Fjarðarpósturinn - 25.02.1988, Page 4
4
FJARÐARPÓSTURINN
Vígsla Víðistaðakirkju
sunnudaginn 28. febrúar.
Kirkja síðast vígð í Hafnarfirði 1914.
Merkum og langþráðum kirkju-
legum áfanga verður náð nk.
sunnudag kl. 14. Þá mun biskup ís-
lands, Herra Pétur Sigurgeirsson,
vígja Víðistaðakirkju.
Víðistaðasöfnuður getur ekki
talist kominn til ára sinna, því hann
var stofnaður 1977. Frá upphafi
hefur sr. Sigurður Helgi Guð-
mundsson verið þjónandi prestur í
Víðistaðasókn. Sigurður lauk guð-
fræðiprófi 1970 og var veitt Reyk-
hólaprestakall um haustið sama ár.
Árið 1972 vígðist Sigurður til Eski-
fjarðarprestakalls og var þar til vors
1977 er hann vígðist til Hafnar-
fjarðar, nánar tiltekið til Víðistaða-
sóknar.
Öll árin sem Sigurður hefur
þjónað í Hafnarfirði hefur messu-
hald farið fram að Hrafnistu. Hann
hefur því mjög tengst öldrunarmál-
um og starfað mikið á þeim vett-
vangi. Frá 1978 hefur Sigurður ver-
ið í stjórn Ellimálasambands Norð-
urlanda. Hann hefur verið formað-
ur Öldrunarráðs íslands frá stofn-
un þess, setið í samstarfsnefnd um
málefni aldraðra frá 1982 og var
formaður þingkjörinnar nefndar
sem skipulagði „ár aldraðra“ 1982.
Af hálfu kirkjunnar tók Sigurður
síðan þátt í undirbúningi og bygg-
ingu Umönnunar- og hjúkrunar-
heirnilisins Skjóls við Kleppsveg í
Reykjavík, sem nýlega er tekið til
starfa.“
Við spyrjum Sigurð fyrst hvenœr
farið varað huga að byggingu Víði-
staðakirkju.
„Það var að sjálfsögðu frá upp-
hafi Ijóst að byggja þyrfti kirkju í
Víðistaðasókn. Sóknin var stofnuð
1. janúar 1977 og þá þegar var farið
að ræða byggingu kirkjunnar. Sótt
var fljótlega um lóð fyrir kirkju og
það tók alllangan tíma að fá hana.
Ýmsir staðir komu sjálfsagt til
greina en niðurstaðan varð sú að
okkur var veitt lóð í landi Víði-
staða.
Fyrsta skólfustungan var síðan
tekin sumardaginn fyrsta 1981 en
framkvæmdir hófust ekki fyrir al-
vöru fyrr en undir áramót það ár.
Það má því segja að það sem nú er
komið hefur tekið rösk sex ár. Hins
vegar þætti það ekki gott til af-
spurnar ef fjölmennt skólahverfi
hefði ekki í neinn skóla að venda í
tíu ár. En miðað við kirkjubygging-
ar almennt hlýtur sá tími sem
kirkjubyggingin hefur tekið að telj-
ast vel viðunandií*
Nú telst Víðistaðasöfnuður all stór.
Hefur ekki verið erfitt að vera án
kirkju þennan tíma?
„Alls eru um 6000 manns í Víði-
staðasöfnuði og við höfum víða
þurft að leita með aðstöðu. Það er
því ljóst að þetta aðstöðuleysi hefur
verið mjög erfitt fyrir jafn fjöl-
mennan söfnuð"
Telst Víðistaðakirkja stór bygging?
„Þetta er ekki stór kirkja og frek-
ar í minna lagi ef eitthvað er. Hún
gerir ekki meira en að rúma nauð-
synlegt safnaðarstarf. Hins vegar er
hún þannig hönnuð að hægt er að
samnýta rými mjög vel. Vel sést til
altaris frá nær öllum stöðum í
kirkjunni. Hægt er að stækka
kirkjuskipið með því að opna hlið-
arsali. Kirkjuskipið rúmar um 350
sæti og með því að opna hliðarsal-
ina má koma fyrir rúmlega 200 í
viðbót. Þá er einnig rými á svölum.
í hugum margra er kirkja fyrst og
fremst salarkynni, þar sem guðs-
þjóiiusta fer fram. En safnaðarstarf
nær til margra þátta. Má þar nefna
barna og unglingastarf, trúnema-
fræðslu, þjónusta við aldraða, al-
mennt félagsstarf í söfnuði og tón-
leikahald af ýmsum toga. Við höf-
um því einnig lagt á það mikla
áherslu að hljómburður verði þarna
eins og best gerist og okkur virðist
hafa tekist að ná því markmiði. Þeir
sem vel þekkja til hljómburðar hafa
lokið upp einum rómi um hljóm-
gæðin. Það má því búast við að
kirkjan verði mjög eftirsótt til tón-
listarhalds af ýmsum toga. Það hef-
ur því tekist að byggja hús með
framúrskarandi góðum hljómburði
og slík hús eru ekki mörg hérlendis"
Ef við snúum okkur þá að vígsl-
unni. Þetta er mjög hátíðleg at-
höfn.
