Fjarðarpósturinn - 27.02.1986, Side 10
10
FJARÐARPÓSTURINN
Ég hef verið lánsöm
Herdís heitir hún «g er Guð-
mundsdóltir. Við litum inn til henn-
ar um daginn í vistlega herberginu
hennar á Hrafnistu. Það þarf ekki
að kynna Herdísi fyrir þeim fjölda
Hafnfirðinga sem leitaði til hennar
hér á árum áður. í fjölda ára var
hún Ijúsmyndari og þeir eru ófáir
viðburðirnir sem hún hefur fest á
filmu. í um 20 ár annaðist hún
einnig myndatökur fyrir lögregluna
í Hafnarfirði. Giginmaður Her-
dísar, Guðbjartur heitinn Ásgeirs-
son, var einnig frábær Ijósmyndari
og meðal annars prýða margar Ijós-
mynda lians af skipum hýbýii
Hrafnistu.
„Mér líður vel hérna á Hrafnistu.
Auðvitað er best að vera heima ef
heilsan leyfir, en fólkið hér er alveg
yndislegt og ekki hægt að kvarta
yfir neinu. Guð hefur gefið mér
góða heilsu og fyrir það er ég þakk-
lát. Það er helst heyrnin og svo er ég
dálítið slæm í hnénu og á erfitt með
að hreyfa mig mikið. En það eru
allir boðnir og búnir að aðstoða
mig á alla lund.
Ég vona að þið farið nú ekki að
skrifa neitt um mig. Það er svo sem
ekki frá neinu að segja“, sagði
Herdís hógværlega. Þau hjón voru
með Ijósmyndaaðstoðu sína í kjall-
ara húss síns við Lækjargötu. „Mig
minnir að myndataka og framköll-
un á fyrstu myndunum hafi kostað
5 aura. Það er víst orðið eitthvað
hærra núna“, segir hún og hlær
glaðlega. Við fáum að skyggnast í
myndaalbúm og sjáum einnig
greinar sem um þau hjón hafa verið
skrifaðar. Við heitum því í hugan-
um að gera því merka starfi þeirra
hjóna skil síðar, því af nógu er að
taka.
„Ég er nú orðin 87 ára og er svo
lánsöm að geta unnið eitt og annað
í höndunum. Það eru námskeið
hérna í föndri og ég hef búið til
ýmsa hluti sem ég hef svo gefið.“
Á veggjum má sjá myndir eftir
Herdísi gerðar úr hundruðum
vindlamerkja. Fyrir nokkrum árum
mátti sjá þessar myndir hennar í
glugga Morgunblaðshússins þar
sem þær vöktu mikla athygli.
„Ég hef farið dáiítið um bæinn
og mér finnst allt hafa breyst svo
mikið. Ég þekki mig varla. En ég
uni mér hér vel og ég er svo lánsöm
að eiga indæl börn, barnabörn og
tengdadætur. Fyrir það verð ég
ævinlega þakklát“
Við látum staðar numið og
kveðjum Herdísi. En síðar munum
við, eins og áður sagði rifja upp
ýmislegt sem hefur á daga Herdísar
drifið á langri og starfsamri ævi.
5000. gesturinn á
„Fúsa froskagleypi"
Um síðustu helgi tóku félagar í
Leikfélagi Hafnarfjarðar á móti
5000. gestinum á leikritið „Fúsa
froskagleypi“. Fúsi, sem var frum-
sýndur í haust, hefur gengið mjög
vel og verður væntanlega á fjölun-
um 2-3 helgar í viðbót.
Nú eru æfingar hafnar á næsta
verkefni L.H., Galdra-Lofti eftir
Jóhann Sigurjónsson. Leikstjóri
verður Arnar Jónsson, en í hlut-
verki Lofts verður Hallur Helga-
son, sem nú mætir aftur til leiks
eftir nokkurt hlé. Nokkur önnur
„gömul“ andlit koma til með að
sjást í Galdra-Lofti, þótt kjarninn
verði sá sami og í síðustu verkum
L.H. Óvíst er hvenær Galdra-Loft-
ur verður frumsýndur, en það verð-
ur væntanlega ljóst bráðlega.
Snvrtivöruverslunín
SANDRA
Reykjavíkurvegi 50
S 53422
Herrailm urinn
frá AZZARO
nýkominn
Fjaröarpósturínn spyr:
Býstu við þyngri
sköttum í ár en í
fyrra?
Ellert Ólafsson.
Nei, ég býst ekki við því. Ég
skulda meira núna.
Þóra Baldursdóttir.
Jú, ég geri það.
Sigurður Aðalsteinsson.
Já, ég býst við því. Ég þénaði
meira.
Böðvar Sigurðsson.
Nei, ég býst ekki við því.