Fréttablaðið - 03.12.2012, Side 39

Fréttablaðið - 03.12.2012, Side 39
| FÓLK | 3HEIMILI 1. Gefðu þér nægan tíma til verksins. Þótt þú sért búinn að finna fallegan hlut og sjáir hann fyrir þér nýuppgerðan og fallegan þá er ýmislegt sem er vert að hafa í huga og best að líta raunsæjum augum á verkefnið. 2. Hvert er verðmæti hlutarins? Þetta er mikilvægt svo ekki sé lögð of mikil vinna í hlut sem svo reynist hið mesta drasl og verðlaust í þokkabót. 3. Þrífðu húsgagnið vel áður en hafist er handa. Stundum þarfnast hluturinn mun minni meðhöndlunar eftir að margra ára óhreinindalag hefur verið þrifið af. 4. Leitaðu eftir aðstoð ef þarf. Á leitarvél Google er hægt að finna svör við mörgu ef slegin eru orðin „how to“ á undan því sem maður vill vita. Til dæmis: „how to remove paint“, eða hvernig á að fjarlægja málningu. Við þessa leit á Google komu upp um 2,5 milljónir svara. Líklegt er að eitt þeirra geti reynst vel. 5. Vertu vel tækjum búinn. Hvimleitt er að hætta verki vegna þess að tæki vantar. Ef röng tæki eru notuð er hætta á að hluturinn skemmist. Hönnunarverslunin og vinnu-stofan Netagerðin fagnaði eins árs afmæli fyrir helgina en að henni standa sex hönnuðir og arkitektar. Þóra Breiðfjörð keramikhönnuður er nýjasti meðlimur Netagerðarinnar en hún gekk til liðs við hópinn fyrir mánuði. „Ég sé svo sannarlega ekki eftir því, þetta er ótrúlega flott búð og flottir hönnuðir sem standa að þessu. Við seljum okkar hönnun beint til við- skiptavina og engir milliliðir koma þar að. Við stöndum líka sjálfar vaktina í búðinni til skiptis,“ segir Þóra og virð- ist kunna vel við sig bak við búðar- borðið. Hún segir jólaverslunina við það að fara í gang og í Netagerðinni verði líflegt á aðventunni. „Við ætlum að vera með jóladaga- talsleik og bjóða á hverjum degi af- slátt af einhverri ákveðinni vöru fram að jólum. Það verður hægt að fylgjast með því á Facebook.“ Þóra hefur starfað sem keramik- hönnuður undanfarin sjö ár en hún lauk námi frá Listaháskólanum árið 1999. Hún hannar nytjahluti fyrir heimilið og er nýjasta línan hennar fáanleg í Netagerðinni. „Nýjustu vörurnar mínar eru köku- diskur á renndum fótum og litlir bjölluvasar með perlum. Vasarnir eru úr postulíni svo það klingir í þeim þegar þeir eru hristir.“ Þóra vinnur allar sínar vörur í Hafnarfirði þar sem hún býr og rekur verkstæði að Skúlaskeiði 42. Hún ætl- ar einnig að opna dyrnar á vinnustof- unni sinni á aðventunni. „Það verður opið hjá mér 8. desember. Það er svo gaman að fá sér bíltúr í Hafnarfjörð- inn á aðventunni, og koma þá við hjá mér í leiðinni,“ segir hún hlæjandi. Nánar má forvitnast um hönnun Þóru á www.thorabreidfjord.is. NÝ Í NETAGERÐINNI ÍSLENSK HÖNNUN Þóra Breiðfjörð keramikhönnuður er nýjasti meðlimur Netagerðarinnar á Nýlendugötu. Netagerðin fagnaði ársafmæli á dögunum. NÝ Í NETAGERÐINNI Þóra Breiðfjörð keramik- hönnuður bættist í hóp hönnuðanna sem standa að versluninni og vinnu- stofunni Netagerðinni við Nýlendugötu. MYND/GVA GERÐU UPP GAMALT Ýmislegt þarf að hafa í huga þegar gera á upp gam- alt húsgagn. Hér eru nokkrar ráðleggingar sem gætu komið til góða og minnst á hvað beri helst að varast. Jólaskór á alla fjöl skyld una á frábæru verði! facebook. com/ skooutlet OUTLET-SKÓR | FISKISLÓÐ 75 | 101 R EYKJAVÍK Opið: mán-fös 13-18 & lau 12-16 sími: 514 4407 Stráka skór St. 27–35 Stelpu skór St. 27–35 aðeins kr.9.900 aðeins kr.7.900 Dömu skór St. 36–41 arna skórB St. 27–35 kr.7.900 aðeins aðeins 4.900 kr. aðeins kr.5.900 Dömu skór St. 36–41 Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is Velkomin í okkar hóp! E F L IR a lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g ra f í s k h ö n n u n Innritun hafin á janúarnámskeið Námskeiðum fylgir frjáls mæting í tækjasal Innritun í síma 581 3730 TT tímar í boði: 6:15 A mánu-, miðviku- og föstud 7:20 C mánu-, miðviku- og föstud 10:15 D mánu-, miðviku- og föstud Barnapössun 14:20 G mánu-, miðviku- og fimmtud 16:40 H mánu-, miðviku- og fimmtud Barnapössun 17:40 I mánu-, miðviku- og fimmtud Barnapössun 18:40 J mánu-, miðviku- og fimmtud 18:25 TT3 mánudagar, fyrir 16-25 ára. 70 mínútur 19:40 TT3 miðvikudagar, fyrir 16-25 ára. 70 mínútur TT tímar í boði á Akranesi: 6:15 S1 mánu-, miðviku- og föstud 17:30 S3 mánu-, miðviku- og fimmtud Lengri námskeið - betra verð. 16 vikur 3x í viku 49.900. 8 vikur 3x í viku 29.900 Hringdu núna til að tryggja þér pláss!* Þær konur sem eru á námskeiðum núna, ganga fyrir!* Sjáðu frábæran árangur haustsins á vefnum! Viltu léttast og styrkjast og losna úr vítahringnum? Þú getur strax byrjað að æfa! Um leið og þú skráir þig á námskeið og greiðir fyrir það geturðu strax byrjað að æfa – sækja tíma í opna kerfinu okkar og tækjasal þar til námskeiðið hefst

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.