Fjarðarpósturinn - 27.02.1986, Blaðsíða 6
6
FJARÐARPÓSTURINN
— HEILSUHORNIÐ —
Spurt um kosningar
KONULÆRIN
Frá alda öðli hafa konulærin
verið mikið umhugsunarefni. A 19.
öldinni má sjá í málaralistinni túlk-
un Renoir á kvenlegri fegurð. Á
þeim tíma speglaðist fegurðin í
bústnum, þéttholda konum með
stórar rasskinnar og gild læri. Á
tíma tækni og velmegunar hafa
gildu lærin hins vegar orðið konum
áhyggjuefni og þær talið gildleik-
ann vera í öfugu hlutfalli við yndis-
þokkann. Um álit karlmanna á
þessu máli verður ekki fjallað að
sinni.
Á síðustu árum hafa augu rann-
sóknarmanna m.a. beinst að fitu-
dreifingu líkamans og þá ekki síst
þessu sérstaka fyrirbæri, einkenn-
um konunnar að hafa tilhneigingu
til að safna fitu á neðri hluta líkam-
ans. Það er því ekki úr vegi að skýra
í örstuttu máli frá helstu niðurstöð-
um þessara athugana.
Sýnt þykir að fita, sem safnast á
rasskinnar- og læri lýtur öðrum
lögmálum en fita annars staðar á
líkamanum og þetta á sérstaklega
við um konur. Fita á þessum stöð-
um á það til að aukast með aldrin-
um og sérstaklega eftir að konur
hafa eignast börn. Einnig er það
sérstak við þessa fitu að það virðist
mjög erfitt að ná henni af aftur t.d.
með megrun eða íþróttum. Einnig
hefur komiö í Ijós að þessi fita er
ekkert sérlega hættuleg hvað varðar
hjarta- og æðasjúkdóma eða sykur-
sýki. Hún virðist einnig meira háð
öðrum efnaskiptum en önnur fita.
T.d. kemst mikil hreyfing á þessa
fitu þegar konur hafa börn á
brjósti. Það hefur því verið sett
fram sú kenning að orkan í þessari
fitu sé einhvers konar næringar-
forði fyrir mjólkurframleiðslu.
Þessar staðreyndir gætu e.t.v. orðið
nokkur huggun fyrir þær konur,
sem berjast við aukakílóin, sem
staðsett eru á þessum stöðum og
Kvenleg fegurð eða orkubú brjóst-
mylkinga?
Teikningu gerði Ása Ólafsdóttir,
Hafnarfirði.
jafnframt ábending til karlanna um
það að þessi fita er mun hagstæðari
en sú sem þeir safna stundum, sem
bjarghring í kringum miðjuna.
Jóhann Ág. Sigurðsson
Grval fermingargjafa!
Postulínsbrúður á góðu verði.
j, Drykkjarkönnur frá
| Kolbrúnu Kjarval merktar
| fermingarbarninu ef óskað er.
c
Reykjavíkurvegi 50
sími 54110
JE
Þegar Fjarðarpóstsmenn litu við á kjörstöðum sl. laugardag var kjör-
sókn heldur dræm. Okkur tókst þó að króa af nokkra kjósendur og spurð-
um um álit þeirra á kosningum sem þessum. Einnig reyndum við að hnýsast
í skoðanir þeirra á opnun útsölu í bænum.
Sigurbjörg Hjartardóttir: Mér
finnst það sjdlfsögð mannréttindi
að úr þessum mdlum sé skorið ú
þennan hútt og mér finnst að allir
œttu að nota þann rétt. Það er svo
ekkert leyndarmúl að ég er fylgj-
andi opnun útsölu í bœnum.
Púlmar Ögmundsson: Mér finnst
rétt af bœjaryfirvöldum að leggja
þetta svona fyrir og fú úlit bœjar-
búa ú múlinu. Ég er að sjúlfsögðu
með því að hér sé opnuð utsala.
Sveinn Magnússon: Mér finnst eðli-
legt að kjósa um þessa hluti, en ég
er alveg ú móti því að opna hér út-
sölu.
Hulda Runólfsdóttir: Jú, mér
finnst það úgcet rúðstöfun að
bæjarbúar taki úkvörðun um svona
múl í kosningu. En þetta er leynileg
kosning og því gef ég auðvitað ekki
upp hvað ég kaus!
Guðmundur Ásgeirsson: Mér
finnst úgœtt að lúta kjósa um þetta.
Ég vil lúta opna hér útsölu. Við
eigum ekki að þurfa að fara I
Reykjavík til að kaupa vín.
Jóhanna Linnet: Ég ersammúla því
að bcejarbúar sjúlfir skeri úr um
það hvort hér verði úfengisútsala.
Ég segi JÁ.
Auglýsingasimar Fjarðarpóstsins:
651745 • 51261 • 51298 ■ 53454