Fjarðarpósturinn - 20.01.2005, Síða 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 20. janúar 2005
Kynningarfundur
Mánudaginn 24. janúar verður haldinn kynningarfundur
v/ olíutankasvæðisins á Hvaleyrarholti. Þetta er forstigskynning á
deiliskipulagi.
Fundurinn verður haldinn í Hafnarborg kl. 17.00.
Umhverfis- og tæknisviðs Hafnarfjarðar
Útboð:
Vesturgata – endurgerð
Hafnarfjarðarbær auglýsir útboð á endurgerð Vesturgötu ásamt
nýlögn og endurnýjun fráveitulagna, vatnslagna, hitaveitu, raf-
strengja og símastrengja.
Um er að ræða endurgerð 600 m Vesturgötu ásamt hringtorgum
á gatnamótum Vesturgötu við Herjólfsgötu, við Vesturbraut og
við Merkurgötu. Einnig skal leggja heimæðar að nýjum lóðum á
Norðurbakka. Verklok eru 30. júní 2005.
Nokkrar helstu magntölur eru:
Fráveitulagnir 2500 m
Þrýstilögn fráveitu 470 m
Malbik 6600 m²
Kantsteinn 2000 m
Hellulögn 1000 m²
Útboðsgögn eru til afhendingar í Þjónustuveri Hafnarfjarðar
Strandgötu 6 gegn 10.000 kr. greiðslu og á heimasíðu Strend-
ings ehf, verkfræðiþjónustu, veffang: strendingur.is án endur-
gjalds, frá kl. 13.00 þriðjudaginn 18. janúar 2005.
Tilboðum skal skila til Umhverfis og tæknisviðs Hafnarfjarðar,
móttaka er í Þjónustuveri Hafnarfjarðar Strandgötu 6, fyrir
kl. 11.00, þann 8. febrúar 2005 og verða þá tilboð opnuð að
viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Umhverfis- og tæknisviðs Hafnarfjarðar
Í Hafnarfirði búa um 22 þúsund manns. Bærinn stendur í fallegu umhverfi
hrauns og kletta. Hafnarfjörður hefur þá bæjarsál sem einkennir búsetu
við sjó og státar um leið af hagkvæmni stærðarinnar og staðsetningu í
jaðri höfuðborgarsvæðisins. Það er gott að búa og starfa í Hafnarfirði.
Enginn leikmanna Hauka í
körfuknattleik meiddist alvar-
lega er rúta sem þeir voru í á leið
frá Sauðárkróki fór út af vegin-
um og valt á hliðina sl. fimmtu-
dag. Fimmtán farþegar voru í
rútunni auk bílstjóra og fluttu
björgunarsveitarmenn úr Björg-
unarfélaginu Blöndu frá Blöndu-
ósi leikmennina í gistingu á
Blönduósi.
Í samtali við mbl.is segir
Reynir Kristjánsson: „Rútan
fauk út af veginum við Öxl, rétt
áður en komið er að Vatns-
dalnum. Þá fór að slá svona
svakalega niður þarna með hlíð-
inni. Það var kóf og gler á veg-
inum þannig að við sátum bara
og biðum eftir að rútan fyki út af.
Það kom sviptivindur og svo fór
hún af stað og skautaði þarna
niður eftir. Hún valt á hliðina og
rann svona um 30 metra niður
eftir hlíðinni.“
„Óvissan er verst í þessu. En
aðeins á undan eða aðeins á eftir
hefði verið mun verra að fara af
veginum. Það má eiginlega segja
að við höfum farið út af á besta
stað. Þetta var góður staður til að
velta.“
Að sögn Reynis slasaðist eng-
inn alvarlega en sumir fengu
marbletti og kúlur.
Haukar á hliðina
Rúta valt með meistaraflokk karla í körfubolta
Rútan á hvolfi utan vegar.
Lj
ós
m
.:
B
ry
nj
ar
Ö
rn
S
te
in
gr
ím
ss
on
Sl. laugardag var í þriðja sinn
úthlutað úr Afreksmannasjóði
ÍBH vegna afreka á árinu 2004.
Ólympíuár er að baki þar sem
hafnfirskir keppendur voru stór
hluti íslenskra keppenda í Aþenu
og stóðu sig vel. Alls var
úthlutað 1.350.000 kr. vegna
verkefna íþróttafólks sem tók
þátt í Ólympíuleikum og þeirra
sem reyndu að ná lágmörkum
fyrir leikanna en í heild hefur 6,9
millj. kr. verið úthlutað vegna
ársins 2004.
Nú heyrir bæði Afreksmanna-
sjóður og ferðasjóður undir
Afreksmannasjóð og er upphæð
Hafnarfjarðarbæjar 7.050.000 kr.
vegna þessara verkefna, þar af
eru 3.200.000 kr. í ferðasjóði.
Framlag ÍBH er ákvörðun
stjórnar ÍBH hverju sinni og
hefur verið 500.000 kr. síðustu
tvö ár en ÍBH hefur síðustu ár
hækkað framlag sitt vegna
aukinna þarfa.
Siglingaklúbburinn Þytur,
fékk úthlutað vegna þátttöku
Hafsteins Ægis Geirssonar í
heimsmeistaramóti. Styrkupp-
hæð 40,000 kr. Haukar, hand-
knattleiksdeild karla, sem átti
keppnislið í 5 umferðum í
Evrópukeppni. Styrkupphæð
375.000 kr. Alls hefur deildin
fengið 2.875.000 kr. úthlutað
vegna Evrópukeppni árið 2004
Sundfélag Hafnarfjarðar sem
átti keppendur á HM og EM,
Anju Ríkeyu Jakobsdóttur á Ev-
rópumóti, Ragnheiði Ragnars-
dóttur á Evrópumóti og heims-
meistaramóti, styrkupphæð
120.000 kr. Fimleikafélagið
Björk sem átti keppendur á HM,
Björn Þorleifsson á EM í
Taekvondo, styrkupphæð 40.000
kr. Tennisdeild BH sem átti
keppanda, Andra Jónsson á HM
landsliða, styrkupphæð 40.000
kr. FH frjálsíþróttadeild sem átti
keppendur á HM og EM,
Þóreyju Eddu Elísdóttur á heims-
meistaramóti, Bergi Inga Péturs-
son á heimsmeistaramóti 19 ára
og yngri, Björn Margeirsson á
HM í víðavangshlaupum, styrk-
upphæð 120,000 kr. Knatt-
spyrnudeild FH sem átti keppnis-
lið í 3 umferðum í Evrópu-
keppni, styrkupphæð 225.000 kr.
Alls hefur deildin fengið út-
hlutað 1.725.000 kr. vegna
Evrópukeppni árið 2004
Úthlutað úr afreksmannasjóði ÍBH
6,9 millj. kr. hefur verið úthlutað vegna ársins 2004 – Hafnarfjarðarbær leggur til rúmar 7 milljónir kr. í sjóðinn.
Fulltrúar styrkþega ásamt Hafsteini Þórðarsyni formanni t.v.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n