Fjarðarpósturinn - 25.08.2005, Síða 1
w w w. f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
32. tbl. 24. árg. 2005
Fimmtudagur 25. ágúst
Upplag 7.800 eintök. Dreift frítt í Hafnarfirði
ISSN 1670-4169
Bygging ÍAV og Eyrartjarnar á Langeyrarmölum. Esjan í bakgrunni
Vill byggja
víkingagötu
Fimmtugur fjörugoði í
stöðugri sókn
Skipulags- og byggingarráð
hefur fengið til umfjöllunar
hugmyndir Jóhannesar Viðars
Bjarnasonar í Fjörukránni um
að byggja víkingasafn á lóð-
inni bak við Fjörukrána.
Tók ráðið jákvætt í hug-
myndina og vísaði málinu til
nánari skoðunar hjá umhverfis-
og tæknisviði og Fasteigna-
félagi Hafnarfjarðar. Reyndar
vill Jóhannes byggja hús með
hótelherbergjum og mynda
þannig betri götumynd sem
gæti orðið eina víkingagata
landsins en bæjaryfirvöld hafa
einnig til umfjöllunar hækkun
um eina hæð á Hótel Víking.
Afmælissýning
Eiríks Smith
Hefst í Hafnarborg á
laugardaginn
Eiríkur Smith, listmálari varð
áttræður 9. ágúst sl. og í tilefni
afmælisins verður sýning á
verkum hans í Hafnarborg þar
sem hann sýnir ný verk enda er
lítinn bilbug að finna á Eiríki í
málaralistinni.
Sjá nánar um sýningu Eiríks á
baksíðu.
Gríðarleg fagnaðarlæti
FH Íslandsmeistari, annað árið í röð
Opnum í Firði, Hafnarfirði
á laugardaginn kl. 11.
Aðsóknarmet var slegið í
Kaplakrika er FH tók á móti Val
á sunnudaginn en 3682 mættu á
völlinn og hvöttu liðin til dáða.
FH-ingum dugði jafntefli til að
tryggja sér Íslandsmeistaratitil-
inn en unnu sinn 15. leik í
deildinni en þrír leikir eru eftir.
Gríðarleg fagnaðarlæti brutust
út í leikslok, blys voru tendruð,
freyðivínsflöskur opnaðar og
stuðningsmenn FH sungu sigur-
söngva. Bæjarstjóri færði liðinu
blómvönd í leikslok en bikarinn
fær liðið ekki á ný fyrr en í
heimaleik við Fylki sunnudaginn
11. september en þá stefna FH-
ingar á mikla hátíð.
Þetta er í annað sinn í sögu FH
sem liðið verður Íslandsmeistari
í knattspyrnu karla í efstu deild
og hefur liðið haft mikla yfir-
burði í sumar og hefur áhorf-
endum farið fjölgandi en nýverið
var bætt við sætum á norðurstúk-
una og var stúkan troðfull á
sunnudag en þar eru um 1100
sæti og nálægð við leikmenn
meiri en í aðalstúkunni.
Hafnfirðingar fagna því enn
einum Íslandsmeistaratitlinum,
glæsilegur árangur FH-inga.
Áhangendur FH voru vel með á nótum og skemmtu sér konunglega.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Ólafur Jóhannesson, þjálfari
FH leyndi ekki gleði sinni.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n