Fjarðarpósturinn - 25.08.2005, Qupperneq 3
Skátavarðeldar og kvöldvökur
eru þekktar fyrir skemmtilegheit
og fjörugan söng og nú bjóða
skátar í Hraunbúum bæjarbúum í
heimsókn á laugardag en skáta-
félagið er 80 ára í ár.
Frá kl. 2 til 4 verður poppað
yfir eldi, grill, klifurveggurinn
verður opinn og upplýsingar eru
gefnar um skátastarfið og tekið á
móti skráningum. Kl. 4 verður
svo kvöldvökustemmning með
gíturum og söng að skátasið og
eru fjölskyldur sérstaklega vel-
komnar.
Í frétt frá Hraunbúum segir að
skátastarfið fari að miklu leyti
fram í umhverfi sem gefur
tækifæri til þess að fá útrás fyrir
athafnaþörf, sköpunargleði og
ævintýraþrá og að í skátastarfi
séu engir varamenn eða áhorf-
endabekkir. Skátastarf er í 216
þjóðlöndum og starfandi skátar í
heiminum eru yfir 45 milljónir.
www.fjardarposturinn.is 3Fimmtudagur 25. ágúst 2005
3ja rétta
kvöldverður:
– frá kr. 1.990,-
2ja rétta
hádegisverður:
– frá kr. 990,-
Frá 1. september breytist úti-
vistartími barna og ungmenna. Í
útivistarreglunum
segir að börn 12 ára
og yngri, mega ekki
vera á almannafæri
eftir kl. 20 nema í
fylgd með fullorðn-
um. Börn, sem eru á
aldrinum 13 til 16
ára, skulu ekki vera á
almannafæri eftir kl.
22, enda seú þau ekki
á heimferð frá viður-
kenndri skóla-, íþrótta- eða
æskulýðssamkomu. Á tíma-
bilinu 1. mai til 1. september
lengist útivistartími barna um
tvær klukkustundir. Aldursmörk
miðast við fæðingarár ekki fæð-
ingardag.
Rannsóknir hafa sýnt að eftir-
litslaus börn eru líklegri en önn-
ur börn til að byrja reykja og
prófa áfengi eða önnur vímu-
efni. Jafnframt er
þeim hættara en öðr-
um til að verða fórn-
arlömb eða gerendur
ofbeldisverka eða
afbrota. Of mikið er
um að börn séu úti
eftir að útivistartíma
lýkur, en þá leynast
ýmsar hættur einkum
um helgar. Tilgangur
reglna um útivistar-
tíma er fyrst og fremst sá að
vernda börnin okkar. Leggjumst
öll saman á eitt að framfylgja
útivistarreglunum.
Höfundur er lögreglu-
varðstjóri hjá lögreglunni í
Hafnarfirði
Útivistartíminn
Valgarður
Valgarðsson
Sunddagurinn mikli
á laugardaginni
Í tilefni „Sunddagsins mikla“ næstkomandi laugardag, 27. ágúst, verður skemmtileg dagskrá
í Suðurbæjarlaug. Dagskráin hefst kl. 10 og stendur yfir allan daginn.
Kynning verður á vetrarstarfi
Sundfélagsins, unglingastarfi,
fullorðinshópum, sjósundi og
sundi fyrir yngri börn.
Innritun er hafin í alla flokka
og hægt verður að innrita á
staðnum.
Allir eru velkomnir!
Frekari upplýsingar er að finna
á heimasíðu SH, www.sh.is
Ný námskeið fyrir yngsta
sundfólkið
Börn fædd 2000-2001 og börn
fædd 2002 sem eru með
foreldum í lauginni.
Innritun verður í
Suðurbæjarlaug á
laugardaginn eða á netfangi
Sundfélagsins sh@sh.is og í
síma 555 6830 30/8, 31/8 og
1/9 milli kl. 11.30-13.
Nú er komið að hinu árlega
aflraunamóti, Suðurnesjatröllinu
en hluti þess hefur farið fram í
Hafnarfirði. Kristinn Óskar Har-
aldsson, sterkasti maður Íslands
2005 er meðal keppenda en hann
mun keppa á Sterkasta manni
heims í lok september í Kína.
Þarna verður einnig Auðunn
Jónsson sem er annar á lista al-
þjóða kraftlyftingasambandsins.
Kraftakarlarnir verða fyrir
framan verslunarmiðstöðina
Fjörð á morgun, föstudag kl. 16
og eru bæjarbúar hvattir til að
hvetja þá til dáða.
Kraftakarlar við Fjörð á morgun
Sterkasti maður Íslands 2005 meðal keppenda í Suðurnesjatröllinu
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Bjóða bæjarbúum á kvöldvöku
Skátafélagið Hraunbúar kynnir vetrarstarf sitt á laugardag
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n