Fjarðarpósturinn - 25.08.2005, Page 2
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 25. ágúst 2005
Ég birti mynd af útgefanda blaðsins í dag. Hann
hefur marg oft kvartað yfir því að aldrei sé birt
mynd af honum þó margoft hafi verið tekin af
honum mynd á síðustu 4 árum. Ekki veit ég hvort
þetta sé óeðlileg afskipti af ritstjórn blaðsins en ég
get þó ekki annað en verið hreykinn af því að hafa
staðist áhlaupið í tæp 4 ár – lengur en sum blöð
hafa verið gefin út og þar sem eigendurnir fá fjölda
síðna um kærumál sín. Lifi frjáls blaðamennska.
Flestir blaðamenn virðast þó gráta hægt undanhald herafla Banda-
ríkjamanna á Miðnesheiði og allir eru kallaðir til sem geta haft eitt-
hvað á móti slíku undanhaldi. Hörðustu kratar og kommar eru farnir
að verja veru heraflans með kjafti og klóm, allt til að bjarga at-
vinnuástandi Sunnanmanna þar sem Árni Sigfússon nokkur trónir
hæst á stalli. Sá segir öllum sem heyra vill að atvinnuástandið sé svo
gott á Suðurnesjum að hann gráti ekki eina fiskvinnslu eða tvær. Nóg
er víst til að stússast fyrir Kanann.
Ég brosti oft langt út í annað er ég horfði á slæpta herstöðvarand-
stæðinga ganga inn í Hafnarfjörð framhjá heimili mínu sem strákur og
sá ekki hvað væri að því að hafa blessaðan Kanann, með útvarpsstöð,
sjónvarp og útlenskt sælgæti. Ég sé hlutina mikið skýrar núna og ég
hef fylgst með þessari „verndarþjóð“ okkar fara um víðan völl og
drepa mann og annan í nafni friðar. Sussum og svei hefði hún amma
mín sagt. Hvar eru skólafélögin, stjórnmálafélögin og friðarsinnarnir
núna? Af hverju er ekki þrýst á að herinn fari fyrir fullt og allt. Við
getum ekki haft ófriðarher hér á landi bara til þess að halda í tvær
þyrlur og eldsneytisflugvél en lengi hef ég ekki heyrt önnur rök fyrir
veru hersins hér ef frá er talið atvinnuástandið sem umræddur Árni
segir fásinnu.
Lúðvík, Guðmundur Rúnar og Guðmundur Árni! Eru hugsjónir
ykkar úr menntaskóla farnar fyrir lítið? Hvar er baráttuandinn núna?
Nú líður að kosningaári og forsvarsmenn félaga og fyrirtækja
undirbúa nú óskalistann til stjórnmálamannanna sem munu keppast
við að bjóða hæst í keppninni um kjósendur. Hver ætlar að stefna á
þing og taka sæti Guðmundar Árna? Verður það Gunnar Svavarsson
eða Lúðvík Geirsson? Hver veit? Hverjir banka á í bæjarstjórn? Nýi
Framsóknarsamfylkingarmaðurinn hlýtur að berjast til áhrifa og
keppa þá við ungmennin í flokknum sem hafa verið nokkuð ötul í
starfi þó ungliðastarf stjórnmálaflokkanna hafi ekki verið eins og það
var oft áður. Ungir sjálfstæðismenn virðast ekki hafa vaknað til lífs í
mörg ár og ekki seinna vænna ef þeir ætla að berjast til áhrifa við
sundraðan eldri hópinn. Vinstri grænir vöknuðu við álvershugleið-
ingar en þeir riðu ekki feitum hesti frá síðustu kosningum fremur en
Framsókn sem virðist hægt og rólega vera að þurrkast út. Oft sinnis
hefur komið fram sérframboð og óháð framboð, þ.e. óháð landsmála-
flokkunum þó ekkert hafi komið fram nú að slíkt sé í uppsiglingu.
