Fjarðarpósturinn - 23.01.1997, Qupperneq 7
Fjarðarpósturinn 7
Aðalskoðun
011 skoðunarþjóausta í boði
eftir afnám einkaleyfa
-sérskoöun, breytingaskoðun og skráningaskoðun bætast
við þjónustu Aðalskoðunar
Munu Hafnfirðingar ef til vill sjá Ingvar Viktorsson og Magnús
Jón Árnason tróna efst á sameiginlegum lista jafnaðarmanna
þrátt fyrir allt sem á undan er gengið?
heim eftir það sem á undan er
gengið og þótt svo væri, er alls
ekki víst að þeir sjálfir hafi yfir
höfuð nokkurn áhuga á því að
snúa aftur. í umræðunni hefur
því líka verið hreyft að grund-
völlur gæti verið fyrir óháðu
framboði í næstu kosningum þó
að lítið áþreifanlegt hafi heyrst í
þá veru enn þá.
Sé til enn skemmri tíma litið
er heldur ekki útilokað að til tíö-
inda geti dregið á næstu vikum
og mánuðum. Vafalítið bíða and-
stæðingar Jóhanns G. í breið-
fylkingu jafnaðarmanna nú eftir
dómi Hæstaréttar í máli hans,
sem er að vænta í mars. Aform-
að er að nýtt stjórnskipurit Hafn-
arfjarðarbæjar taki gildi í byrjun
mars nk. Samkvæmt því eru fyr-
irhugaðar breytingar í menning-
argeiranum, sem gætu hugsan-
lega reynst viðkvæmar og vand-
meðfarnar fyrir meirihlutann, en
allt á þetta eftir að koma í ljós.
-sst
Frá áramótum og í kjölfar
þess að einkaleyfi Bifreiða-
skoðunar Islands hf. á allri
skoðunarþjónustu varafnumið
gctur Aöalskoðun hf. sem og
aðrar skoðunarstofur í cinka-
eign nú tekið að sér sérskoöun
ökutækja, breytingaskoðun og
skráningarskoðun. Áður var
sjálfstæðum skoðunarstofum
einungis heimilt að annast að-
alskoðun og endurskoðun.
Gunnar Svavarsson, fram-
kvæmdastjóri Aðalskoðunar hf
fagnar þessu skrefi í frjálsræð-
isátt: „Það er ánægjulegt þegar
við fognum tveggja ára starfsaf-
mæli fyrirtækisins að geta loks-
ins boðið alla þjónustu er tengist
skoðun og skráningu ökutækja.
Allt frá stofnun Aðalskoðunar
hefur verið barist því að fyrir-
tækið geti boðið þjónustu sína á
jafnréttisgrunni við aðra aðila á
markaði, en það er fyrst og
frcmst neytendum að þakka að
nú er löng tveggja ára bið á enda
að þessu !eyti.“
Gunnar sagöi að þessi breyting
væri einnig tilkomin fyrir til-
stuðlan einkavæðingarnefndar og
dómsmálaráöherra, en í upphafi
var stefnt að því að þær breyting-
ar sem nú hafa séð dagsins Ijós
ættu sér stað 1. maí á sl. vori. Sú
tímasetning stóðst því miður
ekki.
Gunnar sagði að lokum að það
væri von Aðalskoðunar við þá
uppstokkun sem nú hefði átt sér
stað á vegum stjórnvalda, að allir
aðilar á markaði yrðu jafnir
gagnvart jyjónustumöguleikum
og samskiptum sínum við neyt-
endur. „Neytendur hafa valið og
það er þeirra að segja til um
hvort fyrirtækin standa sig.“
Veisluþjónusta
$
onite ^etttttte^f
Hamraborg 20a, Kópavogi, sími 564 5030, fax 564 3350
Þóra Davíösdóttir
Þómrinn Guðlaugsson
Halldór Halldórsson
Hanna Ólafsdóttir
□ ^otTnimUur
Blóðmör nýr
Bringukollar
Hangikjöt
Hákarl
ítalskt salat
Lifrapylsa ný
Lundabaggar
Saltkjöt
Blóðmör súr
Flatkökur
Harðfiskur
Hrútspungar súrir
Lifrapylsa súr
Rófustappa
Svið soðin
Sviðasulta (laniba)
Sviðasulta súr Svínasulta súr
□ wrjstita:
BjóÖum heitt slátur,
heitt saltkjöt, uppstúfog
rófustöppu, einnig 2 teg. forrétt
□ tiiatt (torfc:
Forréttir, 3 teg.
Kjúklingar, roast beef,
svínahryggur, sjávarréttir í
tartalettum, ávaxtasalat,
ferskt salat, kartöflusalat
og grœnmeti.
□ .£>ettt í)(rtöiiuvÖ:
Súrsœtt svínakjöt,
grœnmetislasagne, lamba-
strimlar m/snöggsoðnu
grænmeti, kjúklingur í
kínagrœnmeti, hrísgrjón, brauð
salat.
kr. 1.490
pr mann
□ Jytöíití)írt&lJUt4):
Koníakslax
Hunangslax
Tyttiberja sósa
Graflax
Marineruð hörpuskel
(og rœkjur)
Sjávarréttamarmari
Heitir sjávarréttir í brauðkollum
Heilsoðinn lax
Grœnmetissalat
Kökur, snittur,
brauðtertur
Heitir brauðréttir