Fréttablaðið - 03.12.2012, Síða 17

Fréttablaðið - 03.12.2012, Síða 17
ELDVARNIR Í LAGI Nú eru aðventuljós í hverjum glugga. Það getur kviknað í aðventuljósi og því er rétt að nota ekki gömul ljós. Best er að slökkva ljósin á nóttunni. Hafið ávallt handhæg slökkvitæki við höndina. Gleði jólanna er fljót að hverfa verði eldur laus. HÖNNUÐURINN Pálmi Einarsson iðnhönnuður togar í sprellikarl í líki jólasveins en auk leik- fanganna framleiðir hann jólavörur. MYND/GVA ÞRÓUNARDEILDIN AÐ STÖRFUM Þeir Róbert Björn og Brynjar Örn prófa allt sem pabbi þeirra hannar og þannig er fundið út hverju þarf að breyta í hönnuninni. MYND/ÚR EINKASAFNI Þetta eru módel-leikföng sem á að leika sér með en ekki setja upp í hillu. Það fannst mér alltaf svo leiðinlegt við plastmódelin í gamla daga sem maður setti saman, gamanið var svo stutt,“ segir Pálmi Einarsson iðnhönnuður sem hannar og framleiðir leikföng sem eigandinn setur saman sjálfur. „Formin eru útskorin og það eina sem þarf er trélím. Svo geta krakkarnir málað leikföngin, til dæmis með tré- litum, tússlitum eða akrýlmálningu og geta í raun málað þau aftur og aftur. Um leið og búið er að mála í nýjum litum er þetta aftur orðið nýtt dót.“ Synir Pálma, þeir Róbert Björn sex ára og Brynjar Örn fjögurra ára, eru „þróunardeild“ fyrirtækisins eins og Pálmi kallar það en þeir prófa öll leik- föngin og finna út úr því hvað betur má fara. „Stundum sitja þeir með mér við tölvuna og koma með hugmyndir. Svo förum við upp í Kjós, í bústaðinn okkar þar, yfir helgi og setjum módelin sam- an. Svo mála þeir leikföngin og leika sér með þau og eftir nokkra daga kemur í ljós hvað þarf að laga, hvar þarf að þykkja eða stytta eða breyta. Þetta er nákvæmlega eins og þegar ég stýrði þróunardeildinni hjá Össuri, bara á aðeins minni skala,“ segir Pálmi. Hann segir að leikföng sem krakk- arnir taka þátt í að búa til öðlist annan sess í huga þeirra en tilbúin leikföng úr skínandi plasti. Með því að setja saman og mála tengist þau leikföngunum til- finningaböndum. „Ég vil meina að þessum leikföngum fylgi gæðastundir því það skiptir krakk- ana líka svo miklu máli að foreldrarnir setjist niður með þeim og hjálpi þeim að setja saman. Strákarnir mínir fara með þessi leikföng með sér upp í rúm á kvöldin og þykir miklu vænna um þau en önnur leikföng.“ Öllum leikföngunum fylgja einfaldar leiðbeiningar og einnig er hægt að fá varahluti ef eitthvað brotnar segir Pálmi. Nú þegar eru tíu mismunandi leikföng í framleiðslu auk gjafavara og jólaföndurs en Pálmi stofnaði fyrirtæk- ið, Geislar hönnunarhús, í vor. „Við erum með fleiri vörur á teikni- borðinu og setjum upp vefverslun í des- ember en seljum þetta annars einungis hér í Bolholti 4.“ Vefsíða Pálma er www. geislar.is. ■ rat VERKSTÆÐI JÓLASVEINSINS ÍSLENSK LEIKFÖNG Vinnustofa Pálma Einarssonar minnir þessa dagana helst á verkstæði jólasveinsins en hann hannar og framleiðir leikföng. Synir hans tveir sjá um þróunarmálin og prufukeyra leikföngin. Hágæða sæn gurverasett og sloppar - Mikið úrval Jólagjöfin í ár 20% afslát tur

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.