Fjarðarpósturinn - 16.08.2007, Side 12
Eins og undanfarin ár lauk
Snorraverkefninu 2007 í Hafnar -
firði 20. júlí s.l. með útskrift 14
þátttakenda ársins. Athöfnin var
haldin í Hafnarborg og dvöldu
þátttakendur síðustu nóttina fyrir
brottför á Hótel Viking.
Þetta var níundi hópur ungra
Kanada- og Bandaríkjamanna af
íslensk um ætttum sem komið
hef ur til landsins á vegum verk -
efnisins sem hófst árið 1999.
Tilgangur þess er að bjóða
afkom endum íslenskra land -
nema í Vesturheimi á aldrinum
18-28 ára upp á 6 vikna dvöl til
að kynnast landi og þjóð og efla
tengslin við ættmenni hér á
landi.
Verkefnið hefst með 2 vikna
náms dvöl og kynningu, síðan
tekur við 3 vikna dvöl hjá ætt -
ingjum einkum á landsbyggðinni
og taka ungmennin þátt í hefð -
bundnum störfum meðan á þeirri
dvöl stendur. Síðasta vikan er
svo ferð um landið og er m.a.
dval ið 2 daga á Hofsósi við
skoð un á sögu landnáms Íslend -
inga í vesturheimi og einnig
ættfræðigrúsk.
Það eru Þjóðræknisfélag
Íslend inga og Norræna félagið
sem stofnuðu Snorraverkefnið
og er það rekið sem sjálfstætt
verkefni. Undanfarin 4 ár hefur
einnig verið boðið upp á 2 vikna
dvöl fólks af íslenskum ættum að
vestan sem er orðið eldra en 30
ára og hefur það verkefni sem
nefnt er Snorri Plus hlotið mjög
góðar viðtekur eins og ung -
mennaverkefnið.
Verkefnið hefur notið mikillar
velvildar og beins stuðnings
ríkisstjórnarinnar og einnig hafa
nokkur sveitarfélög og fyrirtæki
stutt verkefnið. Nú nýverið var
undirritaður samningur milli
Landsbanka Íslands og Þjóð -
ræknisfélagsins þar sem Lands -
bankinn gerist aðaðbakhjarl
Snorraverkefnisins næstu 5 árin.
Almar Grímsson formaður
Þjóð ræknisfélagsins er jafnframt
for maður stjórnar Snorra verk -
efnisins og Ásta Sól Kristjáns -
dóttir er verkefnisstjóri.
12 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 16. ágúst 2007
Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir
umsóknum um styrki vegna aðgerða á
gluggum húsa við umferðargötur, skv.
samþykkt bæjarstjórnar 30. maí 2000.
Frekari upplýsingar fást í þjónustuveri
Hafnarfjaðar, Strandgötu 6, sími 585 5500
og á heimasíðu bæjarins
www.hafnarfjordur.is.
Umsóknir skulu berast í þjónustuver
Hafnarfjarðar fyrir 1. september n.k.
Athugið að eldri umsóknir þarf að
endurnýja.
Framkvæmdasvið
Styrkir vegna
hljóðvistar 2007
Nú er sólríku og góðu sumri
senn lokið en mörgum finnst að
þegar kennsla hefst í grunn -
skólunum sé komið haust.
Haust ið er tími breytinga í lífi
okk ar og því fylgir oft ákveðin
endur skipulagning á heimilis -
lífinu. Þessu geta fylgt aukin
fjár útlát og gott að hafa út -
sjónarsemi hvað allt
um stangið varðar. Eft -
ir verslunarmanna -
helg ina fara foreldrar
gjarn an að huga að
undir búningi fyrir
skól ann. Skólatöskur
eru teknar fram og
hug að að inn kaupa -
listum. Gott er að at -
huga hvort hægt sé að
nota skóladótið frá því
í fyrra því með smá
upplyftingu má oft nýta það sem
til er og óþarfi að kaupa allt nýtt.
Í júlí byrja auglýsendur að minna
okkur á hvað til stendur með
auglýsingaherferðum um skóla -
fatn að og ýmsar nauðsynlegar
skólavörur. En það er að mörgu
að hyggja og börnin þurfa svo
sannarlega á foreldrum sínum að
halda þegar skólinn byrjar. Nú
eru þau árinu eldri og ný verk -
efni blasa við, kannski nýr skóli,
nýr kennari eða nýr bekkur.
Innkaup í tíma
Skólar hefjast yfirleitt eftir
miðjan ágúst og standa fram í
júní en flestir skólar á höfuð -
borgar svæðinu verða settir
22. ágúst. Mörgum foreldrum
finnst gott að hafa lokið inn -
kaup um og undirbúningi fyrir
skóla gönguna í tíma en yfirleitt
eru birtar upp lýs ingar um það
hvenær nem end ur eigi að mæta á
heima síðum skólanna. Þar er
einnig hægt að nálgast upplýs -
ing ar um skrán ingu í matar -
áskrift og við veru eftir skóla,
inn kaupalista, stundaskrár og
skóladagatal. Í einstaka skóla
hefst kennsla sama dag og
skólasetningin.
