Fjarðarpósturinn - 05.01.1995, Qupperneq 8
Hagnaður af rekstri ÍSAL eftir þrjú erfið ár
Stefnt er að 100.000
tonna framleiðslu í ár
Hagnaður varð af rckstri ÍSAL
á síðasta ári cftir þrjú erfið ár þar
scm mikill halli varð á starfsem-
inni. I grein sem dr. Christian Roth
forstjóri ISAL ritar í nýjasta tölu-
blaði ISALtíðinda kemur fram að
reiknað er með að hagnaður verði
einnig af rekstrinum í ár og að
stefnt er að 100.000 tonna fram-
leiðslu á árinu sem er metfram-
leiðsla.
Nákvæmar tölur eru ekki enn til
urn hagnað ársins í fyrra en gróflega
áætlað mun hann nema um hálfum
milljarði króna. í grein forstjórans
kemur m.a. fram að nær öll markmið
ársins 1994 hafi náðst, framleiðslu-
geta og straumnýting hafa aukist og
„ísland sem þjónustumiðstöö fyr-
ir erlend fiskiskip"
Töluverð um-
svif í Hafnar-
fjarðarhöfn
Á einum af síðustu fundum at-
vinnumálanefndar á síðasta ári
gerði Már Sveinbjörnsson fram-
kvæmdastjóri Hafnarfjarðarhafn-
ar grein fyrir stöðunni í verkefn-
IRIBATANA
NEW Y0RK BÁTUR, RIFJA BÁTUR
LÍNU BÁTUR, PINNA BÁTUR
NETA BÁTUR, GÚMMÍ BÁTUR
INGÓLFSBÁTUR
HLÖLLA BORGARAR
DELl BORÐ
5AMLOKUR
ALEGGS OG
GRÆNMETISBAKKAR
Ðyrjaöu daytnn snemma með okkur og fáðu þór
Hafragraut - fíúnstykki * Rúgbrauð og kaffi
og við gfeymum ekki lýsinu
Frí heimsendingarþjónusta
kkert jafnast a við frumherjann
Opið til 23,30
HLÖLLA BÁTAR,
Strandgötu 54, sími. 651332
inu "ísland sem þjónustumiðstöð
fyrir erlend fiskiskip í norðurhöf-
um" en bæði höfnin og Fiskmark-
aðurinn eiga aðild að þessu verk-
efni. Þegar eru töluverð umsvif á
þessum vettvangi í höfninni og má
jtar m.a. nefna kliissun á tveimur
tugurum frá Litháen og jijónustu-
verkefni við ýmsa fastagesti eins og
grænlenska rækjutogara og norsk
fiskiskip.
Már segir að verkefnið felist í að
móta stöðu Islands sem þjónustumið-
stöð á þessum vettvangi og keppa um
verkefni við lönd á borð við Noreg,
Skotland og Danmörku. "Það verða
kannaðar aðstæður hérlendis og þær
bomar saman við aðstæður erlendis
til að finna veiku og sterku hliðarnar
hvað ísland varðar," segir Már. "Nú
er verið að útbúa gögn í við-
horfskönnun sem send verður mark-
hópum en niðurstöður úr þeirri könn-
un eiga að liggja fyrir í vor. Sú
skýrsla seni gerð verður þá mun
verða lokuð fyrir aðra en þátttakend-
ur í verkefninu í sex mánuði á eftir
svo þátttakendur hafi svoldinn for-
gang á að nýta sér innihald hennar."
Sem fyrr segir eru þegar töluverð
umsvif í þjónustu við erlend fiskiskip
í Hafnarfirði. Nú síðast vann véla-
verkstæði Jóhanns Olafs Jónssonar
að viðgerð og viðhaldi á grænlenska
rækjutogaranum Tasiilaq. Að sögn
Hjalta Jóhannssonar hjá vélaverk-
stæðinu vinna þeir að tugum slíkra
verkefna á hverju ári og eru þau góð
búbót fyrir verkstæðið.
sú fækkun starfsmanna sem stefnt
var að hefur nást.
Samkvæmt upplýsingum _ frá
Rannveigu Rist biaðafulitrúa ISAL
var árið 1994 metár í framleiðslu en
þá voru 97.000 tonn framleidd.
