Fjarðarpósturinn - 20.01.2005, Side 5
www.fjardarposturinn.is 5Fimmtudagur 20. janúar 2005
HERRAKVÖLD
HAUKA 2005
Hið sívinsæla Herrakvöld Hauka
verður haldið í veislusalnum að
Ásvöllum, föstudaginn 21. janúar.
Húsið opnað kl. 19.30 og hefst borðhald tímanlega.
Miðaverð aðeins kr. 2.500.
Fyrir utan glæsilegan matseðil
verður fjölbreytt dagskrá undir
öruggri veislustjórn Konráðs Jónssonar.
Þetta er skemmtun sem enginn sannur
herramaður má láta fram hjá sér fara enda er lagt
upp með að skemmtuninni ljúki seinna en fyrr.
Sýnum styrk okkar Haukamenn
og mætum með gesti.
Skemmtinefndin
www.gaf l inn. is | Sími 555-4477 | Fax 565-4477 | Dalshraun 13 | gaf l inn@gaf l inn. is
Bjóðum upp á þorrablót
í salarkynnum okkar
eða úti í bæ.
Þorraþrælarnir
Valdimar Sveinsson og
Hermann Ármannsson
eru með áralanga reynslu
í gerð þorramatar.
Þorramatur með heima-
bökuðu rúgbrauði,
hangikjöti, saltkjöti og
tilheyrandi.
Pottréttur fyrir þá sem
fara varlega í þorramatinn.
Hefðbundinn
íslenskur
þorramatur
©
H
ön
nu
na
rh
ús
ið
/F
P
–
05
01
Þær voru bak við rimla skv.
venju nunnurnar í Karmel-
klaustri á samkirkjulegri helgi-
og bænastund í klaustrinu sl.
mánudagskvöld. Fullt var út að
dyrum og þurftu margir að
standa. Sumir voru að koma í
klaustrið í fyrsta skipti og fyrir
þá var það mikil upplifun.
Séra Jakob Rolland, séra
Gunnþór Ingason og sr. Þórhild-
ur Ólafs tóku þátt í helgihaldinu
auk þess sem Gunnar Eyjólfs-
son, leikari las ljóð og Kór Öldu-
túnsskóla söng. St. Fanciskusyst-
ur sungu og léku á hljóðfæri.
Helgistundin var liður í alþjóð-
legri bænaviku.
Húsfyllir í klausturmessu
Samkirkjuleg helgi- og bænastund í Karmelklaustri
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Viktor Björnsson var kjörinn
fyrsti formaður Reykdalsfélags-
ins á stofnfundi þess í Iðnskólan-
um á þriðjudag.
Tilgangur félagsins er að afla
allra tiltækra gagna og upp-
lýsinga um líf og störf Jóhann-
esar J. Reykdals, safna munum
sem voru í eigu hans eða tengd-
ust honum á einhvern hátt og
varðveita þá. Félaginu er einnig
ætlað að styðja við rekstur Reyk-
dalsvirkjunar og hvetja til þess,
að virkjunin verði notuð til
kennslu og þjálfunar skólanema.
Stofnfélagar eru þeir sem
greiða stofnfélagsgjald, kr. 2.000
inn á reikning félagsins fyrir
fyrsta aðalfund þess sem verður
að ári.
Reykdalsfélagið stofnað
Ætlar að halda uppi minningu Jóhannesar J. Reykdal
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Verslum í Hafnarfirði!
.. . og þú g ræði r !