Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 25.02.1988, Page 10

Fjarðarpósturinn - 25.02.1988, Page 10
10 FJARÐARPÓSTURINN „SJÁVARRÉTTADAGUR" ELDBORGAR Kiwanisklúbburinn ELDBORG í Hafnarfirði heldur sinn 9. „Sjávar- réttadag“ í veitingahúsinu GLÆSI- BÆ í Reykjavík laugardaginn 27. febrúar n.k., og hefst hann kl. 12.00 á hádegi. Klúbburinn hefur unnið að ýms- um líknar- og menningarmálum í þau 19 ár sem hann hefur starfað. Það hafa einkum verið velferðar- mál barna og unglinga en þó sér- staklega aldraðra sem klúbburinn hefur beitt sér fyrir. Styrktarnefnd ELDBORGAR mun að þessu sinni bjóða fulltrúum styrkþega að vera viðstaddir „Sjáv- arréttadag" og verður þeim afhent fjárupphæð við það tækifæri. Þessir aðilar eru: MS-félagið, Félag Krabbameinssjúklinga, íþróttafé- lag fatlaðra og Endurhæfingarstöð Sjúkrahússins Sólvangs. Aðal fjáröflun klúbbsins er „Sjávarréttadagurinn" og hefur hann notið vaxandi vinsælda meðal Kiwanismanna og gesta þeirra á undanförnum árum. Þarna eru á boðstólum réttir búnir til úr svo til öllu sem ætt er og finnst í sjónum við íslandsstrendur. Það verður soðið, steikt, grillað, saltað, reykt, grafið og hrátt. Málverkauppboð er fastur liður í „Sjávarréttadegi“ og meðal þeirra listamanna sem eiga verk á uppboð- inu nú eru t.d., Atli Már, Eiríkur Smith, Gísli Sigurðsson, Hreinn SJAVAKRETTA- DAGUR ELDBORGAR 27. FEBRÚAR1988 Elíasson, Jón Gunnarsson, Ómar Svavarsson og Pétur Friðrik. Einnig verður í boði happdrætti með fjölda góðra vinninga, m.a. ferðavinningar. Til skemmtunar verður, tónlist, grín, söngur og leynigestur ELD- BORGAR. Heiðursgestur ELDBORGAR verður að þessu sinni Halldór Ásgrímsson og mun hann ávarpa veislugesti. Verð aðgöngumiða er kr. 2.500r □QE JÁRNRÚM Bœöi hjónarúm og einstaklings. REYKJAVÍKURVEGI 66 ■ 220 HAFNARFIRDI _________SÍMI 54100------------ Vinsamlega greiðið rafmagnsreikninga fyrir eindaga. GREIDD SKULD ER GULLI BETRI

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.