Rannveig segir að frá árunum 1987-
88 hafi framleiðsla stöðugt aukist eða
um 15% á tímabilinu. A móti hafi
starfsmönnum fækkað á þessum tíma
um 25%.
"Hvað varðar framleiðsluaukning-
una hefur stærð kerjanna ætíð verið
flöskuhálsinn en aukin tækniþekking
sem gefur möguleika á stærri skaut-
um í kerjunum hefur gert okkur
kleyft að auka framleiðsluna," segir
Rannveig.
Hér tekur Ingólfur viö blómum frá Guömundi Sophussyni sýslu-
manni.
Ingólfur kvaddur
Ingólfur Ingvarsson yfirlögreglu|)jónn var kvaddur af starfsfé-
lögum sínum með pontp og prakt á síðasta starfsdegi sínum fyrir
áramót. Ingólfur hefur gengt starfinu s.l. átta ár.
Egill Bjamason hefur verið ráðinn í stöðu yfirlögregluþjóns og tekur
hann við embættinu þann 1. febrúar n.k. Þar til hefur Olafur Guðmunds-
son verið settur í stöðu yfirlögregluþjóns.
H'4ii»nigiii;iiffiiilii
Blómaskreytingar
tsérflokki
Blómiblíéu og striðu
Miðbæ, s. 655622
Mikið
vatnsflóð
Mikið vatnsflóð varð í kjall-
ara Pípugerðarinnar hf. við
Suðurhraun um síðustu helgi.
Talið er að unt 400 tonn af -
heitu vatni hafi runnið í kjall-
arann eftir að rör í hitablás-
ara gaf sig. Slökkviliðið vann
að því allan mánudaginn að
dæia vatninu upp úr kjallar-
anum.
Leó Jónsson verkfræðingur
hjá Pípugerðinni segir að ekki sé
búið að meta tjónið af.völdum
lekans en ljóst að það er ekki
eins mikið og talið var í fyrstu.
"Við verðum fljótir að laga þetta
og óhappið mun ekki liafa áhrif
á starfsemi okkar þar sem nú er
mjög rólegur tími hjá okkur,"
segir Leó. "Það má því segja að
það hafi verið lán í óláni að -
þetta kom upp á þessum árs-
tíma."
Slökkviliðið kom á staðinn
kl. 9.30 á mánudagsmorguninn
og var lokið við að dæla upp úr
kjallaranum um kl. 16.40.
Erill hjá
lögreglu
Töluverður erill var hjá
lögreglunni í Hafnarflrði um
áramótin, sérstaklega aðfar-
arnótt nýúrsdagsins. Mikill
mannfjöldi var samankomin í
miðbænum, óvenjumikill að
sögn lögreglunnar, og dvaldi
þar langt frani á morgunn.
Skemmdir voru unnar á sím-
klefa í miðbænum, hurð var
skemmd á hárgreiðslustofu í
Strandgötu og rúða brotin í Hafn-
arborg. Þá vom sex tennur slegnar
úr manni á dansleik í Firðinum
þessa nótt svo flytja þurfti hann á
slysadeild. Ekki mun vitað hver
árásarmaðurinn er.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar var ölvun ekki áber-
andi mikil þessa nótt og gistu að-
eins tveir menn fangageymslur.
Sjö í prófkjöri
Framboðsfrestur vegna
prófkjörs Alþýðuflokksins í
Reykjaneskjördæmi rann út
um áramótin og er ljóst að sjö
gefa kost á sér í prófkjörinu.
Prófkjörið verður haldið 21.-
22. janúar.
í hópnum eru núverandi
þingmenn flokksins, þau Guð-
mundur Ámi Stefánsson, Rann-
veig Guðmundsdóttir og Petrína
Baldursdóttir. Aðrir sem gefa
kost á sér eru Elín Harðardóttir
matreiðslumaður í Hafnarfirði,
Garðar Smári Gunnarsson fisk-
tæknir í Hafnarfirði, Gissur
Gottskálkssonjæknir í Garðabæ
og Hrafnkell Óskarsson læknir í
Keflavík.