Slíkt hefur yfirleitt fært fjör í kosningaundirbúninginn og eflaust þarf
ekki mjög sterkan lista til að ná a.m.k. inn einum manni.
Það er þó vonandi að bæjarbúar geri kröfur um faglegan árangur í
stjórnun bæjarins og markvissa stefnumótum um frekari uppbyggingu
í nánu samstarfi við bæjarbúa.
Guðni Gíslason
1. Thorsplan
Berglind Guðmundsdóttir lands-
lagsarkitek á umhverfis- og tækni-
sviði greindi frá verkframkvæmd-
um á Thorsplani.
Fyrsta áfanga Thorsplansins
verður lokið 15. nóv. nk en allt
verkið verður klárað fyrir 1. apríl
2006.
2. Héraðsskjalasafn
Rætt um hugmyndir Önnu
Sigríðar Einarsdóttur forstöðu-
manns bókasafns Hafnarfjarðar
um Héraðsskjalasafn í Hafnarfirði.
4. Straumur. Rætt um framtíð
Straums
Þjónustu- og þróunarráð leggur
til að málefni Straums verði
skoðað milli funda og nánar verði
farið yfir útboðsskilmála vegna
útleigu húsnæðisins.
6. Hjalli
Farið yfir forhönnun. Lagðar
fram teikningar Arkitekta Skógar-
hlíð, dags. 28.05.03.
Bæjaráð í umboði bæjarstjórnar
hefur heimilað stækkun leik-
skólans.
Formaður leggur fram tillögu um
að fengið verði verðtilboð frá ASK
arkitektum á fullnaðarhönnun
viðbyggingarinnar þar með talið
alla verkfræði- og landslagshönn-
un.
Sigurður Þorvarðarson leggur til
að einstakir hönnunarþættir verði
boðir út í opnu útboði.
Gert var stutt fundarhlé.
Tillaga Sigurðar Þorvarðarsonar
var felld með 3 atkvæðum gegn 2.
Tillaga formanns var samþykkt
með 3 atkvæðum gegn 2.
Valgerður Halldórsdóttir óskar
bókað að hún muni taka endan-
lega afstöðu til málsins þegar
verðtilboð ASK liggur fyrir.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
óska bókað:
„Mjög ánægjulegt er að sjá að
fjárhagsleg staða sveitarfélagsins
er þannig að meirihlutinn sér einga
sérstaka ástæðu til að leita tilboða
um hönnun uppá margar milljónir
króna eins og í þessu tilviki heldur
velur þann kostinn að útdeila verk-
inu án nokkurra sérstakra skýr-
inga.“
Fulltrúar Samfylkingarinnar óska
bókað:
„Fyrir liggja teikningar að for-
hönnun viðbyggingarinnar frá ASK
arkitektum frá maí 2003. Fyrir
liggur að fullgera hönnun og bjóða
út verkframkvæmd.“
5. Líkan af Fjörukrá.
Lagt fram bréf Katrínar
Níelsdóttur þar sem hún býður
Hafnarfjarðarbæ líkan af
Fjörukránni til kaups. Menningar-
og ferðamálanefnd getur ekki
orðið við erindinu.
Eiríkur Smith sýnir ný
málverk í Hafnarborg
Á laugardaginn kl. 15 verður opnuð í
Hafnarborg sýning á málverkum Eiríks
Smith, en hann varð áttræður 9. ágúst sl.
Í sýningarskrá segir Aðalsteinn Ingólfs-
son listfræðingur m.a.: „Nú þegar öðl-
ingurinn Eiríkur Smith fagnar áttræðis-
afmæli sínu með glæsilegri sýningu í
Hafnarborg ætti ekki að þurfa að hafa
mörg orð um það hvað hann er að fara
með verkum sínum. Það hefur vísast
legið í augum uppi um nokkurt skeið.
