Fréttablaðið - 03.12.2012, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 03.12.2012, Blaðsíða 4
3. desember 2012 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 4 Jón Ólafsson - Appelsínur frá Abkasíu. Vera Hertzsch, Halldór Laxness og hreinsanirnar miklu Gunnar F. Guðmundsson - Pater Jón Sveinsson– Nonni Steinunn Kristjánsdóttir - Sagan af klaustrinu á Skriðu Gunnar Þór Bjarnason - Upp með fánann– Baráttan um uppkastið 1908 og sjálfstæðisbarátta Íslendinga Einar Már Jónsson - Örlagaborgin ➜ Í flokki fræðirita og rita almenns efnisSveit fær tombólustyrk Björgunarsveitin Núpar á Kópaskeri fékk fyrir skömmu veglegan styrk. Kvenfélag Öxfirðinga færði sveitinni peningagjöf að upphæð 67.500 kr. Þetta var innkoman af tombólu sem þær kvenfélagskonur héldu á árlegum menningardegi á Kópaskeri þann 24. nóvember síðastliðinn. ÖRYGGISMÁL Slysavarnaskólinn styrktur Slysavarnaskóli sjómanna fékk í síðustu viku 500 þúsund krónur að gjöf frá Sjómannasambandi Íslands og er hún viðurkenning fyrir góðan árangur í slysavörnum sjómanna. Banaslysum á sjó hefur fækkað mikið undanfarna áratugi og er öryggisfræðsla talin einn lykilþátturinn í þeim árangri. Eiríkur Örn Norðdahl - Illska Gyrðir Elíasson - Suðurglugginn Auður Ava Ólafsdóttir - Undantekningin Kristín Ómarsdóttir - Milla Sigurjón Magnússon - Endimörk heimsins ➜ Í flokki fagurbókmennta DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja- ness hefur dæmt mann á sextugs- aldri í fimm mánaða skilorðs- bundið fangelsi fyrir líkamsárás. Maðurinn réðst inn á heimili í september 2010 og veittist að fjórum manneskjum með járn- röri, sem allar hlutu áverka af. Þá elti hann einn fjórmenninganna, sem flúði af vettvangi á bíl, barði bílinn utan með rörinu og olli á honum skemmdum. Maðurinn mun hafa talið sig eiga eitthvað sökótt við einn fjórmenninganna. Í dómnum segir að rannsókn- inni hafi lokið í desember 2010 en ákæra ekki gefin út fyrr en í október á þessu ári. Vegna þessa dráttar og hreins sakaferils mannsins er refsingin skilorðs- bundin. - sh Barði fjóra með röri: Fer á skilorð vegna dráttar EVRÓPA Atvinnuleysi heldur áfram að aukast í ríkjum Evrópusambandsins og hefur aldrei verið meira. 204 þús- und fleiri einstaklingar voru atvinnulausir í október en í september. Þetta kemur fram í nýjum tölum Eurostat, hagstofu Evr- ópusambandsins. Atvinnuleys- ið í Evrópusambandsríkjunum mældist 10,7 prósent í október en 11,7 prósent í evruríkjunum sautján. Tæplega 26 milljónir manna eru án atvinnu í Evrópuríkjun- um, þar af tæpar nítján milljón- ir á evrusvæðinu. Atvinnuleysið á Spáni hefur náð enn hærri hæðum og mæld- ist 26,2 prósent í október. - þeb Flestir án vinnu á Spáni: Atvinnuleysið eykst enn í ESB ÖRYGGISMÁL Um 30 gráða slagsíða kom á Þórunni Sveinsdóttur VE þegar verið var að hífa veiðar- færi skipsins úr festu út af Vest- fjörðum. Lítil hætta er talin hafa verið á ferðum en talsverð bræla var á miðunum þegar atvikið átti sér stað. Skipverjar höfðu þó var- ann á og klæddust flotgöllum til öryggis, eins og Slysavarnaskóli sjómanna leggur áherslu á að sé gert. Eyjafréttir segja frá þessu en í viðtali við miðilinn segir Sig- urjón Óskarsson, útgerðarmað- ur Þórunnar, að enginn sjór hafi komist í skipið og hvorki skip né áhöfn hafi verið í hættu. Verið var að toga í 25 metra vindi þegar trollið festist á um 40 faðma dýpi. Þegar reynt var að losa trollið sló togspilum út og bremsur festust. Um leið kom sjór inn á skipið og það hallaðist um 30 gráður, segir í frétt Eyja- frétta. Þegar í land var komið var feng- inn skipaverkfræðingur til að hallaprófa Þórunni og kom ekk- ert óeðlilegt í ljós. - shá Slagsíða kom á Þórunni Sveinsdóttur þegar híft var úr festu við Vestfirði: Klæddust flotgöllum til öryggis ÞÓRUNN SVEINSDÓTTIR VE Skipið kom nýtt til landsins jólin 2010 og hefur reynst afar vel.MYND/ÓSKAR FRIÐRIKSSON MENNING Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Íslensku