Fjarðarpósturinn - 25.08.2005, Qupperneq 7
www.fjardarposturinn.is 7Fimmtudagur 25. ágúst 2005
Fréttasími:
565 4513
Auglýsingar:
565 3066
Úrslit:
Knattspyrna
Úrvalsdeild karla:
FH - Valur: 2-0
1. deild karla:
Haukar - Víkingur R.: 2-2
1. deild kvenna, a-riðill:
Víðir - Haukar: 0-9
Næstu leikir:
Knattspyrna
27. ágúst kl. 14, Ásvellir
Haukar - Þór/KA/KS
(1. deild kvenna, úrslit)
27. ágúst kl. 16, Siglufj.völlur
KS - Haukar
(1. deild karla)
27. ágúst kl. 14, Fáskrúðsfj.
Leiknir F. - ÍH
(3. deild karla, úrslit)
28. ágúst kl. 18, Akranesvöllur
ÍA - FH
(úrvalsdeild karla)
30. ág. kl. 17.30, Hamarsvöllur
ÍH - Leiknir F.
(3. deild karla, úrslit)
30. ágúst. kl. 17.30, Akureyri
Þór/KA/KS - Haukar
(1. deild kvenna, úrslit)
31. ágúst kl. 18.30, Kaplakriki
FH - Valur
(úrvalsdeild kvenna)
Haukar í 2.
sæti í 1. deild
kvenna
Keppa í úrslitum
Haukastúlkur náðu 2. sæti í
A-riðli 1. deildar kvenna í
knattspyrnu er þær lögðu Víði
9-0 í síðasta leik riðilsins.
Fengu Haukar 26 stig, 2 stig-
um færri en Fylkir sem varð í
efsta sæti. Haukar unnu 8 leiki,
gerðu 2 jafntefli og töpuðu 2
leikjum.
Keppa þær við Þór/KA/KS á
laugardaginn á Ásvöllum kl.
14 og á Akureyrarvelli á
þriðjudag. Sigurvegari úr
þeirri viðureign leikur svo til
úrslita við Fylki eða Hött
sunnudaginn 4. september.
Íþróttir
Segjum NEI við
tóbaksnotkun
í íþróttum
Íþróttafélag Hafnarfjarðar, ÍH
vann sinn riðil í 3. deild karla í
knattspyrnu og leikur í 8 liða
úrslitum við Leikni frá
Fáskrúðsfirði. Fyrri leikurinn er
úti á laugardaginn kl. 14 en
síðari leikurinn á Hamarsvelli
við Hvaleyrarvatn á þriðjudag-
inn kl. 17.30.
Sigurvegari úr þeim leik
leikur við sigurvegara úr leik
Sindra og Víðis í undanúrslit-
um.
Markahæstur ÍH manna í
sumar er Kristófer Róbertsson
með 14 mörk en Ingólfur Stefán
Finnbogason og Garðar Örn
Dagsson koma næstir með 3
mörk hvor.
ÍH stefnir á 2. deild
Heimaleikur við leikni á Hamarsvelli á þriðjudag
Það er mikil umræða þessa
dagana um hundahald og
óþrifnað af völdum hunda við
Hvaleyrarvatn og finnst mér
þessi umræða vera komin út í
miklar öfgar og nú virðist enn
eiga að þrengja að hunda-
eigendum.
Um daginn var ég á gangi
með hundinn minn við Hval-
eyrarvatn og iðkaði þann leik að
henda leikfangi út í vatnið og
leyfa hundinum mínum að fá
sér sundsprett og sækja leik-
fangið. Þá vatt sér að mér kona
sem sagði mér að hafa mig á
brott með hundinn minn og lét
fylgja mikla hörmungarsögu
um hundaskít. Kona þessi sagði
mér að allt í kringum vatnið, og
þá sérstaklega á sandströndinni,
væri allt morandi í hundaskít og
einn laugardaginn hafði barn
hennar hér um bil étið slíkan
viðbjóð eftir að hafa fundið slíkt
í sandinum. Lét hún fylgja með
að varla væri hægt að stíga nið-
ur þarna á sandströndinni vegna
þess hve allt væri morandi í
hundaskít.
