Fjarðarpósturinn - 20.12.2007, Síða 25
www.fjardarposturinn.is 25Fimmtudagur 20. desember 2007
Erfitt inngöngu
Þessi mynd náðist af Stekkja -
staur þegar hann kom til byggða
og sannar að það er ekki alltaf
tekið út með sældinni að vera
jólasveinn og gefa í skóinn. Þar
sem allir gluggar voru kræktir
aftur, þá greip hann til örþrifa -
ráða til að redda sér.
Inn komst hann loksins!
Við sendum ykkur hugheilar óskir um
gleðileg jól og farsælt komandi afmælisár.
Þökkum samskiptin á árinu sem er að líða.
Tökum höndum saman og gerum jólin og
áramótin að sannri fjölskylduhátíð.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar
Kæru Hafnfirðingar!
Ástjarnarkirkja er yngsta
kirkja bæjarins og var nýtt
bráðabirgðahúsnæði tekið í
notkun 16. sept. sl. eftir að hafa
haft aðstöðu í íþróttamið stöð -
unni Ásvöllum. Nýja húsið er
tvær 20 ára gamlar skólastofur
sem Hafnarfjarðarbær gaf kirkj -
unni og hafa þær verið endur -
nýjaðar bæði að utan og innan.
Er í rauninni aðdáunarvert
hversu vel hefur tekist til. Sigur -
þór Aðalsteinsson arkitekt sá um
hönnun breytinganna en hann
hannaði einnig kirkju mun ina.
Í húsnæðinu, sem stendur á
bílastæði væntanlegrar kirkju, er
kapella sem tekur 70 manns í
sæti, skrifstofa prests og æsku -
lýðsfulltrúa og safnaðarheimili
auk snyrtiaðstöðu. Á fyrsta
aðventukvöldinu voru um 100
manns og þeir sem ekki komust
fyrir í kapellunni fylgdust með á
tjaldi í safnaðarheimilinu.
Sr. Bára þjónar einnig Kálfa -
tjarnarkirkju en með henni í
Ástjarnarsókn starfar Ingi Þór
Emils son, æskulýðsfulltrúi. Sr.
Bára segir mætingu í kirkjuna
hafa verið góða í haust og starfið
öflugt. Fermingarfræðsla er í
fullum gangi og verða 36 börn
fermd í kirkjunni í vor. Sunnu -
dagaskóli er starfandi og starf er
fyrir 6-9 ára börn, 2 hópar eru
fyrir 10-12 ára auk þess sem
æskulýðsfélag er starfandi fyrir
13-15 ára og eldri hópur, 16+ er
starfandi. Þá eru foreldra morgn -
ar vikulega og segist Bára vilja
geta bætt starfi fyrir aldraða við.
Aðspurð segir sr. Bára að
henni hafi verið vel tekið og
segir mjög ánægjulegt að starfa í
kirkjunni. Mikið grasrótarstarf
fari fram í svona nýju hverfi og
segist hún vona að kirkjan geti
orðið annað heimili hverfisins.
Ekki er ákveðið hvenær ný
kirkja verður byggð en bygg -
ingar nefnd hefur verið skipuð
sem nú skoðar þá möguleika sem
eru í boði.
Kirkjustarf í nýju hverfi
í Ástjarnarkirkju
Sr. Bára Friðriksdóttir vill að kirkjan verði sem annað heimili fyrir íbúana
Sr. Bára Friðriksdóttir, sóknarprestur að störfum í Ástjarnarkirkju.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Sr. Bára og Hermann Björn
Erlingsson, formaður sóknar -
nefndar við nýja altarið sem
velunnarar gáfu fyrir skömmu.