Fjarðarpósturinn - 05.01.1995, Qupperneq 5
FJARÐARPÓSTURINN 5
stangast á enda æfingar ekki af skorn-
um skammti þegar stefnt er að fram-
úrskarandi árangri. Og það hefur
Nína Björg gert undanfarin 10 ár!
Segi það og skrifa: 10 ár! Hún
byrjaði í fimleikum aðeins fimm ára
gömul og hefur ekki slegið slöku við
síðan. Þrotlaus vinna liggur að baki
góðum árangri hennar, álag eins og
það að mæta sex sinnum í viku hverri
á æfingu sem stendur 4-5 klukku-
stundir í senn. Enda er tími til að
sinna öðrum áhugamálum af skorn-
um skammti þótt Nína Björg segist
að vísu skreppa á skíði þegar tími
gefst til.
Nína Björg hóf fimleikaferil sinn í
Björkunum en hún bjó þá í Garðabæ.
Eftir fyrsta veturinn skipti hún yfir í
Stjörnuna en þegar hún flutti með
fjölskyldu sinni í Hafnarfjörð lá leið-
in aftur til Bjarkanna. Þar hefur hún
verið síðan.
Hún segist þokkalega ánægð með
þá aðstöðu sem Björkunum stendur
til boða í Haukahúsinu, í samanburði
við ýmis önnur félög sé aðbúnaður-
inn mjög góður þótt vissulega búi fé-
lag eins og Armann betur.
„Eftir að við fengum tækin, sem
keypt voru eftir Evrópumeistaramót-
ið í Svíþjóð, hefur æfingaaðastaða
okkar batnað mjög mikið," segir Nína
Björg.
Helsta gallann segir hún hins veg-
ar vera þann að setja þurfi upp öll á-
höld í sal fyrir hverja æfingu og taka
þau niður að henni lokinni. I þetta fari
mikill tími.
Brosmild fyrirmynd
Aðspurð um minnisverðar keppn-
isferðir á erlenda grund, sem Nína
Björg hefur farið þó nokkrar m.a. til
Hollands, Finnlands, Svíþjóðar og
Þýskalands, rifjar Nína Björg það upp
þegar hún tók þátt í Evrópumeistara-
mótinu í Svíþjóð síðastliðið vor.
„Við æfðum og kepptum í meiri
háttar flottu húsi, Globen-höllinni, og
vorum mætt á svæðið tæpri viku áður
en keppnin fór fram,” segir Nína
Björg en íslenskir keppendur munu
víst að öllu jöfnu ekki mæta svo tím-
anlega til móta á erlendri grund.
„Þar fannst mér skemmtilegast að
sjá allar bestu fimleikakonur Evrópu,
sem sumar höfðu orðið ólympíu-
meistarar, og vera jafnvel með þeim á
æfingum. Þarna sá maður hvernig
augum að skapa rými og athafna-
svæði fyrir endastöð stræstisvagna
þar fyrir framan. Auk þess hefur þeg-
ar verið gert ráð fyrir aðstöðu fyrir
vagnstjóra innandyra. Við hönnun
húsnæðisins og annarrar aðstöðu var
sérstaklega tekið tilit til þess að þar
yrði önnur endastöð strætisvagna-
kerfisins í framtíðinni.
Víðast hvar erlendis eru enda-
stöðvar strætisvagna í jaðri miðbæja.
Það er gert til þess að skapa þar
aukna möguleika, glæða svæðin lífi
og auðvelda fólki aðgang að nauð-
synlegum þjónustustofnunum, sem
yfirleitt eru staðsettar í eða í nálægð
miðbæja. Ef þeir sem ákvarðanir eiga
að taka neita að viðurkenna þessa
staðreynd kemur ákvörðun þeirra til
með að bitna á fólkinu, þeim sem ella
myndu notfæra sér þjónustuna.
Almenningssamgöngur á að sníða
sem best að þörfum fólksins. Eftir
því sem þær eru aðgengilegri því
meiri líkur eru á að fólk nýti sér þá
möguleika sem þær bjóða upp á. Það
hlýtur a.m.k. að vera eitt af markmið-
um AV. Astæða er til að standa vörð
um þá uppbyggingu sem þegar er
orðin á leiðakerfi AV. Eg mun beita
mér fyrir því í stjóm AV að áfram
verði stuðlað að eðlilegri og sjálf-
sagðri þróun leiðarkerfisins miðað
við upphaflega áætlun þar sem hagur
almennings sem og annarra hlutað-
eigandi aðila er hafður að leiðarljósi.
þær æfðu og sú reynsla er mjög dýr-
mæt."
Upp til hverra af þessum stúlkum
líturðu helst?
„Mér fannst gaman að /ylgjast
með Liliu Podkopayevu frá Ukraínu,
sem keppti á Evrópumeistaramótinu,
því hún brosti gjarnan og var
skemmtilegur keppandi," svarar Nína
Björg og móðir hennar, Gunnhildur
Þórisdóttir, sem hefur fylgst mikið
með fimleikastarfi Bjarkanna og tek-
ið þar virkan þátt, nefnir í framhald-
inu nafn Olgu Korbut sem einmitt gat
sér gott orð fyrir glaðlega framkomu
á sínum tíma. Nína Björg segist
þekkja ágætlega til Olgu þótt nokkur
árafjöldi sé milli þeirra og segir að
hún eigi einmitt myndbandsupptöku
með Olgu í keppni. Því er ljóst að hún
fylgist vel með á þessu sviði.
Ætlar í dans
Þegar spurt er að eftirminnilegustu
keppni hér heima hikar Nína Björg
lítið eitt við að svara, enda velgengni
mikil og titlar margir, en nefnir síðan
íslandsmeistaratitilinn 1992. Af
hverju?
„Mér fannst bara að þar hefði mér
gengið mjög vel í æfingunum og var
mjög sátt við árangurinn."
A næsta ári stendur Nína Björg
frammi fyrir vali á framhaldsskóla og
telur hún mestar líkur á því að þar
verði annað hvort Flensborg eða FG
fyrir valinu.
„Eg ætla á íþróttabraut," svarar
hún aðspurð en hún hefur mikinn á-
huga á að verða íþróttakennari þótt
aðrar starfsgreinar heilli einnig. Þar
eru efstar á baugi greinar eins og
gullsmíði og fatahönnun. Hvað þar
verður úr getur tíminn einn leitt í ljós
en Nína Björg Magnúsdóttir er að
minnsta kosti ákveðin í því að leggja
stund á dans þegar hún hættir í fim-
leikunum. Sem verður vonandi ekki í
náinni framtíð því það er gott að vita
til þess að við Hafnfirðingar státum
af slíkum úrvalsíþróttamönnum.
Jóhann G. Reynisson
ÚTGAFUÞJÓNUSTA
F JARÐARPÓSTSINS
FÉLAGASAMTÖK OG
#■
FYRIRTÆKII
HAFNARFIRÐI
ATHUGIÐ
Fjarðarpósturinn mun
taka að sér uppsetn-
ingu og hönnun á
kynningarritum,
fréttabréfum og
upplýsinga-
bæklingum hér
í bænum frá
og með
áramótum.
Hagstæð verð íboði.
Þeir sem áhuga hafa á því að nýta sér þessa þjónustu
hafi samband við útgáfuna í símum 5651945 og
5651745, myndsendir 565 0835