Handleiðsla foreldra mikilvæg
Handleiðsla foreldra er mjög
mikilvæg alla skólagönguna og
verður seint ofmetin en sér -
staklega þarf að huga að 6 ára
börn um í skólabyrjun. Sum
þess ara barna eiga nú
erfiðara með að sofna
á kvöld in og foreldrar
finna að börnin hafa
væntingar, eru jafnvel
spennt en sum geta
líka verið áhugalítil.
Mikilvægt er að for -
eldrar undir búi börn
sín vel og fylg ist með
líð an barna sinna í
aðdraganda skól ans.
Margir for eldrar finna
líka sjálfir fyrir kvíða sem teng -
ist skólagöngu barnsins. Hvernig
verður stundaskráin? Verður
boðið upp á mat í skólanum eða
þarf barnið að koma með nesti?
Verður bekknum kannski skipt
upp? Hvernig verður með
heima námið, samskipti við
bekkj ar félaga og kennara? Mun
barn ið fá kennslu við hæfi,
verður boðið upp á stoð þjón -
ustu? Hvenær er vetrarfríið?
Víða má fá upplýsingar
Einnig er gott að skoða hvaða
upplýsingar liggja nú fyrir um
barnið í skólann og mikilvægt að
foreldrar tilkynni skólanum ef
um er að ræða breytta hagi hjá
barninu eða foreldrum þess. Gott
er að fara yfir hvaða að stand end -
ur eru skráðir hjá barninu og
hvort ný eða breytt símanúmer
eru hjá þeim. Sé barnið í stjúp -
fjöl skyldu er rétt að taka það
fram. Nauðsynlegt er að for -
eldrar leiti upplýsinga og fái svör
við þeim spurningum sem
vakna. Á heimasíðum skóla eða
hjá skólariturum er hægt að fá
allar upplýsingar um Mentor,
viðtalstíma kennara og einnig er
þar hægt að leita upplýsinga um
foreldraráð, foreldrafélög og
hvaðeina er tengist skólagöngu
barnsins.
Takið þátt
Í flestum skólum er boðið upp
á skólafærninámskeið fyrir
foreldra 6 ára barna og í sumum
skólum fyrir foreldra nemenda í
öðrum bekkjardeildum líka. For -
eldrar eru hvattir til að sækja
þessi fróðlegu námskeið. Þar fá
þeir kynningu á skólastarfinu,
fræðast m.a. um þroska barna á
hinum ýmsu aldursskeiðum,
kynn ast kennurum barnsins og
for eldrum bekkjarfélaganna.
Sumir skólar hafa foreldraviðtöl
í tengslum við skólasetningu þar
sem foreldrar geta hitt kennara
barnsins strax fyrsta daginn í
persónulegu viðtali. Láta for -
eldrar mjög vel að því að fá að -
gang að kennaranum í skóla -
byrjun þar sem hægt er að miðla
nauðsynlegum upplýsingum.
Við horf foreldra endurspeglast
oft í viðhorfi barnanna til skólans
því er mikilvægt að foreldrar séu
jákvæðir og ræði ekki neikvæðar
hliðar skólastarfsins í návist
barnanna. Nemendur þurfa að
koma að hreinu borði í orðsins
fyllstu merkingu og ekki gott að
draga fram gamla drauga eða
atburði síðasta skólaárs. For -
eldrar þurfa að huga vel að líðan
barna sinna og leggja sig fram
um að skapa börnunum jákvætt
og uppbyggilegt náms umhverfi
til að þau verði móttækileg fyrir
því sem skólinn hefur fram að
færa. Foreldrar verum til staðar
fyrir börnin okkar, nú sem
endranær.
Höfundur er verkefnastjóri hjá
Heimili og skóla - lands -
samtökum foreldra.
Skólarnir að byrja
Handleiðsla foreldra er mjög mikilvæg
Helga Margrét
Guðmundsdóttir
14 ungmenni útskrifuðust í Hafnarborg
Snorraverkefnið vel heppnað
Útskriftarhópurinn ásamt Almari Grímssyni, Ástu Sól Kristjánsdóttur, Marteini Kristjánsson fulltrúi
Landsbankans og Úlfi Sigurmundssyni varaformaðnns stjórnar Snorraverkefnisins.
L
j
ó
s
m
.
:
K
r
i
s
t
j
a
n
a
Þ
.
Á
s
g
e
i
r
s
d
ó
t
t
i
r
Fallegt reyniviðartré á
Móabarðinu með fallegum
undirgróðri sem losar
eigandann við arfahreinsun.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n