Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 27.02.1986, Síða 7

Fjarðarpósturinn - 27.02.1986, Síða 7
FJARÐARPÓSTURINN 7 — ORÐIÐ ER LAUST! — Nokkur orð um Smárahvamm Ég skil nú ekki af hverju bœjar- stjórn vill ekki opna Smárahvamm- inn. Það er kannski vegna þess að viss maður vill ekki hafa „alltof mikla umferð“ framhjá húsinu sínu. Hann sleppur hinsvegar við að þurfa að spóla í þrjú korter upp þessa bröttu brekku með því að „parkera“ bara fyrir neðan hindrunina þar sem það hvort eð er jafnlangt heim til hans fyrir ofan og neðan hindrunina. Ef bœjarstjórn œtti funaarstað í Smárahvammin- um yrðu þeir ekki lengi að opna alla þrjá vegina í kringum hann svo þeir þyrftu ekki að keyra hing I kringum fundarstaðinn til að komast að og frá, að ég tali nú ekki um spólið á veturna. Flensborgari. Svar skipulagsfulltrúa Blaðið hafði samband við skipu- lagsfulltrúa, Bjarka Jóhannesson, og spurði hann á hvaða forsendu þessi lokun hefði átt sér stað. Kvað hann skipulagsnefnd hafa óttast að mjög mikil umferð úr Smára- hvammi, Fagrahvammi og svoköll- uðum B-reit myndi beinast út á þessa tengingu. Á B-reitnum á að byggja fjölbýlishús í framtíðinni. Að áliti skipulagsnefndar myndu allir stytta sér leið um Smára- hvamminn sem er bein leið I stað þess að fara Suðurhvamm sem að vísu er lengri leið og krókóttari. Þetta er það nálægt gatnamótum Ásbrautar að ekki þótti fýsilegt að fá svona mikla umferð um gatna- mótin. Um Ásbrautina yrði í fram- tíðinni þung umferð stórra bíla sem tengdust höfninni. Þetta yrði kannski ekki mikil umferð en að sama skapi þung. Hestamaöur spyr Hvernig stendur á því að bíl- stjórar Bílastöðvar Hafnarfjarðar neita að sœkja menn í hesthúsa- byggðina við Kaldárselsveg. VHja þeir frekar að við snúum okkur til Reykjavíkurfélaganna? Hestamaður Þakkir til víðistaðakórs Mig langar til að koma á fram- fœri þakklœti mínu til þeirra sem stóðu að skemmtikvöldi í Veitinga- húsi A. Hansen fimmtudaginn 6. febrúar. Þar fór fram hin skemmti- legasta dagskrá með kórsöng, upp- lestri og gamanvísnasöng sem fjall- aði um þorrann. Þar var að verki Víðistaðakórinn ogskemmtiég mér alveg konunglega, enda fengum við áheyrendurnir að syngja með í mörgum lögum. Þetta framtak þeirra er mjög lofsvert og ti! þess fallið að Hfga upp á bœjarlífið hér I Hafnarfirði, sem að undanförnu hefur verið í daufara lagi. Svo vel var að þessu skemmtikvöldi staðið að það jafnaðist fullkomlega á við skemmtiþœtti sem maðursér Isjón- varpinu. Því miður var þessi skemmtun ekki mikið auglýst og óttast ég því að hún hafi farið framhjá mörgum. Ég vona að kórinn og forráðamenn A. Hansen bæti úr betur og auglýsi næsta skemmtikvöld með góðum fyrirvara svo að maður missi ekki af svona góðri skemmtun. Hafnfirðingur Úrval af sælgæti og gosi. Brauö Kökur Mjólkurvörur Nýlenduvörur n Málning og málningarvorur Hjá okkur er úrvaliö! U=la LEIÐIN LIGGUR í IfJARIfOT LÆKJARGATA 32 PÓSTH. 53 HAFNARFIRÐI SlMI 50449 VELTAK VÉLAVERSLUN Hvaleyrarbraut 3 - X 54315 Umboðið í Hafnarfirði Kostabod sem ekki veidux endurtekid! Ford Escort LX ' 86 á aöeins kr. 409.000 Hef umráð yfir öríáum bílum. Bílaverkstœði Guðvardar Elíassonar Drangahrauni 2, s 52310 og 51550

x

Fjarðarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.