Fjarðarpósturinn - 20.12.2007, Blaðsíða 11
www.fjardarposturinn.is 11Fimmtudagur 20. desember 2007
Núna er aðal fjáröflunartímabil
björgunarsveita í landinu hafið
og hafa félagar í Björgunarsveit
Hafnarfjarðar unnið dag og nótt
við undirbúning og framkvæmd
tveggja lykilfjáraflana sveitar -
innar, jólatrjáasölu og flugelda -
sölu. Jólatrjáasalan stendur nú í
hámarki og flugeldasalan hefst
þann 28. desember. Þessar tvær
fjár aflanir eru mjög mikilvægar
fyrir björgunarsveitir á landinu
og geta skipt sköpum þegar á
reynir. Björgunarsveit Hafnar -
fjarðar byggir starf sitt að lang -
stærstum hluta á þessum tveimur
lykilfjáröflunum og rennur allur
ágóðinn af þeim óskiptur til
uppbyggingar á starfi og búnaði
sveitarinnar.
Allt unnið í sjálfboðavinnu
Allir félagar Björgunarsveitar
Hafnarfjarðar gefa vinnu sína og
eru til taks allan sólarhringinn –
allan ársins hring. Björgunar -
sveit Hafnarfjarðar er því mikil -
vægur hlekkur í öryggisneti lands -
manna. Júlíus Gunnarsson, for -
maður Björgunarsveitar Hafn ar -
fjarðar sagði í samtali við Fjarð -
ar póstinn að um 80% af rekstrar -
fé sveitarinnar væri sjálfs aflafé
og sé það nýtt meðal ann ars til
þjálf unar félaga og til endur -
nýjunar á búnaði og tækja kosti
sveitarinnar. Án þessara fjárafl -
ana stæði sveitin ekki jafnvel að
vígi og hún gerir nú í dag.
Útköll á árinu
Björgunarsveit Hafnarfjarðar
hefur farið í 42 útköll það sem af
er árinu og þar af hefur sjó flokk -
urinn verið 11 sinnum kallaður
út. Margar þessar aðgerðir hafa
verið mjög stórar og kostnaðar -
samar fyrir sveitina og má þar
nefna vélsleðaleit á Langjökli,
leit í Soginu og leit í Skaftafelli.
Þann 16. júlí var þyrla Land -
helgisgæslunnar, TF-SIF, á
æfingu ásamt sjóflokk sveitar -
innar rétt utan við Straumsvík
þegar eitthvað fór úrskeiðis og
þyrlan endaði í sjónum.
25. júlí hrapaði maður niður
50-70 m í Laxárgljúfri. Undan -
farar úr BSH fóru austur og tóku
þátt í stórri aðgerð þar sem nota
þurfti línur og fjalla björg unar -
búnað til að ná manninum upp í
börum. Dagana 19.-25. ágúst
stóð yfir viðamikil leit af Þjóð -
verjum í Skaftafelli. Undanfarar
ásamt Pílu, sporhundinum okkar,
fóru og tóku þátt í langri og
erfiðri leit sem bar því miður
ekki árangur. Björgunarsveitin er
einnig hluti af alþjóðasveitinni
og fóru fjórir félagar úr BSH á
æfingu í Noregi í nóvember.
Gísli Ólafsson var kallaður út
til Ghana í Vestur-Afríku en
hann er einn af tveimur Íslend -
ingum sem eru hluti af UNDAC
(United Nations Disaster Assess -
ment And Coordination) teymi
Sameinuðu þjóðanna. Þeir voru
sendir út til þess að aðstoða við
að meta umfang flóðanna og
viðbrögð við þeim.
Unglingastarf
Í björgunarsveitinni er rekið
öflugt unglingastarf sem skiptist
í tvo hluta, annars vegar er ungl -
ingadeildin Björg úlfur fyrir
krakka á aldrinum 14-16 ára og
hins vegar er nýliðastarf fyrir 17
ára og eldri. Ný liða starfið er oft -
ast tveggja ára þjálf un sem
allir björgunar sveitar -
menn þurfa að
ganga í gegn -
um og
þar læra
menn fyrstu hjálp, fjalla -
mennsku, rötun og fleira. Einnig
er lagt mikið uppúr ferðum til að
auka þekkingu og reynslu nýlið -
anna. Kynningar fundur fyrir
vænt anlega nýliða er haldinn í
sept ember ár hvert og eru allir
þeir velkomnir sem hafa áhuga á
að starfa í björgunar sveit.
Sölustaðir
Risaflugeldamarkaðurinn
verð ur eins og áður í húsnæði
Björgunarsveitar Hafnarfjarðar
við Flatahraun (gamla slökkvi -
stöðin) og svo verða þrír aðrir
sölu staðir, Fornubúðir við smá -
bátahöfnina, á bílastæðinu við
verslunarmiðstöðina Fjörð og
Haukahúsið við Ásvelli.
Opið verður kl. 9-22 dagana
28.-30. desember og kl. 9-16 á
gamlársdag.
Flugeldasýning
Flugeldasýning verður yfir
höfninni laugar daginn
29. desember kl. 20.30
Styðjum þá sem ávallt eru
viðbúnir að bjarga okkur
Flugeldasala björgunarsveitanna fjármagnar björgunarstörf þeirra – verslum af þeim!
Frá þyrluslysinu utan við Straumsvík.
4. jan. Leit að manni í
Kjóadölum
7. feb. Leit í Hafnarfirði
11. mars Leit á Langjökli
18. apríl Leit að manni í
Reykjavík
22. júní Slasaður maður i Esju
27. mars Bátur sekkur í
Hafnarfjarðarhöfn
23. júní Gróðureldar við
Nesjavallaveg
16. júlí Þyrla nauðlendir við
Straumsvík
14. sept. Útkall á vegum SÞ
vegna flóða í Ghana
19. sept. Leit að manni í Soginu
23. ágúst Leit í Skaftafelli
10. des. Óveður á
Höfuðborgarsvæðinu
12. des. Óveður á
Höfuðborgarsvæðinu
14. des. Óveður á
Höfuðborgarsvæðinu
Af útkallsskrá
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Klifuræfing á nýliðanámskeiði.
L
j
ó
s
m
.
:
Þ
ó
r
ó
l
f
u
r
K
r
i
s
t
j
á
n
s
s
o
n
L
j
ó
s
m
.
:
Þ
ó
r
ó
l
f
u
r
K
r
i
s
t
j
á
n
s
s
o
n
L
j
ó
s
m
.
:
Þ
ó
r
ó
l
f
u
r
K
r
i
s
t
j
á
n
s
s
o
n
Gosin, raketturnar og
terturnar eru allar
kenndar við viðburði
úr Íslandssögunni.
Mikilvægt er að nota
hlífðar gleraugu og vera
ekki í eld fimum fötum við
að skjóta upp flugeldum
og skotkökum.