Fjarðarpósturinn - 25.08.2005, Page 8
Fjölgun nemenda í grunn-
skólum bæjarins er minni en
búist var við miðað við þá fjölg-
un íbúa sem hefur orðið en 108
nemendur hefja nám í nýjum
Hraunvallaskóla en starfsemi
hans verður í fimm lausum
kennslustofum við Íþróttamið-
stöðina Ásvelli.
Ekki náðist að ljúka við við-
byggingu Hvaleyrarskóla á
réttum tíma en búist er við að
húsnæðinu verði skilað í lok
þessarar viku.
Alls voru 356 nemendur skráð-
ir í 1. bekk grunnskóla bæjarins
en samtals eru nemendurnir um
3700 og kennarar um 350.
Í ár verða fimm skipulagsdag-
ar, þar af 3 sameiginlegir fyrir
alla skólana. Einn þeirra tengist
vetrarfríi sem verður því degi
lengra og nær frá fimmtudegi 27.
október til mánudags 31. októ-
ber. Hinir tveir eru 1. mars sem
er öskudagur og 21. apríl sem er
lok páskafrís sem verður óvenju
langt því inn í það kemur sumar-
dagurinn fyrsti og vetrarfrí líka
og nær það því frá 10.-21. apríl
en kennsla hefst á ný 24. apríl.
Förum varlega
Ökumenn eru hvattir til að fara
varlega í námunda við skólana
og krakkar á hjólum að nota
hjálm.
8 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 25. ágúst 2005
Við kunnum
að meta
eignina þína!
Áfram Haukar!
Skólastarf farið af stað
Um 3700 nemendur í grunnskólum bæjarins
Krakkarnir í Lækjarskóla virtust una sér vel á fyrsta skóladegi.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Eiríkur Smith sem er einn ást-
sælasti málari þjóðarinnar og
stolt okkar Hafnfirðinga opnar
sýningu sína á laugardaginn þar
sem sjá má olíuverk og vatns-
litamyndir, afstrakt og fígúra-
tívar myndir en Eiríkur höndlar
hvorutveggja af mikilli list.
Eiríkur er heilsuhraustur og
málar mikið enda hefur hann
alla tíð verið mjög afkastamik-
ill. Hann eyðir þó miklum tíma
í golfleik eins og hann hefur
gert um langt skeið og valdi það
umfram skákina til að geta verið
úti.
Eiríkur verður einnig með
myndir á sýningu í Duus-húsi í
Reykjanesbæ þar sem hann
sýnir olíumálverk með nokkr-
um nemendum sýnum en hann
var með námskeið þar suðurfrá
um langt skeið.
Eiríkur segir landslagið vera
helstu fyrirmynd sína, hann fari
gjarnan á jeppanum út fyrir
bæinn og sitji í honum og máli.
Aðspurður sagði hann að í
myndunum megi gjarnan
skynja dulúð sem hann upplifi í
landslaginu en kona sem hafði
horft á verkin hans fullyrti að
hann væri skyggn.
Landslag og
leyndardómar
Ástsæll áttræður málari sýnir í Hafnarborg
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Eitt verka Eiríks á sýningunni.