Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 20.04.1988, Qupperneq 12

Fjarðarpósturinn - 20.04.1988, Qupperneq 12
Borgarafundur 3. maí n.k. Borgarafundur Fjarðarpóstsins og Útvarps Hafnarfjarðar verður haldinn 3. mái n.k. í Gafl-lnn. Hefst hann kl. 20.00 og verður í beinni útsendingu í Útvarpi Hafnarfjarðar. Fundarefni: Almenningasktur og þjónusta Landleiða Athugið: Tökum á móti fyrirspurnum fyrir fundinn og á honum skrif- lega og munnlega. Áskrifendasöfnun í fullum gangi Vinsamlegast hringiö í síma 651745 eöa 651945 (símsvari eftir lokun skrifstofu) og tryggið ykkur Fjarðarpóstinn. Sparisjóðurinn: JónasR. ráiinn Jónas Reynisson við- skiptafræðingur var þann 15. aprfl sl. ráðinn sparisjóðs- stjóri. Hann hefur gegnt starfi aðstoðarsparisjóðsstjóra og sem staðgcngill Þórs Gunn- arssonar frá því í maí 1987. Jónas er 27 ára. Hann lauk stúdentsprófi frá Verslunar- skóla íslands vorið 1981 og fjórum árum síðar prófi frá viðskiptadeild Háskóla íslands. Eiginkona Jónasarer Hanna Lára Helgadóttir. Gönguhópurinn Háeyri: Gönguhópurinn Háeyri á baka- leið úr Jósepsdal sl. sunnudag. Göngumenn voru, eins og sjá má, vel búnir og skóaðir og létu kulda- bola ekki angra sig. Hundruðustu gönguferðimi fagnað í Skíðaskálanum Hafnfírski gönguhópurinn Háeyri hélt hátíðlega hundruðustu gönguferð sina sl. sunnudag. Gengin var venjubundin sunnudags- ganga, að þessu sinni frá Litlu kaffístofunni við Sandskeið upp í Jós- epsdal og að lokinni göngunni var snæddur kvöldverður í Skíðaskálan- um í Hveradölum. Gönguhópurinn samanstendur af niðjum föðurs Geirs Gunnars- sonar alþingismanns, en hann hét Gunnar Ingibergur Hjörleifsson frá Litlu Háeyri á Eyrarbakka. Gunnar var sjómaður, fæddur 7. ágúst 1892, og fórst með togaran- um Sviða 2. desember 1941. Tugmilljónatjón í brnna: Áttatíu tom af vatni flutt til slökkvistarfs Tugmilljóna tjón varð í bruna á Hjólbarðaverkstæðinu að Drangahrauni 1, aðfararnótt sl. mánudags. Rannsókn á tildrög- um brunans stendur yfir, en Ijóst er að tjón er tilfinnanlegt. Tryggingaupphæð húsa er 35- 36 millj. kr., en þau eru tryggð hjá Samvinnutryggingum Vá- tryggingaupphæð véla og ann- arra innanstokksmuna hjá Almennum tryggingum er um 33 millj. kr. Ekki er ljóst, hversu mikið af vélbúnaði o. fl. er nýtanlegt. Vatnsskortur háði mjög störfum slökkviliðs. Fljót- lega kom í ljós, að vatnshanar voru vatnslitlir eða vatnslausir og því tekið það ráð að flytja vatn með flutningabíl. Voru flutt 80 tonn af vatni á brunastað. Meðfylgj andi mynd var tekin um hádegið á mánudag og þá rauk enn úr rústunum. Gönguhópurinn dregur nafn sitt af Litlu Háeyri og kallar sig Gönguhópinn Háeyri. Hópurinn hóf gönguferðir sínar fyrir tæpum tveimur árum og fer hvern sunnu- dag, að undanskildum hásumar- tímanum, í einnar til tveggja klukkustunda gönguferð. Yfir- leitt er farið snemma að morgni og komið heim fyrir hádegi. Við hittum hópinn á bakaleið úr Jósepsdalnum á sunnudaginn. Geir Gunnarsson gekk í farar- broddi og við spurðum hann á meðan við biðum eftir síðustu göngumönnunum til myndatöku um tildrög þess að fjölskyldan hóf þessi heilbrigðu ættartengsl. Hann sagði að upphafið mætti rekja til jarðarfarar, en þá voru menn á einu máli um að gaman væri að hittast oftar en aðeins við slíkar athafnir. Ákveðið hefði þá verið að hefja reglubundnar gönguferðir og mjög vel hefði tek- ist með framkvæmdir. Auk hollr- ar útiveru gefst ættingjum tæki- færi á að fylgjast með og spjalla saman um lífið og tilveruna. Geir hefður haldið gestabók yfir allar gönguferðirnar og kem- ur þar fram að samtals hafa um 60 manns tekið þátt í þeim frá upp- hafi og nær hópurinn yfir þrjár til fjórar kynslóðir. Á sumrin eru oft valdar leiðir sem eru léttar fyrir eldra fólk og ungviðið. Hópurinn hefur þegar lagt að baki allar gönguleiðir í Hafnarfirði og á Suðurnesjum og leitar í auknum mæli út fyrir bæjarmörkin. Þá er leigð rúta til fararinnar. Þeim bar þó saman um, að ganga mætti sömu leiðirnar mörgum sinnum því þær breyttu sífellt um svip eft- ir árstíma og veðri. Á dagskrá er m.a. gönguferð á Vífilfell í sumar. Fjarðarpósturinn óskar göngu- hópnum til hamingju með merkan áfanga. Við notum tækifærið og komum einnig á framfæri þessari bráðsnjöllu hugmynd um ættar- tengsl í öðru formi en veisluhöld- um við oftast fátíð tækifæri svo sem fermingar, giftingar og jarð- arfarir. 1. maí Útvarpið Samkvæmt heimildum Fjarðarpóstsins eru uppi hug- myndir hjá verkalýðsfélögun- um að færa hátíðarhöldin 1. maí inn í Útvarp Hafnarfjarð- ar. Mun hugmyndin byggð á dræmri þátttöku í útihátíðar- höldunum síðustu árin. Ekki liggur fyrir endanleg ákvörð- un.

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.