Fjarðarpósturinn - 20.04.1988, Síða 2
- segir Egill Friöleifsson, stjómandi kórsins, í viðtali við Fjarðavpóstinn
Óðum dregur nær því, að kór Öldutúnsskóla, sem getið hefur sér
frægð víða um heim á síðustu árum, leggi í enn eina heimsreisu sína - í
þetta skiptið að „heimsenda“ eins og ferðin hefur verið kölluð.
Afangastaðirnir í ferð kórsins eru Hong Kong, Ástralía og Thailand,
þar sem kórnum hefur verið boðið að taka þátt í kóramótum. Með
þessari ferð sinni hefur kórinn náð þeim áfanga að syngja í öllum
heimsálfum og er það vafalítið einstakt á meðal hérlendra kóra og þótt
víðar væri leitað. Fjarðarpósturinn sneri sér til Egils Friðleifssonar,
stjórnanda kórsins, og innti hann eftir því hvað ylli því eiginlega að litl-
um barnakór frá Hafnarfirði á Islandi af öllum löndum væri boðið til
svo fjarlægra landa.
Orðspor
„Ástæðan fyrir því að okkur er
boðið til þessara staða er einfald-
lega sú, að kórinn hefur getið sér
gott orð á liðnum árum. Það góða
orðspor hefur náðst fyrst og
fremst með geysilega mikilli vinnu
og ströngum æfingum. Efnisskrá-
in vekur jafnan mikla eftirtekt,
einkum á meðal tónlistarmanna.
Þar er að finna samtímaverk, sem
eru ákaflega erfið og snúin í flutn-
ingi og satt að segja er hægt að
telja þá barnakóra á fingrum ann-
arrar handar sem fást við slík
verk, auk þess sem íslensku þjóð-
lögin þykja forvitnileg. Til mín
berst jafnan fjöldi fyrirspurna um
þessi verk og sjálfur hef ég farið
utan, bæði til Evrópu og Ameríku
sem leiðbeinandi á námskeiðum,
þar sem nútímaverkin og túlkun
þeirra hafa verið kynnt. Börnin
hafa verið reiðubúin til að leggja
mikið á sig og reyndar ekki bara
þau heldur allir sem að kórnum
hafa staðið.“
- Hvenœr leggið þið upp íþessa
miklu ferð?
„Við leggjum upp til Hong
Kong þann 8. júlí næstkomandi
og verðum í rúmar þrjár vikur á
ferðalagi. í Hong Kong tökum við
þátt í alþjóðlegu kóramóti ásamt
m.a. Hong Kong Children's
Choir, sem við sóttum heim fyrir
sex árum. Koma okkar þangað
vakti mikla athygli þá og við höf-
um ítrekað fengið boð um að
sækja Hong Kong heim aftur en
ekki getað séð okkur það fært
fram að þessu. Svona ferðalög eru
dýr og krefjast mikillar undirbún-
ingsvinnu."
- Hafið þið kannski fengið fleiri
boð að utan sem þið hafið ekki get-
að þekkst?
„Já, við höfum fengið boð um
að koma hingað og þangað á
hverju ári, t.d. frá Washington,
Ungverjalandi og Barcelona sem
aðeins nokkur dæmi séu nefnd. í
mínum huga er það hreint ekki
sama hvort okkur er boðið að
koma með kórinn eða hvort við
sækjum eftir því að fá að heim-
sækja fjarlægar þjóðir."
Mikill heiður
- En ef við víkjum aftur að sjálfu
ferðalaginu, hvert erferðinni hald-
ið frá Hong Kong?
„Þaðan höldum við til Can-
berra, höfuðborgar Ástralíu, og
tökum þátt í alþjóðlegu móti á
vegum ISME - International Soc-
iety For Music Education - sem
eru samtök innan UNESCO. Það
er okkur því mikill heiður að fá að
taka þátt í þessu móti. Mótið er
haldið annað hvert ár og okkur
þykir það í senn skemmtilegt og
forvitnilegt að vita til þess, að kór
Öldutúnsskóla er til á kortinu hjá
su fólki og ánægjan verður að
..jálfsögðu enn meiri við það að
okkur er boðið á þetta mót. Við
dveljum í vikutíma í Canberra og
höldum síðan til Sydney, þar sem
við tökum þátt í miklum hátíða-
höldum sem Ástralir hafa skipu-
lagt til þess að minnast þess að í ár
eru 200 ár liðin frá landnámi Evr-
ópubúa. Lokapunkturinn í ferð-
inni er svo Bangkok í Thailandi en
þar sem dagskrá dvalarinnar þar
er ekki ljós er ekki rétt að fara
nánar út í þann lið.“
- Nú er Ijóst, að skólahaldi verður
löngu lokið þegar þið leggið af
stað í þessa miklu ferð. Verður
ekki erfitt að halda kórnum saman
til œfinga í sumar?
