.is RÆDDU UM ÞÁ ÁHÆTTU SEM FYLGIR ÞVÍ AÐ HITTA NETVIN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.