„Já, hún er það. Nú eru liðin um
74 ár'siðan síðast var vigð kirkja i
Hafnarfirði. Fríkirkjan var líklega
vígð 1913 og Hafnarfjarðarkirkja
1914. Hins vegar tók þá mun
skemmri tíma en nú að byggja
kirkju! Þess ber að geta að kapellur
hafa verið vígðar, bæði við St.
Jósefsspítala og að Hrafnistu og
einnig greftrunarkapellan í kirkju-
garðinum og að sjálfsögðu Karmel-
klaustrið.
Það sem fram fer á sunnudaginn
er venjubundin kirkjuvígsla, þar
sem biskup íslands, Herra Pétur
Sigurgeirsson, vígir Víðistaða-
kirkju og prédikar. Prófastur ásamt
öðrum prestum aðstoða við athöfn-
ina. Þarna verður mikill fjöldi sam-
an kominn og má gera ráð fyrir að
um 800 til lOOOmanns verði í kirkj-
unni. Við gerum ráð fyrir að um
700 manns komist í sæti. Ég vona
að sem allra flestir taki þátt í þessari
hátíðarstund með okkur. Þetta
verður einnig í fyrsta sinn sem menn
geta litið kirkjuna augum eins og
hún kemur til með að verða næstu
árin. Þó freskumyndverk Baltasar
hafi verið til sýnis um tíma sl. vor,
eru aðstæður allt aðrar núna þegar
innréttingu kirkjunnar er lokið.
Að lokinni messu er boðið í
kirkjukaffi sem gera má ráð fyrir að
hefjist kl. 16. Verður það í íþrótta-
húsi Víðistaðaskóla"
Hefur ekki verið erfitt að fjár-
magna kirkjubygginguna?
„Jú, það hefur verið erfitt. Sókn-
argjöldin hafa verið það lág, að þau
hafa ekki skipt neinum sköpum.
Þess vegna hefur verið reynt með
alls konar ráðum öðrum að safna fé
til byggingarinnar. Hins vegar stóð
kirkjan þannig að þegar lokaátakið
hófst á sl. ári, þá var hún skuldlaus.
Það er fyrst þegar lokaátakið hófst
að tekin hafa verið lán. Þess ber
einnig að geta að nú þegar vígsla á
sér stað er kirkjan nánast tilbúin.
Það eru aðeins eftir loftsalir, sem
ætlaðir eru fyrir unglingastarf, og
það er ekki mikið mál að ljúka við
þá einnig. Einnig vantar viðeigandi
efni á gólfið, en öðru að heita má
lokið. Þó bíður turninn seinni
tíma!‘
Freskumyndverk Baltasar hefur
tekist mjög vel. Er þetta ekki ein-
stakt listaverk hérlendis?
„Kirkjan er mjög fögur bygging
og segja má að á ýmsan hátt sé hún
mótuð að myndverkinu. Ég tel að
sambærilegt listaverk eins og freska
Baltasar sé ekki að finna nema suð-
ur á Ítalíu og Spáni. Það er því ljóst
að kirkjan hefur mikið aðdráttarafl
fyrir ferðamenn, sem gagngert
koma til þess að líta listaverkið
augum.
Hvað er þér ofarlega í huga á þess-
um tímamótum?
„Méf er að sjálfsögðu ofarlega í
huga þakklæti til þeirra fjölmörgu
er aðstoðað hafa okkur á alla lund.
Má þar fyrst telja Hrafnistu í Hafn-
arfirði, en þar hefur aðalmessu-
staður safnaðarins verið hingað til.
Hafnarfjarðarkirkja hefur veitt
okkur ómetanlega aðstoð á einn og
annan veg. Við höfum notið gest-
risni í Víðistaðaskóla, Slysavarnar-
húsinu og Fríkirkjan, Garðakirkja
og Bessastaðakirkja hafa ósjaldan
hlaupið undir bagga með húsnæði
varðandi athafnir. Við sjáum á
þessari upptalningu að starfið hef-
ur verið afar dreift og hefur í raun
farið fram á enn fleiri stöðum og oft
erfitt að koma þessu heim og sam-
an. Raunar hefur einnig orðið að
fella sumt starf niður eða draga úr
vegna húsnæðisleysis. Má þar
nefna starf meðal þroskaheftra og
unglingastarf.
Þá eru þeir fjölmargir, bæði ein-
staklingar og fyrirtæki sem lagt
hafa kirkjubyggingunni lið með
sjálfboðastarfi og stuðningi öðr-
um. Eins hafa margir gefið kirkj-
unni stórgjafirr í tilefni vígslunnar.
Ógerningur er að telja hér upp alla
þá sem komið hafa við sögu. Mjög
mikið hefur mætt á sóknarnefnd og
byggingarnefnd að hrinda þessu í
framkvæmd. Ekki verður þó hjá
því komist að nefna nöfn þeirra
Einars S. M. Sveinssonar, formanns
sóknarnefndar og Skúla Þórssonar,
formanns byggingarnefndar. Þeirra
starf er ærið að vöxtum.