„Eg á ekki von á því. Þessir
krakkar eru vanir því að leggja
mikið á sig og æfa stíft. Sem dæmi
um það get ég nefnt, að við æfðum
alla daga í páskafríinu sjálfan
páskadag. Við gerum okkur það
alveg Ijóst, að til þess að vera vel
undir ferðina búin þurfum við að
æfa gífurlega mikið. Æfingin
skapar meistarann og það
„mottó" höfum við haft að leiðar-
ljósi öll þau ár sem kórinn hefur
starfað.“
- Nú er það alkunna, að börn eru
námfús en er ekki erfitt að þjálfa
upp góða barnakóra?
„Jú, það er ákaflega erfitt en
eins og reynslan hefur sýnt er það
vel hægt með mikilli elju og ástund-
un, jafnt stjórnanda sem barn-
anna í kórnum. Það versta við að
æfa barnakóra er að loksins þegar
þeir eru orðnir „fullnuma" eru
börnin vaxin frá manni. Kórinn
okkar núna er þó skipaður t.d.
mun yngri börnum var þegar við
fórum í Kínaferðina og meðalald-
urinn þremur árum lægri.“
Dýrt ferðalag
- Það liggur Ijóst fyrir, aðferðin til
Asíu og Astralíu kemur til með að
verða kostnaðarsöm, hversu dýr
er hún nákvœmlega?
„Heildarkostnaður er um þrjár
milljónir króna og af þeirri upp-
hæð þarf kórinn sjálfur að leggja
fram 2/3 hluta. Þriðjungur kemur
beint frá kórmeðlimum og farar-
stjórn en annar þriðjungur frá
Kórsjóði svokölluðum sem sér um
alls kyns fjáröflun. Við ætlum út í
blaðaútgáfu, happdrætti og höf-
um verið með söngskemmtanir og
kökubasara svo fátt eitt sé nefnt.
Tveir af samkennurum mínum
hafa reynst okkur alveg einstak-
lega hjálpsamir við þessa hlið
málsins en það eru þeir Hörður
Hilmarsson og Þórir Jónsson, auk
þess sem skólastjórinn, Haukur
Helgason, styður okkur með ráð-
um og dáð. Mestu skiptir þó í
heildarupphæðinni styrkur frá
Hafnarfjarðarbæ upp á 880 þús-
und krónur og 150 þúsund krónur
frá Alþingi. Framlag Hafnarfjarð-
arbæjar er í raun það sem gerir
útslagið í þessari ferð. Án þess
hefðum við aldrei lagt í þetta
mikla ferðalag," sagði Egill Frið-
leifsson að lokum.
HRAUNHAMAR
éé
Ví
FASTEIQriA- OQ
SKIPASALA
Reykjavíkurvegi 72,
Hafnarfirði - Sími 54511
Vantar allar gerðir eglna á skrá.
Höfum til sýnis allar teikn. og
bygg.lýsingar af íbúðum í fjöl-
býlishúsum við:
Suðurhvamm. 2ja, 3ja, 4ra og 5 herb.
íb. í byggingu. Skilasttilb. u. trév. Afh. fráapríl-
okt. ’89. og:
Fagrahvamm. 2ja, 3ja og 4ra herb. ib.
65-108 fm. Einnig 6 og 7 herb. íb. 166-180 fm,
hæð og ris. Bílsk. geta fylgt. Afh. tilb. undir trév.
í maí til júní 89. Þvottaherb. og geymsla í hverri
íb. Suðvestursvalir. Verð 2ja herb. frá 2-650
þús. 4ra herb. frá 4,1 milli og 6 herb. frá 5-650
þús. Bygg.aðili: Keilir hf.
Norðurtún - Álftanesi Giæsii. ein-
bhús á einni hæð með tvöf. bílsk. Samtals 210
fm. Parket á gólfum. Arinn í stofu. Fallegur
garður. Einkasala. Verð 9 millj.
