Fjarðarpósturinn - 16.08.2007, Page 2
Joan Perlman í Hafnarborg
Nýlega var opnuð í Hafnarborg sýning
á málverkum bandarisku lista kon -
unnar Joan Perlman. Joan Perlman er
með mastersgráðu í myndlist frá San
Francisco Art Institute og hún hefur
haldið einkasýningar og tekið þátt í
samsýningum víða um Bandaríkin.
Auk þessa hefur hún kennt við nokkra
háskóla í Bandaríkjunum. Perlman
hefur lengi haft sterkar taugar til
Íslands. Hún hefur lesið íslenskar
bókmenntir og kynnt sér íslenska
menningu og þekkir vel sögu landisns.
Árið 1995 kom hún hingað í fyrsta
skipti, þegar henni var boðið að halda
fyrirlestur í Nýlistasafninu. Hið hrjúfa
viðmót landsins varð fljótlega við -
fangsefnið í málverkum hennar þó hún
sé ekki að túlka það á raunsæan hátt,
heldur leitist við að fanga dulúðina og
sjálfan kjarna náttúrunnar; kjarna alls
landslags, hvar sem það er.
Sýningin er opin til 9. september.
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 16. ágúst 2007
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 681175-0329
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
Það er greinilegur vilji meirihluta bæjar -
stjórnar Hafnarfjarðar að samþykkja 9 hæða hús
við Strandgötuna. Ekki held ég að bæjarfulltrúar
hafi sérstakan áhuga á hæðinni, þó farið sé 5
hæðir yfir gildandi skipulag, heldur eru þeir
orðnir langþreyttir á aðgerðarleysi á lóðinni og
vilja allt til þess að þarna aukist verslunarrými þó
það kosti að bæta slatta af hæðum ofan á fyrir
íbúðir. Það er hægt að skilja svona afstöðu en af
hverju hafa menn ekki skýrari framtíðarsýn á
miðbænum en það að bíða þurfi eftir tillögum þeirra sem kaupa
fasteignir í miðbænum? Sennilega er auðveldara að fá að byggja 5
auka hæðir í miðbænum en að fá að setja kvist á hús í úthverfi.
Tillaga Hanza-hópsins er áferðarfalleg en ég skil ekki ennþá af
hverju svona margar íbúðir þurfa að vera þarna. Er ekki flott að geta
selt 3000 m² verslunarrými?
Annars er grátlegt að koma úr sumarfríi í góðviðrinu. Meira að
segja rigningin hefur breyst og kemur nú beint af himni ofan.
Íslendingar dvelja nú í sumarfríum sínum í draghýsum af stærstu
gerð, sum eru sjálfkeyrandi og önnur eru dregin af öflugum bílum.
Allt þarf þetta að vera einhvers staðar og ekki gerir skipulagið í
Setberginu t.d. ráð fyrir svona draghýsum né stórum bílum. Þar eru
þröngar götur og velmegunin ekki fyrirséð. Kannski fáum við
draghýsageymslusvæði í bæinn þar sem fólk getur geymt draghýsin
sín á lokuðu svæði og þurfi ekki að teppa bílastæði og gangstéttir
og vera til ama og leiðinda fyrir nágrannana sem geyma Ægistjöldin
sín á hillu í bílskúrnum. Þar safna þau sennilega framvegis bara ryki
því vart sést tjald lengur á sk. tjaldstæðum landsins nema þar séu á
ferð hjólandi eða gangandi útlendingar. Við Íslendingar erum ríkir!
Guðni Gíslason
www.hafnarf jardark i rkja. is
Verkframkvæmdir
í kirkjunni
Helgihald hefst í
safnaðarheimilinu Strandbergi
síðar í sumar.
Nánari upplýsingar gefur kirkjuþjónn
í síma 555 4295, 897 0647
Prestar og sóknarnefnd
Hafnarfjarðarkirkju
6. Hlíðarberg,
aðstoðarleikskólastjóri
Lögð fram umsókn frá Svanhildi
Ósk Garðarsdóttur um stöðu að -
stoðarleikskólastjóra við leik skól -
ann Hlíðarberg.
