Fjarðarpósturinn - 26.05.1988, Síða 8
IÞROTTASIÐA FJARÐARPOSTSINS •'
Síðbúin mynd
af meisturum
4. fl. Hauka
Seint birtast sumir en birtast
þó... Þetta má til sanns vegar
færa þegar 4. flokkur Hauka í
körfuknattleiknum er annars
vegar. Strákarnir urðu íslands-
meistarar í sínum flokki fyrir
margt löngu en vegna mistaka
fórst myndbirting af þeim fyrir.
Hér eru þeir þó komnir á mynd-
inni hér til hægri. Á henni eru
eftirtaldir: Aftari röð frá vinstri:
Sigurður Jónsson, Björgvin
Viðarsson, Bjarni Ágústsson,
Arnar Grétarsson, Kjartan
Bjarnason, Heiðar Guðjónsson,
Guðbjartur Hafsteinsson, Jón
Arnar Ingvarsson og Ingvar
Jónsson, þjálfari. í fremri röð eru
frá vinstri: Gunnar Magnússon,
Guðbjartur Gunnarsson, Víðir
Stefánson, Sigurður Yngvi Krist-
insson, Steinar Hafberg og
Róbert Sverrisson.
VGGEUVCRK
BtOGWVBí,
r
1 vkD
Færi í súginn?
Af svip Ingvars Viktossonar hér að ofan mætti ráða að dauðafæri
hefði farið forgörðum, a.m.k. er Arnóri Guðmundssyni skemmt.
Myndin var tekin þegar bæjarstjórnin og aðalstjórn Hauka öttu
kappi á Fjölskyldudegi Haukanna fyrir nokkru.
Stórsamningur FH-inga
við Útvegsbanka íslands
- Ný búnings- og félagsaðsta&a tekin í notkun
Fyrsti heimaleikur FH-inga á
þessu keppnistímabili er á
morgun, föstudag. Mótherjarnir
verða liðsmenn KS frá Siglufirði
og má búast við fjörugum leik.
Útvegsbanki Islands að Reykja-
víkurvegi 60 í Hafnarfirði hefur
ákveðið að styðja rausnarlega við
bakið á Knattspyrnudeild FH nú í
sumar.
Að sögn Þóris Jónssonar, for-
manns knattspyrnudeildarinnar,
eru FH-ingar mjög ánægðir með
þennan stuðning og álíta hann
hvetjandi í alla staði. Þórir bætti
því við að samningurinn, sem
verður undirritaður fyrir leik FH
og KS, væri þríþættur. í fyrstalagi
fær FH ákveðna fjárupphæð við
undirskrift, í öðru lagi verður
greitt fyrir hvert mark sem FH
skorar í deildinni og í þriðja lagi
fær FH ákveðna upphæð ef félag-
ið nær að vinna sér sæti í fyrstu
deild. Samningurinn verður
undirritaður klukkan 18.40 fyrir
utan Útvegsbankann að Reykja-
víkurvegi 60 og jafnframt verður
boðið uppá skemmtiatriði í tilefni
dagsins. Boltaíþróttir verða sýnd-
ar og Túnfiskarnir taka lagið. Að
því loknu verður þrammað í
skrúðgöngu að Kaplakrika þar
sem leikurinn hefst klukkan
20.00.
En það er ekki bara samningur
við Útvegsbankann sem verður
undirritaður. Glæsileg búnings-
og félagsaðstaða verður formlega
tekin í notkun. En hún er staðsett
undir nýju stúkunni eins og flestir
vita. Leikmenn Meistaraflokksins
munu mæta til leiks í glænýjum
búningum sem gefnir eru af
Útvegsbankanum en allir flokkar
FH munu leika í búningum gefn-
um af bankanum nú í sumar.
Reyndar var FH-búningurinn
vígður í síðustu viku, þegar Blikar
voru sóttir heim. Þá vannst sigur,
3-1, og vonandi reynist búningur-
inn áfram happadrjúgur.
Einar Bollason með Hauka?
Pálmar Sigurðsson leikmaður fui|yrða að ekki hefði verið hægt
og þjálfari íslandsmeistara Hauka að fara betur af stað. En hver tek-
í Körfuknattleik hefur ákveðið að ur við Hauka-liðinu næsta vetur?
leggja þjálfun á hilluna næsta Sjálfsagt eru margir sem hafa
vetur. Pálmar hlaut eldskírn sína áhuga á þjálfarastarfi íslands-
sem þjálfari í vetur og óhætt er að meistaranna næsta vetur en einn
HaukarmætaÆgismönnum
Haukar taka á móti nýstofnuðu liði, Ægi, í sínum fyrsta heima-
leik á Hvaleyrarholtsvelli á laugardag.
Haukar hófu keppni um síðustu helgi þegar Ernir á Selfossi voru
sóttir heim og er óhætt að segja að leikmenn Hauka hafi valdið
stuðningsmönnum sínum miklum vonbrigðum. Jafntefli varð í
leiknum, 3-3, og að sögn leikmanna sjálfra var leikurinn vægast
sagt lélegur og ekki dregur Fj arðarpósturinn það í efa. Enda er það
óafsakanlegt að tapa stigum gegn einhverjum „trimmurum" fyrir
austan fjall.
En ekki er öll nótt úti enn og því gefst leikmönnum Hauka upp-
lagt tækifæri þegar Ægir kemur í heimsókn á laugardag að sýna
virkilega hvað í þeim býr.
er þó öðrum fremur nefndur á
nafn í því sambandi. Einar Bolla-
son heitir umræddur maður og er
svo sannarlega ekki ókunnur
þjálfun. Reyndar stjórnaði Einar
Hauka-liðinu um fjögurra ára
skeið og náði ágætum árangri.
Kom liðinu í Úrvalsdeild og undir
hans stjórn sigruðu Haukar tví-
vegis í Bikarkeppni KKÍ.
Samkvæmt heimildum Fjarð-
arpóstsins er mikill áhugi hjá leik-
mönnum Hauka að fá Einar til
liðs við félagið en hvort af því
verður mun tíminn leiða í ljós.
Þess má geta að Fjarðarpósturinn
var fyrstur allra fjölmiðla til að
greina frá ráðningu Brynjars
Kvaran til Handknattleiksdeildar
Hauka og nú er bara að bíða og
sjá hvort Fjarðarpósturinn spáir á
ný rétt til um ráðningu þjálfara
hjá einni af deildum Hauka.
Fimleikadrottning
Eva Úlla Hilmarsdóttir varð hlutskörpust í A-flokki á meistara-
móti fimleikafélagsins Bjarkar 1988, sem fram fór fyrir skömmu.
Meðfylgjandi mynd er af fimleikadrottningunni ungu með verðla-
un sín.
8