Fjarðarpósturinn - 16.08.2007, Page 9
www.fjardarposturinn.is 9Fimmtudagur 16. ágúst 2007
Flensborgarskólinn í
Hafnarfirði auglýsir
upphaf haustannar 2007
Föstudaginn 17. ágúst
Starfsmannafundur kl. 10.00 (kaffi frá 9.30).
Fundarefni: Veturinn framundan sem og
skipulagsvinna og/eða flutningar eftir þörfum.
Að loknum kennarafundi verða fundir með nýjum
kennurum og umsjónarkennurum nýnema.
Mánudagur 20. ágúst
Nýnemar komi í skólann á kynningu
sem hefst kl. 10.00.
Eldri nemendur fá afhentar stundatöflur
frá kl. 12.00.
Töflubreytingar verða sem hér segir:
Mánudag kl. 12.00-15.30.
Þriðjudag kl. 9.00-12.00 og 13.00-15.30.
Miðvikudag kl. 13.00-15.30.
Miðvikudagur 22. ágúst
Kl. 8.15 skólasetning.
Kl. 9-13.10 kennt skv. hraðtöflu.
Fimmtudagur 23.ágúst
Kennt skv. stundatöflu.
Skólameistari
www.flensborg. is
Þessa dagana er fyrsti geisla -
diskurinn frá laga- og texta -
smiðnum Ólafi Sveini Trausta -
syni væntanlegur í verslanir.
Ólafur er vel kunnur fyrrum
frjáls íþróttamaður úr FH og hef -
ur verið iðinn við gítarinn. Hann
hefur hljóðritað 12 lög en tvö
þeirra hafa áður heyrst en hafa
ekki verið gefin út á diski áður,
það eru lögin „Von“ í flutningi
Páls Rósinkranz og lagið „Þú ert
vindur“ í flutningi Sigurjóns
Brink en það lag varð í öðru sæti
í dægurlagakeppni Sauðárkróks
árið 2006.
Öll lögin eru eftir Ólaf en
nokkrir af textunum eru eftir
hinn frábæra tónlistarmann
Magn ús Þór Sigmundsson og eitt
ljóð eftir Davíð Stefánsson frá
Fagraskógi. Allar upptökur voru
í höndum Péturs Hjaltested sem
einnig sá um útsetningar.
Ólafur fékk góðan hóp til liðs
við sig og þeir flytjendur sem
koma fram á diskinum eru
eftirfarandi: Páll Rósinkranz,
Edgar Smári Atlason, Eyþór Ingi
Gunnlaugsson, Erna Hrönn
Ólafs dóttir, Sigurjón Brink, Sara
Dís Hjaltested, Tryggvi Karl
Valdimarsson, Þuríður Sigur -
jóns dóttir, Bergur Ingi Pétursson
og svo syngur Ólafur sjálfur eitt
lag.
Meðal þeirra hljófæraleikara
sem koma fram eru Birkir Rafn
Gíslason, Guðmundur Pétursson,
Ró bert Þórhallsson, Egill Rafns -
son, Gunnlaugur Briem, Pétur
Hjaltested, Ásgeir Óskarsson
auk þess sem Ólafur Sveinn
leikur einnig á plötunni.
Ólafur Sveinn gefur
út geisladisk
Hafnfirsk tónlist á leið í verslanir
Fyrirtækið Norðurflug hefur
sótt um lóð undir þyrluskýli og
aðra aðstöðu flugfélagsins í
Hafnarfirði og horfa for svars -
menn fyrirtækisins til svæðisins
á milli álversins í Straumsvík og
skolpdælu- og hreinsi stöðvar -
inn ar sem nú er í byggingu vest -
an við golfvöllinn .
Félagið rekur þrjár þyrlur, eina
Aero spatiale AS 365N, 10 sæta
(eins og TF-Sif sem fórst) Aero -
spatiale AS 350B2, 6 sæta og
Bell 206B, 5 sæta vél.
Er félagið með flugrekstrar leyfi
fyrir verkflugi en býst við að fá
almennt leyfi til farþega flugs með
haustinu. Fyrirtækið sinnir fjöl -
breyttum verkefnum allt frá kvik -
myndaflugi til flutn inga en þyrla
frá félaginu flutti m.a. flug vélina
sem nauðlenti í hraun inu vestur af
Krýsu víkur vegi.
Skv. upplýsingum frá Norður -
flugi er félagið tilbúið að byggja
upp aðstöðuna á mettíma en
félagið á nú flugskýli á
Reykjavíkurflugvelli sem ekki
dugar starfseminni auk þess sem
allt er í óvissu með framtíð
flugvallarins. Félagið vill reisa
1500 - 2000 m² flugskýli með
skifstofuhluta en reiknað er með
að aðflug yrði frá sjó svo engin
truflun er af starfseminni.
Norðurflug sækir um aðstöðu
í Hafnarfirði
Vilja byggja þyrluskýli út við Straumsvík
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n