Jafnframt lagt fram bréf frá
leikskólastjóra þar sem mælt er
með ráðningu Svanhildar í starfið.
Sviðsstjóri tekur undir tillögu
leikskólastjóra. Fræðsluráð sam -
þykkir ráðninguna fyrir sitt leyti.
1. Bílastæðaþörf í miðbænum
Tekin fyrir að nýju greinargerð
Glámu-Kím og VSB „Miðbær
Hafnarfjarðar - úttekt á bísla -
stæðum“.
Framkvæmdaráð þakkar fyrir
góða skýrsla og kynningu á henni
og vekur athygli miðbæjarnefndar
Hafnarfjarðar á þeim hugmyndum
sem fram koma varðandi tíma -
takmarkanir og notkun klukkuskífa
í þeim tilgangi.
2. Hamarsbraut, endurnýjun
Tekin fyrir niðurstaða útboðs í
endurnýjun Hamarsbrautar en
engin tilboð bárust.
Framkvæmdaráð samþykkir að
senda kynningarbréf vegna fram -
kvæmdanna til íbúa götunnar.
Jafnframt er hönnunar - og gatna -
deild falið að vinna áfram í málinu.
7. Hafnarfjarðarbær og OR,
viljayfirlýsing
Lögð fram viljayfirlýsing Hafnar -
fjarðarbæjar og OR vegna vatns-
og fráveitumála frá 02.07.07.
Framkvæmdaráð felur sviðs -
stjóra, vatnsveitustjóra og fjár -
málastjóra að fylgja málinu eftir.
17.3. Aðalskipulag Hafnar -
fjarðar - breyting Jófríðarstaðir
Skipulags- og byggingaráð gerir
eftirfarandi tilllögu til bæjarstjórnar:
„Bæjarstjórn Hafnarfjarðar
samþykkir að tillaga að breytingu
á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar
2005 – 2025 vegna stofnana -
svæðis við Jófríðarstaði, dags 14.
júní 2007 verði auglýst skv. 18.
grein skipulags- og byggingarlaga
nr. 73/1997”
Bæjarráð í umboði bæjar -
stjórnar samþykkir tillöguna með 3
atkvæðum.
Fulltrúi Vinstri hreyfingarinnar
græns framboðs leggur fram
eftirfarandi bókun:
Fulltrúi Vinstri grænna ítreka
athugasemdir sem fram hafa
komið í skipulags- og bygg ingar -
ráði vegna fyrirhugaðrar íbúðar -
bygginar á lóð kaþólsku kirkjunnar
á Jófríðarstöðum. Ekki er hægt að
fallast á að þótt upplýst sé að
kaþólska kirkjan á Íslandi eigi í
fjárhagsvanda, að það réttlæti að
farið sé í brask með lóðirnar, og
hvorki sé tekið tillit til Jófríðar -
staðarsvæðisins sem eins af sér -
kennum Hafnarfjarðar né þeirra
áköfu mótmæla sem nágrannar
hafa haft í frammi vegna skipu -
lagsins.
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir
(sign)
Fulltrúar Samfylkingar vísa til
bókunar fulltrúa sinna í skipulags-
og byggingarráði.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
greiða atkvæði gegn tillögunni og
vísa til bókunar sinnar í bæjar -
stjórn.
Víðistaðakirkja
Helgihald fellur niður í ágúst
vegna sumarleyfa.
www.vidistadakirkja.is
breyta
Allt bendir til þess að nýr
fjármálastjóri verði ráðinn til
Hafnarfjarðarbæjar en nokkuð er
síðan að staðan var auglýst.
Munu tæplega 20 manns hafa
sótt um stöðuna og leitar sviðs -
stjóri fjármála- og stjórnsýslu -
sviðs álits bæjarráðs á ráðn -
ingunni. Þessi sviðsstjóri er
bæjar stjórinn Lúðvík Geirsson
sem stefnir á að ráða einn um -
sækjenda.
Sveinn Bragason, fyrrverandi
fjármálstjóri sagði upp starfi sínu
og hyggst leit á ný mið.
Hafnarfjarðarbær:
Fjármálastjóri
ráðinn í dag?
Frá Hvaleyrarholti
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n