þýðingarverðlaunanna voru kunn- gjörðar við athöfn í Listasafni Reykjavíkur á laugardag. Íslensku bókmenntaverðlaunin eru veitt í tveimur flokkum, annars vegar fyrir frumsamin skáldverk og hins vegar fyrir fræðirit og rit almenns efnis. Fimm verk í hvorum flokki voru tilnefnd. Tilnefningarnar tíu skiptast milli sex forlaga. Bækur frá Forlaginu og dótturútgáfum þess fá flestar, alls fjórar. Tvær bækur frá Ormstungu eru tilnefndar en ein bók frá Bjarti, Uppheimum, Opnu og Sögufélaginu. Við sama tækifæri tilkynnti Bandalag þýðenda og túlka hvaða fimm verk væru tilnefnd til Íslensku þýðingarverðlaunanna í ár. Eftirfar- andi bækur voru tilnefndar: Allt er ást eftir Kristian Lundberg, þýðandi Þórdís Gísladóttir, Ariasman eftir Tapio Koivukari í þýðingu Sigurðar Karlssonar, Hjaltlandsljóð, tvímála útgáfa safns ljóða eftir samtíma- skáld frá Hjaltlandseyjum, þýðandi Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, Sá hlær best sagði pabbi eftir Gunillu Bergström í þýðingu Sigrúnar Árna- dóttur og Svarti sauðurinn og aðrar fabúlur eftir Augusto Monterroso en þýðandi hennar er Kristín Guðrún Jónsdóttir. Félag Íslenskra bókaútgefenda stendur að Íslensku bókmenntaverð- laununum sem verða veitt á Bessa- stöðum í lok janúar. Forseti Íslands veitir Íslensku þýðingarverðlaunin á alþjóðlegum degi UNESCO tileink- uðum bókum og höfundarrétti, þann 23. apríl. bergsteinn@frettabladid.is Fimmtán verk til- nefnd til verðlauna Tíu rithöfundar voru tilnefndir til Íslensku bókmenntaverðlaunanna á laugardag- inn. Auk þess voru fimm þýðendur tilnefndir til þýðingarverðlauna. DANMÖRK Útlendir glæpamenn eiga ekki að hafa eins góðan aðbúnað og innlendir. Þetta segir Lars Løkke Rasmussen, leiðtogi Venstre og fyrrverandi forsætis- ráðherra Danmerkur. Rasmussen segir erlenda glæpa- menn stórt vandamál í landinu sem þurfi raunhæfa lausn til að leysa. Hann gagnrýnir núverandi stjórn- völd fyrir að láta ekki fleiri fanga afplána dóma sína í heimalöndum sínum. Ummæli Rasmussen hafa vakið hörð viðbrögð. - þeb Fyrrverandi forsætisráðherra: Vill útlenda fanga úr landi RÆNINGINN maðurinn var vopnaður byssu þegar hann rændi söluturninn. LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð- borgarsvæðinu leitar enn að manni sem rændi söluturn við Grundarstíg á föstudagskvöld vopnaður byssu. Ræninginn kom inn í verslunina rétt fyrir lokun, skaut úr byss- unni og sló til pilts sem starfar í versluninni. Hann komst undan á hlaupum með um 30 þúsund krón- ur sem hann tók úr afgreiðslu- kassanum. Þeir sem geta gefið upplýsingar um málið eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000. Rán í verslun við Grundarstíg: Ræningja með byssu leitað FIMMTÁN HÖFUNDAR Tilnefningarnar voru tilkynntar við hátíðlega athöfn í Lista- safni Reykjavíkur á laugardaginn. 224,6246 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 125,32 125,92 200,9 201,88 126,14 126,88 21,842 21,97 22,08 22,21 8,823 18,933 1,5160 1,5248 192,22 193,36 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR GENGIÐ 30.11.2012 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Veðurspá Miðvikudagur 13-18 m/s SA-til, annars hægari vindur. RIGNING SA-LANDS og slydda til fjalla, stöku él vestan til en annars úrkomulítið. Strekkingur eða allhvasst NA- og A-lands en hægari vindur annars staðar. Hiti allt að 5°C allra syðst. 1° 3 m/s 1° 3 m/s 3° 4 m/s 5° 5 m/s Á morgun Yfi rleitt hæg S- eða SA-átt. Gildistími korta er um hádegi 3° -1° 4° -1° -3° Alicante Basel Berlín 16° 6° 1° Billund Frankfurt Friedrichshafen 3° 4° 3° Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas 2° 2° 21° London Mallorca New York 10° 16° 14° Orlando Ósló París 25° -9° 10° San Francisco Stokkhólmur 15° -8° 5° 6 m/s 4° 15 m/s 1° 11 m/s 3° 15 m/s 2° 8 m/s 4° 11 m/s -1° 8 m/s 2° 0° 2° -1° 1° Soff ía Sveinsdóttir veðurfréttamaður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.