Eftir að hafa lokað hundinn
inni í bílnum mínum þá hrein-
lega varð ég að labba þarna nið-
ur á sandströndina og skoða
þennan skíthaug sem konan
hafði lýst fyrir mér og viti
menn... Hún hafði alveg rétt
fyrir sér, það var þarna skítur út
um allt... bara ekki hundaskítur.
Þarna er um að ræða gæsaskít
sem er að finna allt í kringum
vatnið og þá sérstaklega þar
sem sandur liggur að vatninu.
(Hundar eru ekki hrifnir af því
að gera númer 2 í sand!)
Ég er þessari konu alveg sam-
mála að af þessu er mikið
óhreinlæti og legg ég því til að
bæjarstjórn leggi strangt bann
við lausagöngu gæsa og annars
fiðurfénaðar hið fyrsta.
Ég held að fólk ætti að kynna
sér málin áður en dæmt er og ég
er hneykslaður á því að bæjar-
stjórn sé nú með til umræðu að
banna hundahald í miðbæ Hafn-
arfjarðar og við Hvaleyrarvatn.
Hver eru rökin fyrir þessu?
Hvers vegna er endalaust
verið að ofsækja hunda og
eigendur þeirra þegar kettir eru
hér gjörsamlega úti um allt,
veiðandi varpfugla og unga,
mígandi og skítandi í sandkassa
og fl. og fl.?
Ég er nokkuð vel upplýstur
maður en þetta er mér algjör-
lega óskiljanlegt!
Steindór Erlingsson
Lesandi hefur orðið:
Banna á lausagöngu gæsa
Um hunda og hundaskít við Hvaleyrarvatn
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Misstórar græjur!
Þeir mynduðu að vísu ekki hvorn annan, Jim Smart hjá Mogganum
og þessi ungi ljósmyndari en hvor tók betri myndir?
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Haukar náðu aðeins jafntefli
við Víking frá Ólafsvík og eru
með 16 stig í 4. sæti, jafnmörg
stig og þrjú önnur félög þegar 3
umferðir eru eftir. Völsungur er í
næst neðsta sæti með 13 stig og
KS með 12 stig í neðsta sæti en
Haukar eiga að leika við KS á
laugardaginn, við Víking
Reykjavík sem er í 2. sæti 10.
september og við KA 16. sept en
KA er í 3. sæti.
Allt getur þó gerst og
fallbaráttan hörð en Breiðablik
getur tryggt sér sigur í deildinni
með jafntefli við Víking R. í
næsta leik.
Haukar í kröppum
dansi í 1. deildinni
Geta náð 4. sæti og eru samt í fallbaráttu
Lj
ós
m
.:
G
uð
m
un
du
r A
ri
A
ra
so
n
Fjölmargir hafa undrast vega-
lagningu inn í Vífilstaðahraunið
norðan Urriðavatns en nýlega
hafði verið reist þarna gadda-
vírsgirðing og hestum komið
fyrir og tengdist það deilum um
eignarrétt skv. óstaðfestum
heimildum blaðsins.
Lagður hefur verið vegur inn í
hraunið á móts við húsnæði Mar-
els, sunnan við Reykjanes-
brautina þar sem Ikea mun reisa
verslunarhúsnæði en í fyrsta
áfanga er heimilt að byggja
21000 m² húsnæði. Alls er gert
ráð fyrir allt að 50 þúsund m² af
húsnæði á byggingarreitnum
undir verslun og þjónustu.
Gríðarlegt svæði mun fara undir
bílastæði en svæðið liggur að
núverandi golfvelli og nær að
hluta til yfir svæði það sem
Oddfellowar hafa tekið til
skógræktar.
Voru skipulagstillögur að
svæðinu í kynningu í Garðabæ
til 8. apríl sl.
Eldra skipulag 1. áfanga há-
tæknigarða á Urriðaholti hefur
verið fellt úr gildi en Garðabær
gerir ráð fyrir uppbyggingu á
öllu Urriðaholtinu í framtíðinni.
Gert er ráð fyrir tengingu inn á
svæðið með mislægum gatna-
mótum rétt austan við iðnaðar-
svæðið í Molduhrauni.
Ikea byggir við
bæjarmörkin
Framkvæmdir hafnar í hrauninu
Golfvöllur
Stórakrókslæ
kur
Urriðaholt
Marel
Rey
kjan
esbr
aut
Umrætt svæði er merkt U-1 á þessum aðalskipulagsuppdrætti.
IKEA
Mislæg gatnamót