Myndlist Eiríks hefur alla tíð verið trú
þeim markmiðum sem flestir góðir
listamenn setja sér, leynt eða ljóst,
nefnilega að brjóta til mergjar grund-
vallaratriði á borð við tilvist manns í
síbreytilegum heimi, samskipti hans við
náttúruna, hlutverk tilfinningalífsins í öllu
því tilvistar-og samskiptamynstri og
síðast en ekki síst tæpir listamaðurinn
óhræddur á helsta feimnismáli sam-
tímamyndlistar, eilífðarspursmálinu.“
Eiríkur stundaði nám við Myndlista- og
handíðaskólann frá 1946 til 1948, en
hélt síðan utan til Kaupmannahafnar og
Parísar þar sem hann dvaldi til 1950.
Ferill Eiríks sem listmálara spannar
meira en hálfa öld og í verkum hans
speglast mörg helstu viðfangsefni í
listasögu þess tíma, enda hefur hann
aldrei verið hræddur við að feta nýjar
slóðir í list sinni. M.a. var hann einn sýn-
enda á haustsýningunni í Listamanna-
skálanum 1953, ásamt Herði Ágústs-
syni, Karli Kvaran, Sverri Haraldssyni
og Svavari Guðnasyni, en sú sýning
markaði tímamót í íslenskri mynd-
listarsögu þar sem þar voru í fyrsta sinn
eingöngu sýnd abstrakt verk.
Á sýningunni í Hafnarborg eru ný verk
eftur listamanninn, bæði olíu- og vatns-
litamálverk.
Sýningunni lýkur 26. september.
Margrét Guðmundsdóttir
sýnir í Grafíksafninu
Hafnfirska listakonana Margrét Guð-
mundsdóttir, sýnir í Grafíksafni Íslands,
sal Íslenskrar Grafíkur, að Tryggvagötu
17, hafnarmegin, Reykjavík.
Sýningin verður opnuð á morgun,
föstudag kl. 15 og stendur til 11. sept-
ember. Opið frá fimmtudegi til sunnu-
dags frá kl. 14 til 18
Á sýningunni eru grafíkmyndir, blönduð
tækni og ljósmyndir.
Leshringur Bókasafnins
Leshringur Bókasafns Hafnarfjarðar
tekur til starfa í september. Fundað
verður eitt kvöld í mánuði og spjallað
um bækur sem settar hafa verið fyrir
hverju sinni. Öllu áhugafólki um
bókmenntir er velkomið að vera með og
þátttaka er ókeypis. Skráning fer fram í
afgreiðslu safnsins og í síma 585 5690.
Sýning á Hrafnistu
Sesselja Halldórsdóttir sýnir málverk og
útsaum í Menningarsalnum á Hrafnistu
og verður sýningin verður opnuð í dag
kl. 14 og stendur hún til 4. október.
Sesselja er fædd í Skálmardal í
Múlasveit árið 1920 en flutti til
Reykjavíkur 1953 og fór þá að mála
myndir og fást við hannyrðir eftir því
sem tími leyfði. Eftir að Sesselja flutti á
Hrafnistu hefur hún sótt listnámskeið að
öðru leiti er hún sjálfmenntuð.
Sunnudagurinn 28. ágúst
Guðsþjónusta kl. 11
Fermingarbörn komandi árs og fjölskyldur þeirra eru
beðin um að sækja Guðsþjónustuna enda verður
sérstaklega beðið fyrir fermingarbörnunum,
fræðslu þeirra, fermingu og framtíð.
Prestar sr. Gunnþór Þ. Ingason og
Sr. Þórhallur Heimisson.
Organisti: Antonía
Hevesi.
Kór: Kór
Hafnarfjarðarkirkju.
Kirkjuþjónn: Ingólfur
H. Ámundason
Útgefandi: Keilir ehf.
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Umbrot: Hönnunarhúsið, umbrot@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
www.hafnarf jardark i rkja. is
Náðu til Hafnfirðinga í
hafnfirsku blaði!
555 3066
www.fjardarposturinn.is