Fjarðarpósturinn - 12.05.2005, Side 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 12. maí 2005
Börn og umhverfi
(áður barnfóstrunámskeið)
Hafnarfjarðardeild RKÍ heldur námskeiðið Börn og umhverfi,
fyrir börn og unglinga á aldrinum 12-15 ára.
Fyrsta námskeiðið verður 25., 26, 30. og 31. maí og annað
námskeiðið verður 1., 2., 6. og 7. júní.
Kennt verður að Strandgötu 24 (gengið inn Fjarðargötumegin).
Á námskeiðinu er farið í ýmsa þætti er varða umgengni og
framkomu við börn. Rætt er um árangursrík samskipti,
leiðtogahæfni, agastjórnun, umönnun og hollar lífsvenjur, leiki
og leikföng. Fjallað er um slysavarnir og algengar slysahættur
og veitt ítarleg kennsla í skyndihjálp. Þátttakendur fá innsýn í
sögu og starf Rauða krossins.
Leikskólakennari og hjúkrunarfræðingur sjá um um kennsluna.
Námskeiðsgjald: 4.500 kr.
Innifalin eru námskeiðsgögn og bakpoki með
skyndihjálparbúnaði.
Skráning: Í síma 565 1222 milli kl. 10-14
alla virka daga eða á hafnarfjordur@redcross.is
M
Á
T
T
U
R
I
N
N
&
D
Ý
R
Ð
I
N
Fallegir legsteinar
á góðu verði
www.englasteinar.is
Helluhrauni 10
Sími: 565-2566
Englasteinar
Söngvakeppni hinna mörgu tungumála
Bjartir dagar og Alþjóðahúsið leita að þátttakendum
fyrir nýstárlega keppni sem fram fer á Björtum dögum,
lista- og menningarhátíð Hafnarfjarðar þann 10. júní nk
í húsnæði Hafnarfjarðarleikhússins að Strandgötu 50.
Fyrirkomulag:
• Þátttakendur syngja eitt lag og stig eru gefin fyrir söng, sviðsframkomu,
búning og undirtektir áhorfenda.
• Ekki má syngja á eigin móðurmáli né á ensku. Öll önnur tungumál eru
velkomin.
• Syngja má við undirleik aðstoðarmanna, við upptöku hljóðfæraleiks eða
án undirleiks.
• Hvert lag má ekki taka lengri tíma en 5 mínútur í flutningi.
• Veitt verða verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin.
• Þátttökugjald kr. 500.
• Þátttaka tilkynnist til
hilda@ahus.is, eða í
síma 530 9313, í síðasta lagi 27.maí.
Χανταρε 2005
Árlegt styrktarverkefni Kiwan-
isklúbbanna Eldborgar, Eldey,
Hörpu, Hraunborgar, Setbergs og
Sólborgar er dansleikur fyrir fatl-
aða.
Það var eldfjörugt í Kirkju-
lundi, safnaðarheimili Vídalíns-
kirkju í Garðabæ þar sem dans-
leikurinn fór fram og hljóm-
sveitin „Á móti sól“ lék fyrir
dansi. Töframaður kom í heim-
sókn og boðið var upp á
veitingar. Að venju var fjölmennt
og gleði skein úr hverju andliti
þegar blaðamaður Fjarðarpósts-
ins leit inn.
Á dansleikinn er boðið ein-
staklingum sem búa á sambýlum
og í heimahúsum.
Fjör hjá fötluðum
Samstarfsverkefni Kiwanisklúbba í Hafnarfirði, Garðabæ og Kópavogi
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
v/Kaldárselsveg, Hafnarfirði • sími 555 6455
Opnum á morgun
©
H
ön
nu
na
rh
ús
ið
–
0
50
5
föstudaginn 13. maí
opið kl. 9-20, laugardag kl. 10-16
og annan í hvítasunnu kl. 10-16
Til sölu harðgerðar tegundir trjáa og runna til skógræktar, landgræðslu, skjólbeltaræktunar,
í sumarbústaðalandið og í heimilisgarðinn. — Fagleg ráðgjöf
e h f .
Byggðasafn Hafnarfjarðar hef-
ur opnað sýninguna „Jæja, eru
þeir þá komnir“ um hernám
Breta á Íslandi í síðari heims-
styrjöldinni. Sýningunni er ætlað
að varpa ljósi á líf og störf ensku
hermannanna sem hernámu
landið í maí 1940 og gang styrj-
aldarinnar í Evrópu. Sýningin er
unnin í samvinnu við enska
sýningafyrirtækið Janvs ltd. sem
meðal annars hafði uppi á her-
mönnum sem hér þjónuðu á
þessum árum.
Hernámsárin
fróðleg sýning í Byggðasafninu
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Sigurður Óli Sigurðsson, eig-
andi A. Hansen var á ferð í
Hvíta-Rússlandi þegar skemmti-
legar gifsstyttur vöktu athygli
hans.
Hann var ekkert að tvínóna við
hlutina og lét gera fyrir sig
bronsstyttu til að hafa við
inngang veitingastaðarins. Stytt-
an er nú komin upp og vekur
verðskuldaða athygli.
Bronsstytta vekur athygli
Jónu Dóru Karlsdóttur fannst nýi
„Hafnfirðingurinn“ aðlaðandi.
Sigurður Óli Sigurðsson, eigandi
A. Hansen stoltur við styttuna.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n