Fjarðarpósturinn - 26.05.1988, Page 11
Hundruð manna við vígslu menningarmiðstöðvarínnar Hafnarborgar sl. laugardag:
Forsætisráoherra
lýsti Hafharborg
formlega opnaða
Hafnarborg var vigð við hátíð-
lega athöfn sl. laugardag að við-
stöddum mörg hundruð gestum.
Það var Þorsteinn Pálsson, for-
sætisráðherra, sem lýsti menning-
ar- og listastofnun Hafnarfjarðar í
Hafnarborg formlega opnaða.
Við athöfnina afhenti Sverrir
Magnússon lyfsali stofnuninni að
gjöf málverk af fyrsta lyfsala í
Hafnarfirði, en það var Sören
Kampmann. Bæjarstjóri, Guð-
mundur Árni Stefánsson, afhenti
gjöf bæjarfélagsins til stofnunar-
innar, en það voru málverk af
Sverri og eiginkonu hans, sem nú
er látin, en hún hét Ingibjörg Sig-
urjónsdóttir. Málverkin eru eftir
Eirík Smith listmálara, en sýning
hans á 64 listaverkum var opnuð í
safninu í tilefni af vígslunni.
Eins og Hafnfirðingum er
kunnugt voru það sæmdarhjónin
Sverrir Magnússon og Ingibjörg
Sigurjónsdóttir sem gáfu bæj -
búum húseignina við Strandgctu
34, þegar Hafnarfjarðarkaupstað-
ur fagnaði 75 ára afmæli sínu fyrir
fimm árum. Síðan hefur verið
byggð glæsileg viðbygging við
Strandgötu 34 þar sem hin nýja
menningar- og listastofnun er til
húsa.
Á vígsluhátíðinni sl. laugardag
flutti fyrstur ávarp Sverrir Magnús-
son lyfsali og afhenti hann gjöf
sína, málverk af Sören Kamp-
mann eftir Eirík Smith, sem
Sverrir afhjúpaði. Þá ávarpaði
bæjarstjóri samkomuna og til-
kynnti gjöf bæjarfélagsins til
menningar- og listastofnunarinn-
ar, en hún var málverk Eiríks af
gefendum hússins, hjónunum
Sverrir Magnússyni og Ingibjörgu
Sigurjónsdóttur. Bára Guðbjarts-
dóttir, sem sæti á í stjórn Hafnar-
borgar, afhjúpaði verkin.
Séra Gunnþór Ingason, sóknar-
prestur við Hafnarfjarðarkirkju,
blessaði síðan húsið en að lokum
tók Þorsteinn Pálsson, forsæti-
sráðherra, til máls og lýsti
menningar- og listastofnun Hafn-
arfjarðar, Hafnarborg, formlega
opnaða og þar með opnunarsýn-
ingu Eiríks Smith. Ellert Borgar
Þorvaldsson stjórnaði samkom-
unni, en auk hans og Báru eiga
bæjarstjóri, Guðmundur Árni
Stefánsson, og Sverrir Magnússon
sæti í stjórn Hafnarborgar. Sverr-
ir er formaður stjórnarinnar.
Á sýningu Eiríks eru 31 olíu-
málverk og 33 vatnslitamyndir.
Sýningin, sem er sölusýning,
verður opin daglega frá kl. 15 til
22 til 19. júní n.k.
Sverrir Magnússon afhjúpaði gjöfsína til Hafnarborgar, málverk Eiríks Smith afSören Kampmann, en hann
lét í upphafi reisa Strandgötu 34 undir apótek sitt, sem var þaðfyrsta í Hafnarftrði.
Gífurlegur mannfjöldi var við vígsluna, eins og sjá má á þessari mynd.
Bára Guðbjartsdóttir, sem sœti á í stjórn Hafnarborgar, afhjúpaði málverkin afþeim sœmdarhjónum Sverri
og Ingibjörgu.
11