Jórusel - einb./tvíb. Nýtt 252 fm
(nettó) hús á þremur hæðum. íbhæft en ekki
fullb. Séríb. í kj. skipti mögul. á minni eign í
Reykjavík. Verð 9,5 millj.
Lyngberg - nýtt raðhús.
Glæsil. 141 fm raðhús á einni hæð
auk 30 fm bílsk. Húsið er til afh. fljótl.
tilb. u. trév. Skipti æskil. á 3ja herb.
íb. í Hafnarfirði. Verð 7,5 millj.
Breiðvangur - raðhús.
Mjög fallegt 147 fm endaraðhús á
einni hæð, auk 30 fm bílsk. 4 svefnh.
Húsið er mikið endurnýjað m.a. nýtt
eldhús. Einkasala. Verð 9 millj.
Álfaskeið í byggingu. Giæsii. i87fm
einbhús. auk 32 fm bílsk. Afh. fokh. innan, fullb.
að utan í júlí-ágúst. Mögul. að taka íb. uppí.
Verð 6,3 mmillj.
Tjarnarbraut - Hf. Mikið endum. 130 im
einbhús á tveim hæðum. Nýjar innr. Blóma-
skáli. Bílsk. Einkasala. Verð 7 millj.
Fagraberg. 130 fm eldra timburhús á 2
hæðum. Verð 5 millj.
Stekkjarkinn. Mikið endurn. 155 fm 6
herb. efri hæð. Bílskréttur. Garðhús. Verð 6,6
millj.
KeldUhvammur.Mjögfallegl115fm4ra
herb. jarðh. Ný eldhinnr. Þvhús innaf eldh. Allt
sér. Einkasala. Verð 5 millj.
Öldutún. 117 fm 5 herb. efri hæð. Bílskrétt-
ur. Verð 4,8 millj.
Suðurhvammur sérh. og raðhús.
Mjög skemmtil. 220 fm raðhús. Verð 5,2-5,4
millj. Einnig 110 fm 4ra herb. efrih. + bílsk.
Verð 4,4 millj. 95 fm 3ja herb. neörih. Verð 3,3
millj. Afh. fokh. innan, fullb. utan eftir 4 mán.
Teikn á skrifst.
Hjallabraut. Mjög falleg 117 fm 4ra-5
herb. íb. á 4. hæð. Gott útsýni. Lítið áhv. Einka-
sala. Laus 1. sept. nk. Verð 5,3 millj.
Laufvangur. Mjög falleg 117 fm 4-5 herb.
íb. á 1. hæð. Áhv. 1150 þús. Verð 5,2 millj.
Álfaskeið með bílsk. Nýkomin96tm3
herb. íb. á 1. hæð. Góður bílsk. Skipti mögul.
Verð 4,4 millj.
Oldusloð. Mjög falleg 80fm 3ja herb. neðri
hæð. Nýjar innr. Verð 4 millj.
Hraunkambur. 85 fm 4ra herb. rish., lítið
undirsúð. Einkasala. Verð 3,8 millj.
Hraunhvammur. 85 fm 4ra herb. efri
hæð. Verð 4 millj.
Vesturbraut - 2 íb. 75 fm 3ja he*.
miðh. Verð 3,3 millj. og 3ja herb. risíb. Verð 3,1
millj.
Vitastígur Hf. Mjög skemmtil 72 fm 2ja-
3ja herb. risíb. Mikið endurn. Áhv. 900 þús.
Verð 3,2 millj.
Álfaskeið m/bíls. Miög falleg 65 fm 2ja
herb. íb. á 2. hæð. Einkasala. Verð 3,6 millj.
Öldugata-Hf. Mjög falleg 62 fm 2ja herb.
efri hæð. Verð 2,9 millj.
Melabraut. 2000 fm húsnæði, hentugt fyrir
fiskiðnað og þjónustufyrirtæki. 5,5 metra
lofthæð. Góðar aðkeyrsludyr.
Stapahraun. Nýtt iðnaðarhúsn. 144 fm á
jarðh. og 77 fm á efri h.
Stapahraun, iðn.húsn. 220 fm að
grunnfl. á 2 hæðum, auk 120 fm á jarðhæð.
Mögul. að kaupa í hlutum.
Sölumaður: Magnús Emilsson,
kvöldsími 53274.
Lögmenn:
Guðm. Kristjánsson, hdl.,
Hlöðvar Kjartansson, hdl.